Thierry Henry og Belgar gegn Frakklandi - Grannaslagur í undanúrslitaleik HM

Fyrri und­an­úr­slita­leik­ur­inn á Heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu fer fram klukkan sex í dag og er sann­kall­aður nágranna­slagur þegar lið Frakk­lands mætir liði Belgíu.

Fyrri und­an­úr­slita­leik­ur­inn á Heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu fer fram klukkan sex í dag og er sann­kall­aður nágranna­slagur þegar lið Frakk­lands mætir liði Belgíu.

Sig­ur­veg­ari leiks­ins mun mæta annað hvort Króatíu eða Englandi í úrslita­leik móts­ins sem fram fer á sunnu­dag. Frakkar hafa einu sinni orðið heims­meist­arar - Belgar aldrei, né heldur hafa þeir náð í úrslita­leik­inn.

Bæði liðin unnu riðla sína á mót­inu. Frakk­land var í riðli með Danmörku, Perú og Ástralíu en Belgar voru með Eng­lend­ingum, Panama og Túnis. Frakkar unnu síðan Argent­ínu í sextán liða úrslitum en Belgar slógu út Japani. Belgar unnu að lokum frá­bæran sigur á fimm­földum heims­meist­urum Brasilíu í 8-liða úrslitum. Frakkar hins vegar slógu út tvö­falda heims­meist­ara liðs Úrúgvæ.

Liðin tvö þekkj­ast vel. Leik­ur­inn sem fram fer í kvöld verður 74. skiptið sem liðin mæt­ast. Belgar hafa oftar unnið, 30 viður­eignir, Frakkar hafa tekið 24 viður­eignir og 19 sinnum hafa liðin skilið jöfn.

Belgar unnu síð­ustu viður­eign lið­anna sem fram fór árið 2015 á State de France í París, 4-3. Síðasti keppn­is­leikur milli lið­anna var leikur um 3. sæti á HM 1986 í Mexíkó. Þar unnu Frakkar 4-2 eftir fram­leng­ingu.

Leik­ur­inn á eftir verður í fyrsta sinn frá árinu 2006 sem Frakkar ná í und­an­úr­slitin. Á því móti kom Zinedine Zidane lið­inu í und­an­úr­slitin með marki úr víta­spyrnu gegn Portúgal. Leik­ur­inn fór 1-0. Belgar hafa einu sinni kom­ist í und­an­úr­slitin, á mót­inu í Mexíkó árið 1986. Þá töp­uðu þeir 2-0 gegn Argent­ínu, sem urðu meist­arar á mót­inu.

Franska lands­liðs­hetjan og goð­sögnin Thierry Henry er röngu megin við borðið að þessu sinni, en hann er aðstoð­ar­þjálf­ari Belga. Henry lék 123 lands­leiki fyrir Frakk­land og skor­aði í þeim 51 mark. Þjálfari franska liðs­ins, Didier Deschamps, lék með Henry í lands­lið­inu á sínum tíma og hefur látið hafa eftir sér að Henry sé nú óvinur Frakk­lands. „Hann er að mæta sinni eigin þjóð. Þegar hann gerð­ist aðstoð­ar­þjálf­ari Martinez þá vissi hann að þetta gæti gerst. Þetta er furðu­leg staða og ekki auð­veld fyrir hann.“

Leik­ur­inn er sem fyrr sýndur í beinni útsend­ingu á RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár