Fleiri hlynntir sameiningu

Meiri­hluti borg­ar­búa 18 ára og eldri eru hlynntir sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu.

Flestir hlynntra vildu sameiningu allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Flestir hlynntra vildu sam­ein­ingu allra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Fleiri íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 18 ára og eldri eru hlynntir sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en and­vígir henni. Mjótt er hins vegar á mun­unum, en við­horf eru mis­mun­andi eftir aldri, búsetu og stjórn­mála­skoð­ana. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem birt­ist í dag.

Samkvæmt könn­un­inni eru 51,6% borg­ar­búa á full­orð­ins­aldri hlynntir sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þ.e. Reykja­víkur, Kópavogs, Hafn­ar­fjarðar, Garða­bæjar, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness. 48,4% eru hins vegar and­víg sam­ein­ingu.

Sé við­mæl­endum könn­un­ar­innar flokkað eftir búsetu kemur í ljós að Reyk­vík­ingar vilja sam­ein­ingu fremur en íbúar nágranna­sveit­ar­fé­lag­anna, en Garð­bæ­ingar og Seltirn­ingar eru and­víg­astir henni. Þá eru karlar hlynnt­ari sam­ein­ingu en konur.

Yngsti ald­urs­hópur könn­un­ar­innar er and­vígastur sam­ein­ingu, en meðal 18-29 ára borg­ar­búa vilja ein­ungis 36,9% sam­eina sveit­ar­fé­lögin. Þess utan breyt­ist afstaða til sam­ein­ingar lítið milli ald­urs­hópum, en í öllum hinum er meiri­hluti hlynntur sam­ein­ingu.

Tals­verður munur er á við­horfi eftir stjórn­mála­skoð­unum, en mik­ill meiri­hluti þeirra sem myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn er and­vígur sam­ein­ingu. Á hinn bóg­inn er stór meiri­hluti þeirra sem myndu kjósa Pírata hlynntur sam­ein­ingu.

Þegar við­mæl­endur könn­un­ar­innar voru spurðir um hvaða sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þau vildu helst að sam­ein­ist nefndu flestir öll sveit­ar­fé­lögin, eða um 47% allra sem voru hlynntir sam­ein­ingu. Næst­vin­sælasta til­lagan var sam­ein­ing Reykja­víkur og Sel­tjarn­ar­ness, en 14% hlynntra nefndu hana.

Svar­endur könn­un­ar­innar voru 500 tals­ins og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dregin eru með slembivali úr þjóð­skrá og svarar á net­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár