Trump segir Þýskaland vera „fanga Rússa“

Banda­ríkja­for­seti byrj­aði leið­toga­ráð­stefnu NATO með hörðum orðum í garð Þýska­lands og ann­arra banda­lags­þjóða.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Jens Stoltenberg aðalritari Sameinuðu þjóðanna í Brussel fyrr í dag.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Jens Stol­ten­berg aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna í Brussel fyrr í dag. Mynd: EPA

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti gagn­rýnir Þýska­land vegna við­skipta við Rússland og önnur banda­lags­ríki fyrir lág fjár­fram­lög á leið­toga­ráð­stefnu Atla­hafs­banda­lags­ins í morgun. Þetta kemur fram í fréttum á vef Guardian og New York Times.

Ráð­stefnan, sem hófst í dag í Brussel, er árlegur við­burður leið­toga banda­lags­þjóð­anna og stendur yfir í tvo daga. Útlit er fyrir að ráð­stefnan í ár verði sú umpólað­asta í 69 ára sögu banda­lags­ins, en sam­kvæmt Guardian hafa þær venju­lega verið reglu­bundnar og fylgt fyr­ir­fram ákveð­inni dag­skrá.

Á morg­un­verð­ar­fundi með Jens Stol­ten­berg, aðal­rit­ara sam­tak­anna, í morgun gaf Trump hins vegar til kynna að annað væri uppi á ten­ingnum í ár, en þar gagn­rýndi hann harð­lega þýsku rík­is­stjórn­ina fyrir orku­við­skipti sín við Rússland og sagði hana vera „fanga Rússa.“ Banda­ríkja­for­set­inn sagði það vera „mjög sorg­legt“ og „óvið­eig­andi“ að Þýska­land stundi slík við­skipti á tímum sem við ættum að vera á varð­bergi gagn­vart Rússum. „Það ætti aldrei að hafa mátt ger­ast,“ bætir Trump við. „Þýska­land er algjör­lega stjórnað af Rúss­landi þar sem þeir munu fá 60-70% orku sinnar þaðan auk nýrrar leiðslu.“

„Óviðeigandi“ samband

Samband Þýska­lands við Rússland var ekki eina málið sem Trump fannst „óvið­eig­andi,“ en for­set­inn gagn­rýndi einnig lítil fjár­fram­lög Þýska­lands til sam­bands­ins miðað við Banda­ríkin. Samkvæmt Trump nema árlegar greiðslur Þjóð­verja til NATO rúm­lega einu pró­senti af lands­fram­leiðslu þeirra, sam­an­borið við 4,2 pró­sent í til­felli Banda­ríkj­anna.

Í því sam­bandi beindi Trump sjónum sínum einnig að öðrum löndum. „Mörg lönd eru ekki að borga það sem þau ættu að borga, en í sann­leika sagt skulda mörg þeirra okkur gíf­ur­legar upp­hæðir til langs tíma,“ sagði Trump á fund­inum í morgun, sam­kvæmt New York Times. „Hvað mig varðar eru þau að brjóta af sér þar sem Banda­ríkin hafa þurft að borga fyrir þau.“

Samkvæmt frétt Guardian frá því í gær höfðu leið­togar ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (e. NATO) haft áhyggjur af áherslum Trump á ráð­stefn­unni, ann­ars vegar vegna mis­ræmis í fjár­fram­lögum ríkj­anna og hins vegar vegna fyr­ir­hug­aðs fundar við Vladimir Putin for­seta Rúss­lands í næstu viku. Trump hefur einnig áður lýst yfir óánægju sína á litlum fjár­stuðn­ingi NATO-ríkja, en í gær birti hann Twitter færslu þar sem ein­fald­lega stóð: „NATO-ríki eiga að borga MEIRA, Banda­ríkin eiga að MINNA. Mjög ósann­gjarnt!“ Færsluna má sjá hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár