Nýtt vopnakapphlaup í uppsiglingu

Tveir stórir vopna­samn­ingar milli mátt­ug­ustu ríkja heims hafa rofnað á síð­ustu árum og útlit er fyrir að fleiri þeirra muni enda á næst­unni. Hern­að­ar­sér­fræð­ingar ótt­ast þess að nýtt vopna­kapp­hlaup sé í vændum á milli ríkja í óstöð­ugu valda­jafn­vægi.

Óttast er að framleiðsla meðaldrægra kjarnorkuflauga aukist í Bandaríkjunum, Rússlandi og Kína.
Óttast er að fram­leiðsla með­al­drægra kjarn­orkuflauga auk­ist í Banda­ríkj­unum, Rúss­landi og Kína. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hefur verið iðin við að segja sig úr alþjóð­legum samn­ingum og hótað frek­ari úrsögn, fari önnur ríki ekki að skil­málum hennar. Nýriftur samn­ingur við Rússland er tal­inn skapa vett­vang fyrir vopna­kapp­hlaup, sem nú þegar virð­ist vera í start­hol­unum, en óvíst er hvort nýr vopna­samn­ingur náist sem myndi halda her­gagna­fram­leiðslu í skefjum.

INF samningurinn

Síðasti föstu­dagur mark­aði form­leg enda­lok vopna­samn­ings milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna um bann á fram­leiðslu með­al­drægra kjarn­orkuflauga. Sam­komu­lagið, sem í dag­legu tali er kallað INF, var sett á árið 1987 og var mik­il­vægur þáttur í enda­lokum Kalda stríðs­ins á níunda ára­tugnum.

Hins vegar hefur samn­ing­ur­inn verið í upp­námi á síð­ustu árum. Banda­ríkja­stjórn ásak­aði rík­is­stjórn Rúss­lands um að hafa gengið á bak orða sinna með æfinga­skotum árið 2014. Samkvæmt tals­mönnum Banda­ríkja­hers hafa Rússar fram­leitt teg­und kjarn­orkuflaugar sem sér­fræð­ingar telja að geti verið skotið upp í um 2 þús­und kíló­metra fjar­lægð frá áfanga­stað. Rússar neit­uðu ásök­unum og svör­uðu með því að ásaka Banda­ríkja­menn um að hafa gerst sjálfir brot­legir á samn­ingnum.

Hvorugt ríkið hefur birt sann­anir um brot á samn­ingnum opin­ber­lega, en NATO tók undir með Banda­ríkja­mönnum á aðal­fundi þeirra í fyrra­sumar. Þar sögðu tals­menn hern­að­ar­banda­lags­ins meint brot Rússa vera „senni­leg­asta túlk­unin“ á þau gögn sem þeir bjuggu yfir.

Í októ­ber í fyrra hót­aði svo Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna því að rifta samn­ingnum við Rússland vegna meintra brota, svari rík­is­stjórn Rúss­lands ekki kröfum þeirra. Rússland stóð fast í sinni afstöðu og svo fór að Trump til­kynnti end­an­lega að sam­komu­lag­inu yrði rift með hálfs árs fyr­ir­vara síð­asta febr­úar.

Ekki fyrir hernaðarskuldbindingar

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem sitj­andi Banda­ríkja­for­seti ger­ist kröfu­harð­ari í hern­að­ar­málum á alþjóða­vett­vangi. Á leið­toga­fundi NATO í fyrra lét for­set­inn í veðri vaka að Banda­ríkin segðu sig úr hern­að­ar­banda­lag­inu ef hin aðild­ar­ríkin myndu ekki auka fjár­veit­ingar sínar í það. Einnig lét hann rifta svoköll­uðum kjarn­orku-samn­ingi við Íran í maí í fyrra, en samn­ingnum var ætlað að stemma stigu við kjarn­orku­fram­leiðslu lands­ins.

Eftir nýliðin samn­ings­slit milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna er aðeins einn vopna­samn­ingur í gildi milli land­anna, sem ber heitið New Start. Sá samn­ingur kveður á um hámarks­fjölda kjarn­orku­odda í hvoru land­inu, en sam­kvæmt blaða­manni Al Jazeera er útlit fyrir að að honum ljúki án end­ur­nýj­unar árið 2021.

Vopnakapphlaup í uppsiglingu?

Sér­fræð­ingar í hern­að­ar­málum segja riftun hern­að­ar­samn­inga Banda­ríkj­anna við Rússland auka lík­urnar á alþjóð­legu vopna­kapp­hlaupi. Banda­ríkja­for­seti virð­ist einnig hafa haft vopna­kapp­hlaup í huga, en í rök­stuðn­ingi sínum fyrir ætl­aða riftun INF samn­ings­ins í fyrra sagði hann það vera ósann­gjarnt að Kína væri ekki hluti af hern­að­ar­sam­komu­lag­inu. Banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið hefur fylgst með vopna­fram­leiðslu þar í landi, en sam­kvæmt árs­gam­alli skýrslu þaðan hafa umsvif Kín­verska hers­ins vaxið ört á und­an­förnum árum. Meðal ann­ars hafa Kín­verjar bætt við eld­flaugum í vopna­búr sitt, sem myndu gera Banda­ríkj­unum erfitt fyrir ef til stríðs kæmi milli land­anna.

„Það er ástæða fyrir því að Kína og aðrir séu með þær, og það er ástæða fyrir því að Rússland sé að þróa þær,“ segir kjarn­orku­sér­fræð­ingur um eld­flaug­arnar í við­tali við vef­mið­il­inn Vox.

Alþjóð­legt vopna­kapp­hlaup virð­ist því vera í start­hol­unum. Til að mynda sagð­ist Mark Esper, varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, vilja flytja með­al­drægar eld­flaugar til Austur-Asíu núna um helg­ina, rétt eftir að samn­ingnum við Rússland hafði verið rift. Aðspurður hvort vopna­kapp­hlaup sé í vændum, svar­aði utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands því að valið væri í höndum Banda­ríkj­anna. Hins vegar bætti hann við að ef til vopna­kapp­hlaups kæmi myndu Rússar aldrei tapa.

Hins vegar, þrátt fyrir fyrri yfir­lýs­ingar, er ekki víst hvort yfir­völd í Banda­ríkj­unum og Rúss­landi vilji taka þátt í vopna­kapp­hlaupi. Banda­ríkja­for­seti hefur lýst því yfir að hann vilji gera nýjan vopna­samn­ing og fá Kína að samn­inga­borð­inu. Rússnesk yfir­völd hafa einnig lýst því yfir að þau vilja halda núgild­andi samn­inga í heiðri, þrátt fyrir ásak­anir um meint samn­ings­brot á INF.

Annað mál gildir um Kína, en tals­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar í landi gaf út yfir­lýs­ingu í síð­ustu viku þess efnis að „Kína muni á engan hátt sam­þykkja fjöl­hliða INF samn­ing“. Samkvæmt stjórn­mála­fræð­ingnum Chris Miller útskýrist tregða Kínverja við að ná samn­ingi um stöðvun á fram­leiðslu slíkra vopna á því að vopna­búrið þeirra er ekki jafn­stórt og í Banda­ríkj­unum eða Rúss­landi.

Riftun hern­að­ar­samn­inga gæti því leitt til vopna­kapp­hlaups milli þriggja valda­mestu þjóða heims­ins, fari svo að ein­hver þeirra vilji ekki ná nýju sam­komu­lagi innan skamms. Þó er lík­legt að Banda­ríkin og Rússland vilji leita ann­arra leiða, en óvíst er með Kína, sem gæti viljað auka fram­leiðslu sína á eld­flaugum þar til við­kvæmu jafn­vægi er náð við hin tvö ríkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

putin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár