Segir rannsókn á afskiptum Rússa á kosningunum mistök

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti ræddu erfið sam­skipti ríkj­anna á einka­fundi í Helsinki í dag. Trump segir að rann­sókn Banda­ríkja­manna á meintum afskiptum Rússa af for­seta­kosn­ing­unum vera mis­tök.

Fundi Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta í dag í Helsinki í Finn­landi er lokið. For­set­arnir rædd­ust við eins­lega í tvær klukku­stundir, en áætlað var að fund­ur­inn ætti að standa í eina og hálfa klukku­stund.

[links]Pútín var seinn á fund­inn þar sem komu hans til borg­ar­innar seink­aði. Að loknum einka­fundi þeirra kolleg­anna hófst fundur þeirra með emb­ætt­is­mönnum ríkj­anna tveggja.

Trump og Pútín héldu síðan blaða­manna­fund í for­seta­höll­inni að lok­inni funda­lot­unni. Pútín sagði fund­inn hafa gengið vel og verið gagn­legur. Þeir hafi rætt efna­hags­mál, örygg­is­mál og sam­skipti ríkj­anna tveggja og hvernig mætti bæta þau. Samtal hans við Trump sé mik­il­vægt til að ræða mik­il­væg mál, þó þeir hafi ekki náð að ræða öll mál sem þeir hefðu viljað. Þá ætla þjóð­irnar tvær að stofna ráð sér­fræð­inga um örygg­is­mál.

Trump sagði deilur milli ríkj­anna tveggja vel þekktar. Sam­skipti ríkj­anna hafi aldrei verið verri en fyrir fund­inn, en þau hafi verið rædd með að það mark­miði að bæta þau. Trump sagð­ist hafa rætt við Pútín um meint afskipti Rússa af for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum en hann sverji af sér öll afskipti af þeim. Trump sagði einnig að rann­sókn á afskiptum Rússa af kosn­ing­unum hefði verið mis­tök - hann hafi unnið Hillary auð­veld­lega.

„Við höfum tekið fyrsta skrefið að bjart­ari fram­tíð,“ sagði Trump um fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

putin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár