Trump og Pútín hittast loksins í Helsinki

Yfir stendur fyrsti leið­toga­fundur Donalds Trump og Vladimir Pútín í Helsinki. Þrátt fyrir vilja beggja leið­toga um að vilja bæta sam­skipti sín á milli er búist við erf­iðum fundi þar sem mikið hefur gengið á í sam­skiptum ríkj­anna á und­an­förnum miss­erum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladimir Pútín Rússlandsforseti
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti Mynd: samsett

Þessa stund­ina stendur yfir leið­toga­fundur Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta og Vladimir Pútin for­seta Rúss­lands í Helsinki í Finn­landi. Þetta er fyrsti opin­beri fundur leið­tog­anna tveggja, en Rússar hafa legið undir ásök­unum fyrir að hlut­ast til í banda­rískum stjórn­málum.

Fyrir tæpum tveimur tímum síðan lenti Pútín í Helsinki til fundar við Trump, um það bil klukku­tíma á eftir áætlun. Til stendur að ræða sam­band ríkj­anna tveggja sem Trump sagði aldrei hafa verið verra í Twitter-færslu sinni fyrr í morgun. Báðir leið­togar virð­ast opnir fyrir vin­sam­legri sam­skiptum ríkj­anna sinna á milli, en að mati stjórn­mála­skýrenda er fund­ur­inn í sjálfu sér ákveð­inn sigur fyrir stjórn­völd í Kreml þar sem með honum verði Rússland við­ur­kennt sem stór­veldi sem ekki sé hægt að hunsa.

Erfiður fundur

Rússnesk stjórn­völd hafa nú þegar gefið til kynna að þau muni búast við erf­iðum fundi. Meðal ann­ars töldu þau að Trump muni þurfa að svara fyrir gagn­rýni sína á lagn­ingu rúss­neskra gasleiðsla til Þýska­lands á leið­toga­fundi NATO í síð­ustu viku, en einnig verði erfitt að finna sam­eig­in­legan grund­völl í mál­efnum Sýrlands vegna mis­mun­andi sam­skipta ríkj­anna við Íran. „Auðvitað verður staða Sýrlands rædd milli tveggja for­set­anna,“ sagði Dmitry Peskov, tals­maður Kremlar, í við­tali við rúss­neska frétta­mið­il­inn RT. „Við vitum öll hvað Washington finnst um Íran. En á sama tíma er Íran mik­ill sam­herji okkar í við­skiptum, sam­vinnu í efna­hags­málum og póli­tískri orð­ræðu.“ [adspot]

Hins vegar vona Rússar að fund­ur­inn verði fyrsta skref ríkj­anna í að kom­ast úr lægð í sam­skiptum sín á milli. „Rússland og Banda­ríkin bera sér­staka ábyrgð á að við­halda friði og stöð­ug­leika í heim­inum, sér­stak­lega í okkar tveimur löndum,“ bætti Peskov við.

Ákæran „gefin út til að skemma fyrir“

Síð­ast­lið­inn föstu­dag gaf emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara í Banda­ríkj­unum út ákæru á hendur 12 rúss­neskra G.R.U. leyni­þjón­ustu­manna vegna tölvu­árásar á flokks­þingi Demókra­ta­flokks­ins og for­seta­fram­boðs Hillary Clinton. Ákæran telur 29 blað­síður og er hún ítar­leg­asta ásökun banda­rískra stjórn­valda gegn yfir­völdum í Kreml vegna íhlut­unar í for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2016. Meðal þess sem ákært er fyrir er ara­grúi lít­illa aðgerða sem áttu að ala á óreiðu í aðdrag­anda kosn­ing­anna.

[links]Ákæran, sem er í ell­efu liðum, telur að sam­særi hafi átt sér stað milli G.R.U. starfs­manna og ann­arra, sem beindu spjótum sínum að Demókra­ta­flokknum og fram­boði Clinton. Samkvæmt New York Times hafa nú nær allar banda­rískar stofn­anir sem komið hafa nálægt rann­sókn á mál­inu haldið því fram að erlend öfl hafi hlut­ast til í síð­ustu for­seta­kosn­ing­unum. Þrátt fyrir það lýsir yfir­maður stofn­an­anna og for­seti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, enn yfir efa­semdum sínum um að nokkuð grun­sam­legt hafi átt sér stað.

Trump hefur áður haldið því fram að athygli Banda­ríkja­manna á íhlutun Rússa í for­seta­kosn­ing­unum væri ein­ungis flokkspóli­tískar ásak­anir sem erf­ið­uðu honum að bæta sam­band sitt við Pútín. Í kjöl­far ákærunnar hélt utan­rík­is­ráðu­neyti Rúss­lands því fram að hún væri ein­ungis gefin út á þessum tíma til að skemma fyrir leið­toga­fund­inum.

Sama stofnun í Skripal-málinu

Íhlutun rúss­nesku leyni­þjón­ust­unnar G.R.U. á Vest­ur­löndum gæti náð til fleiri landa en Banda­ríkj­anna, en bresk yfir­völd telja hana líka bera ábyrgð á tauga­eit­ursárás­ina í Bret­landi gegn fyrrum rúss­nesks njó­sn­ara síð­ast­lið­inn mars.

Breskir rann­sókn­ar­menn trúa því að árásin, sem var gegn fyrrum njósn­ar­anum Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu, hafi að öllum lík­indum verið fram­kvæmd af núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­mönnum G.R.U. Þetta hefur New York Times eftir þremur opin­berum starfs­mönnum sem tengj­ast rann­sókn Breta á árásinni.

Að sögn New York Times eru bresk yfir­völd nálægt því að bera kennsl á ein­stak­ling­ana sem réð­ust á Sergei og Yuliu, en hafa þó ekki úti­lokað mögu­leik­ann að önnur rúss­nesk leyni­þjón­usta eða einka­stofa standi að baki aðgerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

putin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár