Leynistríð Pútíns

Rætt við höf­und nýrrar bókar um leyni­stríð Pútíns.

„Ég held að eðl­is­á­vísun Vladimir Pútins segi honum að til þess að halda völdum hafi hann komið af stað risa flóð­bylgju. Þessar til­finn­ingar , að vera nið­ur­lægður, stór­veld­is­draumar og minni­mátt­ar­kennd. Þetta var allt til staðar en sem und­ir­alda og nú hefur Pútin með sínum stöðuga áróðri breytt því í risa­flóð­bylgju. Hann situr efst á henni og ég sé enga leið fyrir hann niður og held að hann geri það ekki heldur. Hann verður bara að sjá til þess að flóð­bylgjan sé á hreyf­ingu því um leið og hún brotnar hrynur allt.”

Segir þýski blaða­mað­ur­inn Boris Reitschuster höf­undur „Leyni­stríðs Pútíns” auk fleiri bóka um Rússland.

Án tengsla við Rússland fór Reitschuster þangað sautján ára sem skiptinemi og heill­að­ist af land­inu og tungu­mál­inu. Frá 1999 til 2015 stýrði hann skrif­stofu þýska frétta­tíma­rits­ins Focus í Moskvu. Síðustu árin frá Berlín, því eftir morð­hót­anir varð hann að yfir­gefa Rússland ásamt fjöl­skyldu sinni árið 2012. Þá hafði hann skrifað bók­ina „Pútínokratie” sem fjall­aði um við­skipti Pútíns og félaga. Nettröll birtu heim­il­is­fang hans og hvöttu fólk til að fara og mis­þyrma honum. Einnig voru greinar gegn honum í stærstu rík­is­blöð­unum þar sem meðal ann­ars var sagt: „Það hlýtur að vera afi hans sem sagði Hitler að fara í stríð við Stalín.” Um það bil á þessu plani og oft lægra fór og fer umræðan fram.

Reitschuster til­einkar vini sínum Boris Nemtsov og öðrum sem misst hafa lífið vegna and­ófs í Rúss­landi, bók­ina. Hann telur sér þó ekki ógnað af stjórn­völdum í Kreml heldur af öfga­hópum sem trúa áróðri rík­is­fjöl­miðla og taka lögin í eigin hendur.

Í dag býr Reitschuster í Berlín og starfar sem óháður höf­undur og er tíður gestur í þýskum sjón­varps­þáttum vegna þekk­ingar sinnar um Rússland og er verð­laun­aður fyrir skrif sín.

Ég fór að hlusta á hann kynna .....aber unsere Misere ist hauselan. Er ist takti­ger kein Stratege deka­dent hält, gna­den­los aus.....aber unsere Misere ist haus­bók­ina „Putins Verdeckter Krieg” eða Leyni­stríð Pútíns á Múr­safn­inu í Berlín í apríl.

Hann byrj­aði á því að kynna einn gest­anna í troð­fullum salnum. Marinu Lit­vinenko ekkju Alex­and­ers Lit­vinenko fyrrum með­lim KGB sem gerð­ist helsti gagn­rýn­andi Vla­dimirs Pútíns.

Borist Reitschuster spurði yfir hóp­inn: „Í hvaða landi fær maður sem myrðir með póló­in­íum sæti á þing­inu og orðu frá for­set­anum?”

Hann átti þar við að Pútin hafði veitt fyrrum KGB mann­inum Andrey Lugavoy orðu fyrir störf sín skömmu eftir að dóm­ari í London sann­aði sekt hans og sagði Pútín hafa fyr­ir­skipað morðið.

Í bók­inni segir Boris Reitschuster frá því hvernig Pútín noti gamlar aðferðir KGB og Stasi en nýti sér vest­ræna tækni og fjöl­miðla og almanna­tengla. Nettröll starfa á vegum Kreml í Rúss­landi og Þýska­landi og sjón­varps­stöðvar eins RT sjái um áróð­ur­inn. Russia Today sendir út á fjölda tungu­mála til 600 millj­óna áhorf­enda um allan heim. Það þarf ekki kunn­áttu í fjöl­miðla­fræðum til að sjá í gegnum „frétta­menn” og fjölda við­mæl­enda sem ýmist stað­festa stefnu RT eða rugla áhorf­endur í rím­inu kynda undir ótta og stýra til­finn­ingum í átt heims­myndar sem hentar Kreml. Útgáfa þeirra af raun­veru­leik­anum er nokkurn vegin þessi; að heim­ur­inn vilji Rúss­landi illt og að Pútín geri allt til að verja landið gegn hinum illu Banda­ríkjum og Evrópu. Í bók­inni má lesa að sam­kvæmt fréttum og athuga­semdum rúss­neskra nettrölla þá er ekki hægt að fara lengur út á götu í Þýska­landi án þess að verða fyrir áreiti flótta­manna. Búið að setja ótrú­leg­ustu lög og bráðum verði fólk að flytja úr íbúðum sínum á göt­una til að rýma fyrir flótta­fólki. Þegar lygum er póstað og sjón­varpið elur stöðugt á ótta og for­dómum fólks hefur það áhrif.

Ég ræddi við Reitschuster í Berlín.

Af hverju skrif­aðir þú þessa bók?

„Pútín og helm­ingur stjórn­enda í kringum hann koma úr leyni­þjón­ust­unni KGB nú FSB. Hug­mynda­fræðin er að halda völdum. Allt eða ekk­ert. Hann á of marga óvini og hefur brotið of mikið af sér til þess að geta sest í helgan stein. Því skiptir máli að benda á hvernig mafíu­ríki Rússland er í dag og ástæðu fyrir öfga­fullri utan­rík­is­stefnu. Pútín þarf á utan­að­kom­andi óvini að halda. Til þess að leiða huga rúss­nesku þjóð­ar­innar frá: Spill­ingu, valda­mis­notkun og vax­andi fátækt.

Árið 2012 varð ég að flytja frá Rúss­landi vegna hót­ana . Eftir her­nám Krimskag­ans sá ég öll þessi nettröll hérna í Þýska­landi og hugs­aði að það var nákvæm­lega þetta sem ég flúði frá en nú er það komið hingað. Þá fór ég skoða þetta og sjá sam­hengið. Þegar ég tók þetta saman fyrir bók­ina var ljóst að þetta getur ekki allt verið til­viljun. Svo margar teng­ingar í Þýska­landi. Elsesser Kreml­ar­predik­ari, Tíma­ritið Compakt, allar þessar Netsíður, Dugin, AFD og tengsl Rúss­lands við Pegida. Þetta er köngu­ló­ar­vefur og maður þarf bara að skoða smá­at­riðin. Eftir fjölda sam­tala við fyrrum íbúa DDR Aust­ur­þýska­lands og mann­rétt­inda­sam­tök kom mér nokkuð á óvart sem ég hafði ekki hug­mynd um áður.“

Hvað var það?

„Að þetta eru nákvæm­lega sömu áróð­urs­að­ferðir og á tímum DDR. Ég vissi þetta ekki þó ég hefði átt að gera það sem sér­fræð­ingur um Rússland en við vorum búin að gleyma þessu. Það er ekk­ert nýtt að koma höggi á fjöl­miðla. Nú eru það nettröll áður voru það les­enda­bréf. Að hafa áhrif á borg­ara­hreyf­ingar. Að fjár­magna stjórn­mála­flokka. Að skemmd­ar­verk eru unnin. Áður studdu austur þýsk stjórn­völd vest­ur­þýska hryðju­verka­menn. Við vissum það ekki fyrr en múr­inn féll. Ég er ekki að segja að þeir styðji hryðju­verka­menn en nauð­syn­legt að skoða það í ljósi sög­unnar.“

Hver eru við­brögðin við bók­inni?

„Fyrst var tölvu­póst­hólfið hakkað. Heima­síðan lá niðri, og það ber­ast mörg hat­urs­bréf. Þessa dag­ana er mikið skrifað á þær áróð­urs­síður hér í Þýska­landi sem ég nefni í bók­inni. Þar stendur að ég sé bil­aður á geði og fleira í sígildum KGB stíl. Alger­lega fjar­stæðu­kennt en ég átti von á þessu, tölvu­pósti og ýmsu á Facebook. En ég er orð­inn nokkuð rólegur því nei­kvæðu við­brögðin sýna að ég hef rétt fyrir mér. Hluti af kerf­inu sem ég nefni í bók­inni eru árásir á gagn­rýnendur bæði yfir og undir belti. Ég held að Pútín trúi því í alvöru að það sé plott í gangi gegn honum og heims­sam­ráð . Angela Merkel orð­aði það vel þegar hún sagði við hann: Vladimir Vlaidmirovitsch þú mátt ekki halda að allur heim­ur­inn hugsi um það frá morgni til kvölds hvernig þeir getir skaðað Rússland.”

Hvers vegna heldur þú að Pútín reki áróður í Evrópu?

„Þetta fjallar um að koma Evrópu úr jafn­vægi. Þýska­land er lyk­ill­inn. Tak­markið núna er að koma Merkel frá völdum eða veikja mjög. Því Merkel er sú sem ákveður hvort við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi verði haldið áfram. Til langs tíma litið vill Pútin eyði­leggja Evr­ópu­sam­bandið eins og það er í dag og breyta í Evrópu-Asíu sam­tök undir for­ystu Rúss­lands. Því styður hann hægri öfga­flokka eins og National Front Marine Le Pen og fleiri í Evrópu.“

Í Þýska­landi búa um 3 millj­ónir rúss­nesku­mæl­andi og margir horfa á RT og aðrar rúss­neskar rík­is­stöðvar. Eftir að stríð rússa í Úkraínu hófst hefur áróð­ur­inn verið skrúf­aður upp en fáir í Þýska­landi höfðu leitt hug­ann að því, fyrr en „Lisu-Atvikið” í febr­úar 2016 varp­aði ljósi á það. Skyndi­lega voru hópar fólks mættir með eins skilti að mót­mæla. Í rúss­neska sjón­varp­inu og RT var því haldið fram að ung stúlka af rúss­neskum ættum hefði verið numin á brott og nauðgað af inn­flytj­endum. Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herrar Rúss­lands bland­aði sér í málið áður en það kom í ljós að þessi „frétt” var lygi.

Í bók­inni segir þú frá Systema hvað er það?

„Ég fékk að skoða umfangs­mikil skjöl vest­rænnar leyni­þjón­ustu. Systema er klúbbur þar sem Rússnesk bar­daga­tækni er stunduð. Slík íþrótta­fé­lög voru stofnuð á und­an­förnum árum í Vestur-Evrópu. Leið­bein­endur eru að mestu fyrrum bar­daga­menn rúss­neskra sér­sveita. Þessi klúbbur dregur til sín fólk eins og lög­reglu­menn eða örygg­is­verði sem tengj­ast Rúss­landi. Þeir eru sendir til Moskvu og læra þar á sprengi­efni og vopn. Bara í Þýska­landi hafa 200 til 250 manns gengið í gegnum þessa þjálfun.

Ég var nýlega í Moskvu og hitti þar þing­mann úr stjórn­ar­and­stöðu og hann sagði að í Rúss­landi getur eng­inn ímyndað sér að Þjóð­verjar eða íbúar ann­ara landa þrái ekki nema ný land­svæði. Rússar gera sér ekki grein fyrir því að Þjóð­verjar hafa engan áhuga á Kal­in­ingrad og að meðal Þjóð­verj­inn vill bara alls ekki her­nema land. Þetta eru tveir alger­lega ólíkir hugs­un­ar­hættir. Eins og sam­tal á milli lambs og úlfs.”

Í nýlegu við­tali við í Deutschlandradio var sagt við þig : „En þetta gera Amer­ík­anar líka” algengur í Þýska­landi hvernig líkar þér hann?

„Hún er hræði­leg þessi heimska og gleymska sög­unnar. Ég er ekki neinn sér­stakur Amer­íku­vinur og lít mjög gagn­rýnum augum á það sem ger­ist þar. En Banda­ríkin gættu þess að Vest­ur­þýska­land nyti lýð­ræðis í 50 ár. Moskvu­stjórnin aftur á móti sá til þess að Aust­ur­þýska­land varð 45 ára ein­ræð­is­ríki. Svo virð­ist sem fjöldi Þjóð­verja hafi gleymt þessu eða afneiti . Ef við Þjóð­verjar höfum lært eitt­hvað af fas­ism­anum þá er það að styðja ekki ein­ræð­is­ríki heldur lýð­ræði sem byggir á lögum. En þegar maður skoðar það hversu mikið fylgi Pútín hefur hér.”

Bæði langt úti á vinstri og hægri kantinum?

„Einmitt hjá and­stæð­ingum lýð­ræð­is­ins og þegar ég sé fjöld­ann þá verð ég hræddur og spyr mig hversu árang­urs­ríkt upp­gjörið við nas­is­mann var í raun og veru. Það gerir mig í alvöru ótta­sleg­inn. Rök þeirra sýna að margir skilja ein­fald­lega ekki hvað ein­ræði er. Það ætti vera það mik­il­væg­asta sem við hefðum átt að hafa lært af nas­ism­anum og frá DDR. En grein­lega hafa margir ekki lært neitt og það hræðir mig. Þetta stefnir allt í þessa átt. 25 % pró­sent fylgja AFD (Alt­ernativ für Deutschland öfga­hægri­flokkur) í Mecklenburg Vor­pommern. Allir þessir „Pút­in­ver­steher” þeir sem skilja Pútín, er þróun sem ég tel mjög alvar­lega. Þetta hljómar kannski illa en á ein­hvern hátt get ég skilið að NSA hafi hlerað þýska stjórn­mála­menn. Að sjálf­sögðu hafa þeir ekki allir átt það skilið en þegar ég skoða menn eins og Gerhard Schröder þá verð ég að segja að ég skil að Banda­ríkja­menn vilji hlera hann.”

Í bók­inni notar Reitschuster hug­takið „Schröderisierung” en þar vísar hann í und­ir­gefni fyrrum Kanslara Þýska­lands Gerhards Schröders og ann­ara þýskra stjórn­mála­manna gagn­vart Kreml. Schröder er náinn vinur Pútíns og nokkrum vikum eftir að hann hvarf úr emb­ætti sínu sem kansl­ari var hann kom­inn í feit laun frá Gazprom sem stjórn­ar­for­maður í Nord Stream sem byggði gasleiðslu í Eystr­ar­salti. Hann segir frá rúss­neskum „Hun­angs­gildrum” sem fleiri þýskir stjórn­mála­menn eins og Horst Seehofer hafa gengið í og eru því háðir Kreml.

Þú hefur hitt Vladimir Pútín , hvernig virk­aði hann á þig?

„Það var snemma á for­seta­ferli hans og hann var næstum því feim­inn. Hann reyndi að grín­ast um að ég ætti rúss­neska konu og þær væru svo erf­iðar en tók það svo aftur og bað mig um að skrifa það ekki. Þá vissi hann og aðrir að hann væri ekki með kímni­gáfu. En eftir 16 ára setu á valda­stóli eru allir að dásama og hlægja í kringum hann. Því er hann far­inn að segja fleiri brand­ara ,mjög lélega sem eru alls ekki fyndnir, en allir hlægja og það er oft mjög vand­ræða­legt. Ég held burt­séð frá Pútín þá væri þetta vanda­mál fyrir hvern sem er. Jafnvel í lýð­ræð­is­ríkjum er þetta vanda­mál eins og hjá Helmut Kohl fyrrum kansl­ara sem var 16 ár við völd. Þá missir maður tengslin við raun­veru­leik­ann. Í ein­ræð­is­ríkjum auð­vitað er það öfga­fyllra því það er eng­inn sem gagn­rýnir hann og ég held að Vladimir Pútín sem ein­fald­lega að fjar­lægj­ast raun­veru­leik­ann og lifir í eigin heimi. “

Í bók­inni gagn­rýnir þú þýska stjórn­mála­menn eftir fall Sov­ét­ríkj­anna.

„Mistökin voru að loka aug­unum fyrir öllu því sem Boris Jeltzin gerði rangt og þegar hann braut lýð­ræð­is­reglur. Þannig studdu vest­ur­lönd fram­vöxt þess sem við sjáum í dag. Ég tel að á þessum tíma hafi mörg tæki­færi glat­ast. Ef leið­togar vest­ur­landa væru klókir ættu þeir nú þegar að velta fyrir sér sam­eig­in­legri stefnu gagn­vart land­inu eftir að Pútín hverfur frá völdum. Þannig að í þetta sinn verði ein­hvers­konar Mars­hall­að­stoð og ekki það sem rússar upp­lifa sem nið­ur­læg­ingu. Þetta ætti í raun að vera á dag­skránni núna. Hugsa þrjú skref fram í tím­ann og vera til­bú­inn fyrir tím­ann eftir Pútín.”

Nú eru við­skipta­hindr­anir, olíu­verð lágt og efna­hag­skrísa en Vladimir Pútin mætir að sjá eld­flaug skotið á loft.

„Já ég heyrði nýlega aftur gamla sov­éska brand­ar­inn . Barnið segir við pabba sinn. alkó­hólist­ann:„Pabbi vod­kinn er orð­inn dýr­ari, ætlar þú þá að drekka minna?” Og pabb­inn svarar: „Nei nei, en þú færð minna að borða.” Og nákvæm­lega þannig er það í Rúss­landi núna, meira sett í geim­ferðir, her­inn og það en fólkið fær minna að borða. Hern­að­ar­út­gjöld og örygg­is­mál og opin­berir atburðir eru orðin 55% af fjár­lögum. Framlög til mennta­mála fallið frá 4,7% niður í 3,6%. Heil­brigð­is­mál frá 4.8% niður í 3%. Þetta er eig­in­lega þjóðar-sjálfs­morð. Menntun, heil­brigð­is­málum, félags­þjón­ustu, íþróttum og menn­ingu er þrýst niður og æ meira fer til stjórn­valda og her­mála, það getur ekki farið vel.”

Hvað heldur þú að sé framundan í Rúss­landi?

„Enginn spáði falli DDR allir héldu að það myndi halda áfram árum saman, það sama nú. Þetta getur tekið mörg ár en er óstöðugt. Það mun brotna og ég held að Rússland muni einnig lið­ast sundur. Spurn­ingin er bara hversu hratt og hversu blóð­ugt það verður. Því lengur sem því er haldið gang­andi með valdi því meira hætta er á blóðsút­hell­ingum þegar það hrynur saman. Þetta kerfi eins og það er á sér enga fram­tíð. Þetta er eins og skop­mynd, absúrd . Blanda af sov­éskum siðum, keis­ara­hefðum, Stalín­lof­söngvum og rúss­neska fán­anum. Þetta er eig­in­lega eins og geð­klofi þetta kerfi og því er haldið saman með ofbeldi og áróðri.

Það sem vinnur gegn and­ófs­mönnum í Rúss­landi eru leið­togar frá vest­ur­löndum sem velja að umgang­ast Pútín. And­ófs­menn segja að Pútín sé ein­ræð­is­herra en þá eru sýndar myndir í sjón­varp­inu af honum með þeim vest­rænu leið­togum sem hann hitta . Þjóð­ar­leið­togar lýð­ræð­is­ríkja eru í þessu til­viki til mik­ils gagns fyrir Pútín. Þá er það bara spurn­ingin eru þeir nyt­samir ein­feldn­ingar eða eru þeir að gæta ann­ara hags­muna eins og Gerhard Schröder?”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

putin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár