Efnt til mótmæla vegna heimsóknar Trump

Trump hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir heim­sókn sína til Dayton og El Paso í dag, tveggja borga sem urðu fyrir skotárás um helg­ina. Gagn­rýnendur segja Trump ekki vel­kom­inn þar sem orð for­set­ans hafi ýtt undir hat­urs­orð­ræðu og andúðar á inn­flytj­endum.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og Melania Trump, for­seta­frú Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, heldur til El Paso í Texas í dag, þremur dögum eftir að 21 árs árás­armaður myrti 22 og slas­aði 24 til við­bótar í Walmart stór­mark­aði. Jafn­framt mun hann halda til Dayton í Ohio fylki þar sem níu voru myrtir í skotárás, ein­ungis 13 klukku­stundum eftir árás­ina í El Paso. Trump hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir heim­sókn sína og hann sagður ekki vel­kom­inn vegna hat­urs­orð­ræðu sinnar. Til að mynda hefur Barack Obama, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna, gagn­rýnt Trump.

Hinir grun­uðu árás­ar­menn árásanna tveggja eru báðir ungir hvítir karl­menn og talið að þeir séu báðir kyn­þátta­hat­arar, þó yfir­völd hafi enn ekki stað­fest það. Fjöl­margir íbúar El Paso og Dayton eru ósáttir við heim­sókn Trump vegna ummæla hans um inn­flytj­endur og litað fólk. Gagn­rýnendur telja margir hverjir að ummæli for­set­ans hafi ýtt undir árás­irnar.

[adspot]Í El Paso búa tæp­lega 700.000 manns og er borgin við landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Í borg­inni er meiri­hluti íbúa af rómönsk-amer­ískum upp­runa. Í fyrri heim­sóknum Trump til El Paso hefur hann nýtt heim­sókn­irnar til þess að koma inn­flytj­enda­stefnu sinni á fram­færi og talað fyrir því að byggja múr á milli Mexíkó og Banda­ríkj­anna.

Heimsóknin harðlega gagnrýnd

Barack Obama, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í opin­berri yfir­lýs­ingu að Banda­ríkja­menn ættu að afneita orðum leið­toga sem ýta undir ótta og hatur og geri rasísk ummæli að venju. Beto O’Rourke, einn for­seta­fram­bjóð­enda Demókrata sem er frá El Paso, hefur einnig harð­lega gagn­rýnt Trump fyrir heim­sókn sína til borg­ar­innar. Hann sagði Trump hafa hjálpað til að skapa aðstæður líkt og áttu sér stað í El Paso á laug­ar­dag­inn og hann hafi því ekki rétt á að heim­sækja borg­ina.

Nan Whaley, borg­ar­stjóri Dayton, hefur efnt til mót­mæla gegn Trump vegna byssu­lög­gjö­far hans og segir Trump ekki vel­kom­inn. Hún sagði orð­ræðu Trump hafa verið sárs­auka­full fyrir marga í sam­fé­lagi hennar og hvatti fólk til að láta óánægju sína í ljós.

Veronica Escobar, þing­maður frá El Paso, segir Trump ekki vel­kom­inn til El Paso. Hún sagði orð­ræðu Trump hafa gert fólk af rómönsk-amer­ískum upp­runa og inn­flytj­endur ómennskt. „Orð hafa afleið­ingar. For­set­inn hefur gert mig og mitt fólk að óvin­inum,“ sagði Escobar. „Hann hefur sagt land­inu að við séum fólk sem beri að ótt­ast, sem beri að hata.“

Borg­ar­stjóri El Paso, Dee Margo, sagð­ist munu bjóða Trump vel­kom­inn til El Paso en var­aði hann við því að halda uppi röngum stað­hæf­ingum um borg­ina. Trump hefur látið þau orð falla að áður en landamæra­girð­ingu hafi verið komið upp í borg­inni hafi hún verið ein sú hættu­leg­asta í Banda­ríkj­unum.

Repúblík­anar í El Paso hafa sakað Demókrata um að gera heim­sókn Trump að póli­tískum við­burði sem hagn­ist þeim sjálfum.

Yfirlýsing árásarmannsins birt á netinu

Hinn 21 árs hvíti árás­armaður í El Paso er í haldi lög­reglu í Texas, en þar­lend yfir­völd hafa ekki gefið út nafn hans. Talið er að árás­armað­ur­inn í hafi birt á net­inu yfir­lýs­ingu sína sem hann hafi til­kynnt um fyr­ir­hug­aða árás sína og sé full andúðar á inn­flytj­endum. Árásin er jafn­framt rann­sökuð sem mögu­legur hat­urs­glæpur.

Í yfir­lýs­ing­unni skrifar höf­und­ur­inn að um „inn­rás“ fólks frá Mexíkó til Banda­ríkj­anna sé að ræða. Nokkuð sem Trump hefur sagt fjöl­mörgum sinnum í ræðum sínum. Trump hefur ekki rætt yfir­lýs­ingu árás­armanns­ins opin­ber­lega og hefur Trump ekki viljað herða byssu­lög­gjöf í Banda­ríkj­unum þannig að skoðað verði bak­grunn fólks sem vill kaupa skot­vopn.

Talið er að árás­armað­ur­inn hafi birt skjalið á heima­síðu 8chan, öfga-hægri spjall­síðu. Síðan er þekkt fyrir afar bíræfin rasísk ummæli. Verði stað­fest að árás­armað­ur­inn í El Paso hafi skrifað hina umræddu yfir­lýs­ingu væri það þriðja yfir­lýs­ingin um fyr­ir­hug­aða árás sem birt­ist á 8chan á innan við fimm mán­uðum.

Samkvæmt the Guardian stendur í yfir­lýs­ing­unni að árásin eigi að vera „svar við inn­rás fólks af rómönskum upp­runa í Texas.“ Jafn­framt sem höf­undur skjals­ins vildi skipta Banda­ríkj­unum upp í mis­mun­andi svæði fyrir mis­mun­andi kyn­þætti.

Bæði árás­armað­ur­inn í Christchurch og árás­armaður sem réðst á söfn­uð­ar­hús gyð­inga í Poway, Kali­forníu, birtu yfir­lýs­ingu sína á 8chan fyrir árás­ina, sam­kvæmt the Guardian.

Trump leggur til dauðarefsingu

Í kjöl­far árásanna um helg­ina ávarp­aði Donald Trump þjóð­ina í beinni útsend­ingu. Hann sagði að hann og for­seta­frúin biðji fyrir fórn­ar­lömbunum, fjöl­skyldum þeirra og þeim sem komust af. Þau muni standa með þeim um aldur og ævi.

Hann sagð­ist leggja til nýja lög­gjöf þar sem fjöldamorð­ingjar og þeir sem fremji hat­urs­glæpi standi frammi fyrir dauða­refs­ingu. Dauða­refs­ingin verði fljót, skil­virk og án óþarfa tafa.

Trump sagði árás­irnar tvær vera illar árásir sem brengluð skrímsli hafi framið. Þær séu jafn­framt glæpur gegn mann­kyn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár