Norska ríkið selur SAS

Norska ríkið seldi allan sinn hlut í flug­fé­lag­inu SAS fyrr í dag, en hluta­bréf félags­ins lækk­uðu um 3% í kjöl­farið.

Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs
Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs

Atvinnu-og sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyti Noregs til­kynnti í gær áform sín um að selja 10% hlut sinn í flug­fé­lag­inu. Í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar lækk­aði verð á hluta­bréfum félags­ins um rúm 3% við opnun mark­aða í dag.

Rík­is­stjórn Noregs og NRK greindu frá því fyrr í dag að allir útistand­andi hlutir sem norska ríkið átti í flug­fé­lag­inu væru seldir, en sölu­verðið nam 597 millj­ónum norskra króna, sem jafn­gildir tæpum 7,9 millj­örðum íslenskra króna. Fréttir af söl­unni birt­ist degi eftir til­kynn­ingu atvinnu-og sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytis Noregs þar sem áhugi rík­is­ins á að selja hlut sinn í félag­inu var til­greindur. Samkvæmt til­kynn­ing­unni segir efna­hags­ráð­herra lands­ins, Torbjørn Røe Isaksen, að rík­is­stjórnin hafi verið skýr með að eiga ekki hluti í SAS til langs tíma.

For­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Erna Solberg, sagði sömu­leiðis að salan hafi lengi legið í kort­unum og rík­is­stjórnin hafi fullt umboð til þess.

70 ára saga á enda

Með söl­unni lýkur meira en 70 ára eign­ar­sögu norska rík­is­ins á SAS. Flug­fé­lagið, sem fullu nafni heitir Scandinavian Airlines, var stofnað árið 1946 úr sam­runa opin­berra flug­fé­laga Noregs, Sví­þjóðar og Dan­merkur. Meg­in­mark­mið félags­ins var að vera í stakk búin fyrir langar vega­lengdir, en fyrsta áætl­un­ar­flug félags­ins var á milli Stokk­hólms og New York. Árið 2001 fór SAS svo á hluta­bréfa­markað í Skand­ínavíu­lönd­unum þremur, en rík­is­stjórnir land­anna áttu þá sam­an­lagt helm­ing allra hluta­bréfa fyr­ir­tæk­is­ins.

Salan hefur verið gagn­rýnd af Verka­manna­flokknum og Miðju­flokknum þar í landi, en Terje Aasland, tals­maður Verka­manna­flokks­ins, segir rík­is­stjórn­ina virð­ast ætla að selja hlut sinn til þess eins að selja. Geir Pollestad, þing­maður Miðju­flokks­ins, seg­ist hræð­ast sölu­mara­þon af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem hún muni selja út mik­il­væg fyr­ir­tæki til erlendra aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár