Ásakanir borgarfulltrúa um trúnaðarbrest brot á siðareglum

Skrif­stofu­stjóri borg­ar­stjórnar segir að listi yfir til­lögur borg­ar­full­trúa um fólk í ráð, nefndir og stjórnir hafi ekki verið trún­að­ar­mál og að ásak­anir um trún­að­ar­brest séu brot á siða­reglum.

Helga Björk Laxdal skrif­stofu­stjóri borg­ar­stjórnar telur að ákvæði um rétt­indi og skyldur kjör­inna full­trúa, sem og siða­reglur þeirra, hafi verið brotnar þegar Marta Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks sak­aði starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar um trún­að­ar­brest og brot á starfs­skyldum. Þetta kemur fram í minn­is­blaði um fram­lagn­ingu fram­boðs­lista við kosn­ingar nefnda, ráða og stjórna á vegum borg­ar­innar sem lagt var fram í gær. RÚV greindi frá í gær­kvöldi.

Í frétt­inni kemur fram að Marta hafi ekki dregið ásak­an­irnar til baka.

[links]Á fyrsta fundi borg­ar­stjórnar sem fram fór þann 19. júní síð­ast­lið­inn fór fram umræða um vinnu­lag við fram­lag fram­boðs­lista. Í ræðu Mörtu Guð­jóns­dóttur borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks við umræðu um til­lögu borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna um stofnun umhverfis- og heil­brigð­is­ráðs hélt borga­full­trú­inn því fram að fram­lagn­ing sam­eig­in­legs lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Sós­í­alista­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins í þau ráð, nefndir og stjórnir sem voru á dag­skrá borg­ar­stjórnar væri trún­að­ar­mál. Listinn inni­héldi trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem aðrir borg­ar­full­trúar ættu ekki að hafa aðgang að fyrir fund borg­ar­stjórnar.

Í minn­is­blað­inu stendur að ekki sé unnt að gera sér grein fyrir því hvað olli því að sumir borg­ar­full­trúar virt­ust halda það á fundi borg­ar­stjórnar að trún­aður gilti um marg­nefnda lista, án til­lits til skýrra ákvæða sveit­ar­stjórn­ar­laga og sam­þykkta.

„Fundir borg­ar­stjórnar eru opnir og öll fund­ar­gögn þeirra eru birt á vef Reykja­vík­ur­borgar um leið og boðað er til fundar. Þar að auki er ekki að finna nein ummerki þess í erindi borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins að um fram­lagða lista skuli gilda ein­hver trún­aður enda er hvorki tölvu­póst­ur­inn trún­að­ar­merktur né excel-skjalið sem fylgdi.

Þar að auki er vand­séð hvers vegna borg­ar­full­trú­arnir töldu efn­is­lega nauð­syn á því aðhalda nöfnum leyndum frá áhuga­sömum áhorf­endum/hlust­endum í nokkra klukku­tíma áður en kosn­ing fór fram þar sem ekki er á nokkurn hátt um að ræða við­kvæmar per­sónu­legar upp­lýs­ingar sem eigi að fara leynt,“ skrifar Helga.

Skrif­stofu­stjóri segir að listar sem þessir geti aldrei verið trún­að­ar­mál og vísar hún til sveit­ar­stjórn­ar­laga og sam­þykktar um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar. Í 16. grein sveit­ara­stjórn­ar­laga segir að fundir sveit­ar­stjórna fari fram fyrir opnum tjöldum og í 15. grein lag­anna segir að dag­skrá funda skuli fylgja fund­ar­boði, sem og þau gögn sem sveit­ar­stjórn­ar­fólk þurfi til að geta tekið upp­lýstar ákvarð­anir á fund­inum. Í sam­þykkt borg­ar­stjórnar um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar segir að þegar kosn­ingar í nefndir, ráð og stjórnir á vegum borg­ar­innar séu ann­ars vegar skuli upp­lýs­ingar um nöfn þeirra sem lagt er til að taki sæti sendar for­sætis­nefnd.

„Það er því bein­línis kveðið á um það að upp­lýs­ingar um ein­staka fram­boð skuli liggja fyrir strax þegar boðað er til borg­ar­stjórn­ar­fundar,“ segir í minn­is­blað­inu.

Lagt til að námskeið verði haldið

Helga Björk hafði óskað eftir því þann 13. júní að fá afhendan fram­boðs­lista allra flokka í síð­asta lagi kl. 14:00 föstu­dag­inn 15. júní svo hægt væri að hefja yfir­ferð þeirra með hlið­sjón af kjör­geng­is­skil­yrðum, jafn­rétt­is­sjón­ar­miðum og öðrum almennum atriðum. Hún greinir frá því að laust eftir klukkan tvö dag­inn áður, þann 12. júní, hafi henni borist fyrsta fyr­ir­spurnin frá starfs­manni borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna kosn­inga í ráð og nefndir. Sami starfs­maður hafi sent henni annað erindi skömmu fyrir klukkan fjögur sama dag þar sem hann spurði hvort ekki þurfi að skila til­nefn­ingum í ráð og nefndir næst­kom­andi föstu­dag, þann 15. júní.

Skrif­stofu­stjór­inn fund­aði með umræddum starfs­manni og Eyþóri Arnalds odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks 14. júní þar sem kosn­ingar í ráð og nefndir voru rædd. Þar kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Sós­í­alista­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins myndu skila sam­eig­in­legum listum föstu­dag­inn 15. júní. Þann sama dag skil­aði meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn sam­eig­in­legum lista til yfir­ferðar.

Þann 16. júní, eða dag­inn eftir, hafði list­inn frá minni­hlut­anum ekki enn borist skrif­stofu borg­ar­stjórnar. Þegar fyr­ir­spurn var send um morg­un­inn til starfs­manns borg­ar­stjórn­ar­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins barst svar um kvöldið þar sem sagði að gögnin kæmu dag­inn eftir.

Samkvæmt minn­is­blað­inu bár­ust list­arnir ekki fyrr en þremur heilum dögum eftir að frestur til að skila þeim rann út, rétt eftir klukkan 9 að kvöldi mánu­dags­ins 18. júní. Athuga­semdir voru gerðar við gögnin, list­arnir voru meðal ann­ars ekki upp­settir á réttan hátt, þar voru ekki til­nefndir skrif­arar og und­ir­skriftir vant­aði sem er ekki í sam­ræmi við sveit­ar­stjórn­ar­lög. Yfir­ferðar á list­unum og gögnum þeim tengdum lauk ekki fyrir skömmu áður en fundur borg­ar­stjórnar hófst kl. 14 þann 19. júní síð­ast­lið­inn.

Lagt er til í minn­is­blað­inu að for­sætis­nefnd sam­þykki að nám­skeið verði haldið fyrir borg­ar­full­trúa þar sem mun­ur­inn á opnum og lok­uðum fundum verði kynntur, mun­inn á fund­ar­gögnum slíkra funda og hvaða gögn skulu merkt trún­að­ar­gögn. Auk þess verði farið yfir hvers vegna ákvæði eru um það í sam­þykktum að fund­ar­gögn borg­ar­stjórnar séu öllum aðgengi­leg.

Brotið gegn siðareglum

Varðandi full­yrð­ingar Mörtu um trún­að­ar­brest létu nokkrir borg­ar­full­trúar ummæli falla þar sem fram komu ásak­anir í garð starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar, þar með talið í garð Helgu Bjarkar skrif­stofu­stjóra, starfs­manna skrif­stofu borg­ar­stjórnar og allra starfs­manna Ráðhúss Reykja­víkur, sam­kvæmt minn­is­blað­inu. 

Helga bendir að í umræð­unni hafi komið upp ásak­anir um að starfs­menn hafi brotið trúnað, lekið trún­að­ar­gögnum og/eða brotið starfs­skyldur sínar á alvar­legan hátt. Borg­ar­full­trú­inn Hildur Björns­dóttir hafi tekið til máls á fund­inum, haft uppi ásak­anir um leka á trún­að­ar­gögnum og nafn­greindi und­ir­rit­aða í ræðu­stól, vit­andi það að eng­inn maður utan borg­ar­stjórnar getur tekið til máls á borg­ar­stjórn­ar­fundi.

Helga telur að bæði ákvæði um rétt­indi og skyldur kjör­inna full­trúa og siða­reglur kjör­inna full­trúa hjá Reykja­vík­ur­borg hafi verið brotnar í til­vitn­aðri umræðu þegar starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar voru ásak­aðir um trún­að­ar­brest og brot á starfs­skyldum sínum án þess að það hafi síðar verið leið­rétt.

Hún segir jafn­framt að sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum beri sveit­ar­stjórnum að setja sér siða­reglur sem ná til allra kjör­inna full­trúa í sveit­ar­stjórn og nefndum og ráðum sem sveit­ar­stjórn skipar. Á grund­velli sömu laga hafi Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga skipað nefnd sem veitt getur álit um siða­reglur og ætluð brot á þeim. Helga óskar eftir því að for­sætis­nefnd taki til skoð­unar að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana, þar með talið að leita álits siða­nefndar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár