Friðurinn úti í borgarstjórn eftir innan við klukkustund

Borg­ar­stjórn­ar­full­trúar minni­hlut­ans kalla eftir óháðri rann­sókn vegna trún­að­ar­brests og leka í Ráð­hús­inu í upp­hafi fyrsta fundar borg­ar­stjórnar Reykja­víkur. Málið sé próf­raun.

Marta Guðjónsdóttir, Vigdís Hauksdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir á fyrsta fundi borgarstjórnar 19. júní 2018.
Marta Guð­jóns­dóttir, Vigdís Hauks­dóttir og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir á fyrsta fundi borg­ar­stjórnar 19. júní 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Þeir voru ekki margir hveiti­brauðs­dagar nýrrar borg­ar­stjórnar. Innan við klukku­tíma eftir að fyrsti fundur borg­ar­stjórnar var settur í dag, var Vigdís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins farin að kalla eftir rann­sókn vegna algjörs trún­að­ar­brests.

[links]Þannig var að Marta Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins óskaði eftir nán­ari útskýr­ingum á stofnun umhverfis- og heil­brigð­is­ráðs, hlut­verki þess og til­gangi. Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi Vinstri grænna kom í pontu og þakk­aði í svari sínu Mörtu fyrir að vilja taka sæti í ráð­inu.

Þá varð uppi fótur og fit. Minni­hlut­anum varð mikið um við að heyra að Líf væri kunn­ugt um að Marta ætli að taka sæti í ráð­inu. Var tölu­vert rætt um trún­að­ar­brest og óskað eftir því form­lega í ræðum að Líf upp­lýsti hvaðan úr kerf­inu hún hefði þær upp­lýs­ingar að Marta ætl­aði að setj­ast í umhverfis- og heil­brigð­is­ráð.

Líf sagði að það væri ekk­ert óeðli­legt við að fólk ræddi saman á göng­unum.

Eyþór Arnalds odd­viti Sjálf­stæð­is­manna sagði að ekki mætti gera lítið úr þessu, þeir sem ekki séu trúir yfir því litla séu ekki til þess fallnir að halda utan um það stóra. Um væri að ræða próf­raun fyrir borg­ar­stjórn­ina.

Hildur Björns­dóttir sam­flokks­maður Eyþórs lýsti yfir miklum áhyggjum af þeim trún­að­ar­bresti sem upp var kom­inn og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvernig þessar upp­lýs­ingar hafi lekið til Lífar.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri velti því upp hvort þetta væri stóra málið í borg­ar­stjórn. Sagðist ekki kunn­ugt um hvort að þessar sam­eig­in­legu til­lögur minni­hlut­ans hefðu átt að fara leynt, en þessar upp­lýs­ingar væru sann­ar­lega opin­berg gögn. „Ég átta mig engan veg­inn á þessum mál­funda­ræf­ingum sem hér eru,“ sagði Dagur.

Marta Guð­jóns­dóttir óskaði eftir skoðun á mál­inu af annað hvort óháðum aðila eða innri end­ur­skoðun.

Líf sagði um brigsl að ræða. Henni hafi borist það til eyrna að Marta kynni að sitja í ráð­inu og þegar hún hafi síðan spurt sér­stak­lega út í ráðið á fund­inum hafi hún lagt saman tvo og tvo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár