Sameiningaralda yfirvofandi í evrópskum flugfélögum

Hluta­bréfa­verð á norska lággjalda­flug­fé­lag­inu Norwegian hefur hækkað tölu­vert það sem af er degi eftir að fréttir bár­ust um að Luft­hansa hefði áhuga að kaupa í það. For­stjóri Luft­hansa segir sam­ein­ing­ar­öldu yfir­vof­andi í evr­ópskum flug­fé­lögum.

Norwegian hefur staðið í nokkrum rekstrarörðugleikum undanfarin misseri.
Norwegian hefur staðið í nokkrum rekstr­ar­örð­ug­leikum und­an­farin miss­eri. Mynd: EPA

Þýska sam­steypan Luft­hansa hefur sýnt áhuga á að kaupa hlut í lággjalda­flug­fé­lag­inu Norwegian, sam­kvæmt frétt Süddeutsche Zeitung sem birt­ist í morgun. Carsten Spohr, for­stjóri Luft­hansa, segir sam­runa­öldu yfir­vof­andi í evr­ópskum flug­fé­lögum. Norski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn tók frétt­unum vel, en þegar þetta er skrifað hafa hluta­bréf Norwegian hækkað um rúm 10% frá opnun mark­aða.

Samkvæmt frétt­inni sagði Carsten Spohr, for­stjóri Luft­hansa, flug­fé­lagið vera í sam­bandi við Norwegian vegna yfir­vof­andi sam­runa í evr­ópskum flug­fé­lögum á næst­unni. „Flug­fé­lögin eru sam­rýmd í spá sinni um að far­þega­fjöldi muni tvö­fald­ast aftur á næstu 20 árum,” segir Spohr, þrátt fyrir flökt­andi verð á olíu. „Hins vegar muni það (flökt­andi olíu­verð) halda áfram að knýja fram sam­runa í geir­anum, þar sem á tímum þar sem stein­ol­íu­verð er hátt muni hinir sterku verða sterk­ari og hin veiku verða veik­ari.”

Norwegian hefur staðið í rekstr­ar­vand­ræðum und­an­farin miss­eri, en virði fyr­ir­tæk­is­ins tók að aukast á ný fyrir tveimur mán­uðum síðan eftir að flug­sam­steypan IAG lýsti yfir áhuga sínum á að kaupa flug­fé­lagið. IAG gerði tvö kauptil­boð í félagið, en báðum til­boðum var hins vegar hafnað.

Aðrar yfirtökur mögulegar

Í sam­tali við frétta­stofu Reuters segir Spohr Luft­hansa munu grípa önnur tæki­færi til yfir­töku á öðrum flug­fé­lögum ef þau ber­ast, öll fyr­ir­tæki í geir­anum séu í sam­tali við hvern annan. Önnur heim­ild frétta­stof­unnar sagði lággjalda­flug­fé­lagið einnig vera heppi­lega við­bót við Luft­hansa , meg­in­kostur Norwegian væri sá að það sé í virkum rekstri með lágan kostnað.

Luft­hansa hefur staðið í nokkrum yfir­tökum á síð­ustu miss­erum, en tók yfir hluta af Air Berlin í fyrra og keypti útistand­andi hluti í Brussels Airlines nýverið. Einnig hefur sam­steypan haft auga á ítalska rík­is­flug­fé­lag­inu Alitalia, þótt sölu­ferlið sé tafið vegna stjórn­mála­ólgu þar í landi.

Kaupstríð ólíklegt

Einnig er fjallað um málið í norska við­skipta­blað­inu Dagens Nær­ingsliv, en þar segir að ólík­legt sé að kaup­stríð milli IAG og Luft­hansa sé í vændum. For­stjóri IAG, Jimmy Walsh, þvertók fyrir það einnig á árs­fundi sam­steypunnar í Madríd í síð­ustu viku, þrátt fyrir að þeir nálgist fyr­ir­huguð kaup á Norwegian með opnum hug.

Hluta­bréfa­verð Norwegian hefur rokið upp í kjöl­far frétt­anna í morgun, en virði fyr­ir­tæk­is­ins á norska hluta­bréfa­mark­aðnum hefur auk­ist um rúm 10% það sem af er degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár