Afgangur í rekstri hins opinbera var hærri á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en á sama tímabili fyrir ári síðan, þrátt fyrir meiri samneyslu og hærri launakostnað. Samhliða því hafa skuldir hins opinbera lækkað töluvert. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu um fjármál hins opinbera.
Tekjur hins opinbera umfram gjöld nam 9,6 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2018, eða um 1,5% af landsframleiðslu fyrir sama tímabil. Til samanburðar var tekjuafkoma ríkissjóðs fyrir sama tímabil í fyrra jákvæð um 8,4 milljarða króna.[adspot]
Aðalástæður bættrar afkomu ríkissjóðs í ár eru hærri skatttekjur og minni vaxtakostnaðar, en skatttekjur og tryggingagjöld jukust um 6,2%, á meðan vaxtagjöld hafa lækkað um 14,9%. Báðir liðirnir voru nægir til að auka afgang hins opinbera, þrátt fyrir 2,9% aukningu í samneyslu og 7,9% hækkun launakostnaðar.

Heildarskuldir hins opinbera eru nú 58,9% af vergri landsframleiðslu, miðað við 63,3% fyrir sama tímabil í fyrra. Skuldahlutfall ríkissjóðs hefur lækkað jafnt og þétt frá árinu 2013, en þá nam það rúmum 100% af landsframleiðslu. Meginþátturinn í lækkun skuldahlutfallsins þessa árs er samdráttur erlendra lána, en þau minnkuðu um rúma 90 milljarða króna milli ára.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir