RÚV sýknað í eineltismáli Adolfs Inga

Rík­is­út­varpið var í dag sýknað af kröfu Adolfs Inga Erlings­sonar fyrr­ver­andi íþrótta­f­rétta­manns um skaða- og miska­bætur vegna meints ein­eltis sem hann varð fyrir af hálfu yfir­manns síns sem og vegna þess sem hann taldi vera ólög­mæta upp­sögn.

Rík­is­út­varpið var í dag sýknað af kröfu Adolfs Inga Erlings­sonar fyrr­ver­andi íþrótta­f­rétta­manns um skaða- og miska­bætur vegna meints ein­eltis sem hann varð fyrir af hálfu yfir­manns síns sem og vegna þess sem hann taldi vera ólög­mæta upp­sögn.

[links]Hér­aðs­dómur hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að RÚV hefði brotið á Adolfi og gert stofn­un­inni að greiða honum 2,2 millj­ónir í bætur og máls­kostnað. Hæsti­réttur hefur því snúið þeirri nið­ur­stöðu við.

Adolf Inga var sagt upp störfum hjá Rík­is­út­varp­inu árið 2013 og hóf þá að und­ir­búa mál­sókn á hendur stofn­un­inni vegna ein­eltis sem hann taldi sig hafa mátt sæta.

Hæsti­réttur féllst á það með hér­aðs­dómi að hvorki til­högun lýs­inga íþrótta­kapp­leikja né breyt­ingar á starfstil­högun Adolfs gætu hafa falið í sér ein­elti í skiln­ingi gild­andi reglu­gerðar. Þá taldi rétt­ur­inn að mál­efna­leg sjón­ar­mið hefðu getað búið að baki þeim skiln­ingi þáver­andi íþrótta­f­rétta­stjóra RÚV að henni hefði ekki verið heim­ilt að semja við Adolf um greiðslu vakta­á­lags við nýjar starfs­að­stæður, og slíkt gæti ekki verið ámæl­is­verð og ótil­hlýði­leg hátt­semi. Að auki gætu þeir ágallar sem voru á með­ferð kvört­unar Adolfs um ein­elti ekki einir og sér hafa falið í sér ein­elti né hefði Adolf sýnt fram á að ágallar á með­ferð kvört­unar hans hefðu haft í för með sér fjár­tjón fyrir hann. Þeir yrðu ekki heldur taldir svo alvar­legir eða þess eðlis að miska­bóta­á­byrgð yrði felld á RÚV vegna þeirra.

Adolf hefði verið sagt upp vegna aðhalds­að­gerða í rekstri RÚV og hefði upp­sögn hans verið liður í hóp­upp­sögn af því til­efni. Því hafi ekki verið sýnt fram á annað en að þær for­sendur hefðu verið mál­efna­legar eins og rekstri stofn­un­ar­innar hefði verið háttað, en RÚV hefði skýrt nægi­lega for­sendur upp­sagn­ar­innar.

RÚV var því sýknað af kröfum Adolfs Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár