Rekinn eftir að hafa kvartað undan einelti

Yfir­manni ljós­mynda­deildar 365 miðla var sagt upp störfum í morgun. Hann hafði verið í leyfi frá því í maí eftir að hann kvart­aði undan langvar­andi ein­elti.

Yfir­manni á ljós­mynda­deild fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins 365 var sagt upp störfum í morgun, en hann hafði verið í leyfi frá störfum um margra mán­aða skeið eftir að hafa kvartað undan ein­elti útgef­anda og aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins.

Maðurinn, Pjetur Sig­urðs­son, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að honum hafi verið sagt upp störfum í morgun. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig frekar um málið. Hvorki náð­ist í Sævar Frey Þrá­ins­son, for­stjóra 365, né Kristínu Þor­steins­dóttur, aðal­rit­stjóra og útgef­anda 365, við vinnslu frétt­ar­innar.

Frétta­tím­inn greindi fyrst frá ein­elt­is­mál­inu í maí síð­ast­liðnum. Þar kom fram að eftir að Pjetur hafi kvartað undan meintu ein­elti Krist­ínar Þor­steins­dóttur aðal­rit­stjóra hafi mannauðs­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sett í gang form­lega athugun á mál­inu. Þeirri athugun hafi hins vegar verið hætt eftir að Kristín komst á snoðir um málið, og þá hafi Pjetur farið í leyfi. Þetta hafi verið í byrjun maí. Skömmu síðar lét mannauðs­stjór­inn af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu.

Fyrir rúmum tveimur árum kom upp ein­elt­is­mál á RÚV, þegar fyrr­ver­andi íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn Adolf Ingi Erlings­son kvart­aði undan ein­elti yfir­manns, Krist­ínar Hálf­dan­ar­dóttur, í sinn garð. Hann gerði það meðal ann­ars við mannauðs­stjóra stofn­un­ar­innar. Honum var sagt upp störfum og BHM fór í mál við Rík­is­út­varpið fyrir hans hönd til að krefj­ast bið­launa. RÚV var sýknað af öllum kröfum Adolfs Inga í hér­aðs­dómi í jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannauðsmál

Fréttirmannauðsmál

Starfs­fólk Frétta­blaðs­ins og Vísis segir vinnu­brögð stjórn­enda 365 óásætt­an­leg

Starfs­fólk Frétta­blaðs­ins og Vísis hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu til stjórn­ar­for­manns 365, for­stjóra og aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem upp­sögn á yfir­manni ljós­mynda­deildar 365, Pjeturs Sig­urðs­sonar, er mót­mælt harð­lega. Upp­sögnin er sögð óverð­skulduð í yfir­lýs­ing­unni. „Jafn­framt eru hörmuð óásætt­an­leg vinnu­brögð aðal­rit­stjóra og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­sagnar Pjeturs og við kynn­ingu á henni til sam­starfs­manna hans,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, sem var...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár