Matís endurskoðar mannauðsstefnu sína eftir ábendingu um undarlegt ákvæði

Matís er búið að fjar­lægja hluta af mannauðs­stefnu sinni og ætlar í heild­ar­end­ur­skoðun á henni. Fyr­ir­tæk­inu var bent á að und­ar­legt væri að í henni stæði að mik­il­vægt væri að starfs­menn „töl­uðu ávallt vel um vinnu­stað sinn,“ bæði innan hans og utan.

Höfuðstöðvar Matís.
Höf­uð­stöðvar Matís. Mynd: Af vef Matís

Opinbera hluta­fé­lagið Matís vinnur nú að því að end­ur­skoða heild­ar­stefnu sína í mannauðs­málum og hefur þegar tekið út ákveð­inn hluta mannauðs­stefn­unnar, eftir að ábend­ing barst um að ankanna­legt væri að þar væri sér­stak­lega tekið fram að mik­il­vægt væri að starfs­menn „töl­uðu ávallt vel um vinnu­stað sinn“, bæði utan hans og innan.

Karl Th. Birg­is­son rit­stjóri Herðu­breiðar skrif­aði um þetta í upp­hafi mán­aðar. Hann velti því fyrir sér hvernig „svona sovézkur sjálfs­styrk­ing­ar­texti“ rataði inn í mannauðs­stefnu opin­bers fyr­ir­tækis, eða raunar hvaða fyr­ir­tækis sem er. Karl nefndi þó ekki fyr­ir­tækið sjálft í umfjöllun sinni.

Kjarninn spurði Hróar Hugosson mannauðs­stjóra Matís út í þetta mál og hvort rétt væri að álykta að með þessu orða­lagi í mannauðs­stefn­unni væri ætl­ast til þess að starfs­menn Matís töl­uðu alltaf jákvætt um vinnu­stað­inn að öllu leyti, við allar aðstæður.

„Arfur annarra tíma“

Hróar sagði í svari sínu við fyr­ir­spurn blaða­manns að stefnan hafi verið samin fyrir margt löngu, hún væri „arfur ann­arra tíma“ og greini­legt væri að hlutar hennar ættu ekki við. Við því væri verið að bregð­ast.

[adspot]

„Eftir þessa góðu ábend­ingu/áminn­ingu sem við fengum um dag­inn er hún í end­ur­skoðun. Við erum nú búin að taka út þennan til­tekna hluta en tökum okkur aðeins lengri tíma til að skoða heild­ar­stefn­una,“ segir Hróar í svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Á vef Matís er nú búið að upp­færa þennan til­tekna hluta mannauðs­stefn­unnar, en hún var enn óbreytt á fimmtu­dags­kvöld, þegar Kjarninn leit yfir hana.

Matís er opin­bert hluta­fé­lag sem heyrir undir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Það varð til árið 2007 með sam­ein­ingu þriggja rík­is­stofn­ana sem unnið höfðu að mat­væla­rann­sóknum og þróun í mat­væla­iðn­aði; Rann­sókna­stofn­unar fisk­iðn­að­ar­ins, Mat­væla­rann­sókna Keldna­holti og Rann­sókna­stofu Umhverf­is­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannauðsmál

Fréttirmannauðsmál

Starfs­fólk Frétta­blaðs­ins og Vísis segir vinnu­brögð stjórn­enda 365 óásætt­an­leg

Starfs­fólk Frétta­blaðs­ins og Vísis hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu til stjórn­ar­for­manns 365, for­stjóra og aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem upp­sögn á yfir­manni ljós­mynda­deildar 365, Pjeturs Sig­urðs­sonar, er mót­mælt harð­lega. Upp­sögnin er sögð óverð­skulduð í yfir­lýs­ing­unni. „Jafn­framt eru hörmuð óásætt­an­leg vinnu­brögð aðal­rit­stjóra og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­sagnar Pjeturs og við kynn­ingu á henni til sam­starfs­manna hans,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, sem var...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár