Starfsfólk Fréttablaðsins og Vísis segir vinnubrögð stjórnenda 365 óásættanleg

Starfs­fólk Frétta­blaðs­ins og Vísis hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu til stjórn­ar­for­manns 365, for­stjóra og aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem upp­sögn á yfir­manni ljós­mynda­deildar 365, Pjeturs Sig­urðs­sonar, er mót­mælt harð­lega. Upp­sögnin er sögð óverð­skulduð í yfir­lýs­ing­unni.

„Jafn­framt eru hörmuð óásætt­an­leg vinnu­brögð aðal­rit­stjóra og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­sagnar Pjeturs og við kynn­ingu á henni til sam­starfs­manna hans,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, sem var sam­þykkt ein­róma á fundi starfs­manna Frétta­blaðs­ins og Vísis í gær. „Við beinum því til stjórnar og stjórn­enda 365 að tryggja að slík fram­ganga, sem grefur undan fag­legum grunni og trú­verð­ug­leika frétta­stof­unnar, geti ekki end­ur­tekið sig.“ Pjetur hafi þriggja ára­tuga reynslu sem blaða­ljós­mynd­ari. Þar af sé þrettán ára starfs­fer­ill hjá Frétta­blað­inu og Vísi. „Hann á að baki far­sælan feril og hefur reynst góður sam­starfs­maður.

Við teljum að öll með­ferð máls­ins hafi skaðað alvar­lega það traust sem verður að ríkja innan rit­stjórn­ar­innar,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni. 

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrir helgi var Pjetri sagt upp störfum, en hann hafði kvartað undan ein­elti af hendi Krist­ínar Þor­steins­dóttur, aðal­rit­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Frétta­tím­inn greindi fyrst frá ein­elt­is­mál­inu í maí síð­ast­liðn­um. Eftir að Pjetur kvart­aði undan ein­elti setti mannauðs­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í gang form­lega athugun á mál­inu. Þeirri athugun var hins vegar hætt eftir að Kristín komst á snoðir um mál­ið, og þá var Pjetur sendur í leyfi. Þetta var í byrjun maí. Skömmu síðar lét mannauðs­stjór­inn af störfum hjá fyr­ir­tæk­in­u.

Kjarninn hefur reynt að ná tali af bæði Kristínu Þor­steins­dóttur, aðal­rit­stjóra 365, og Sævari Frey Þrá­ins­syni, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, án árang­urs.

Yfir­lýs­ing starfs­mann­anna í heild sinni:

Til stjórn­ar­for­manns 365, for­stjóra og aðal­rit­stjóra. 

Við, starfs­menn Frétta­blaðs­ins og Vísis, mót­mælum harð­lega óverð­skuld­aðri upp­sögn yfir­manns ljós­mynda­deildar 365, Pjeturs Sig­urðs­sonar. Jafn­framt eru hörmuð óásætt­an­leg vinnu­brögð aðal­rit­stjóra og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­sagnar Pjeturs og við kynn­ingu á henni til sam­starfs­manna hans.

Við beinum því til stjórnar og stjórn­enda 365 að tryggja að slík fram­ganga, sem grefur undan fag­legum grunni og trú­verð­ug­leika frétta­stof­unnar, geti ekki end­ur­tekið sig.

Pjetur Sig­urðs­son hefur þriggja ára­tuga reynslu sem blaða­ljós­mynd­ari. Þar af þrettán ára starfs­feril hjá Frétta­blað­inu og Vísi. Hann á að baki far­sælan feril og hefur reynst góður sam­starfs­maður.

Við teljum að öll með­ferð máls­ins hafi skaðað alvar­lega það traust sem verður að ríkja innan rit­stjórn­ar­innar.

Samþykkt ein­róma á fundi starfs­manna Frétta­blaðs­ins og Vísis 8. ágúst 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannauðsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár