BHM höfðar prófmál á hendur RÚV vegna biðlauna Adolfs Inga

Stjórn Banda­lags háskóla­manna (BHM) ákvað á dög­unum að höfða próf­mál á hendur RÚV til að fá úr því skorið fyrir dóm­stólum hvort bið­launa­réttur starfs­manna RÚV hafi hald­ist óbreyttur eftir að stofn­unin var gerð að opin­beru hluta­fé­lagi. BHM höfðar málið gegn RÚV fyrir hönd íþrótta­f­rétta­manns­ins Adolfs Inga Erlings­sonar, sem hefur átt í árang­urs­lausum samn­inga­við­ræðum við RÚV varð­andi starfs­lok sín und­an­farin miss­eri. Adolfi Inga var sagt upp störfum á RÚV 27. nóv­em­ber árið 2013.

BHM er á þeirri skoðun að starfs­menn sem voru í starfi 1. apríl 2007, þegar RÚV ohf. yfir­tók starf­semi Rík­is­út­varps­ins, eigi rétt til bið­launa vegna nið­ur­lagn­ingar á stöðu, enda hafi opin­bera hluta­fé­lagið yfir­tekið rétt­indi og skyldur Rík­is­út­varps­ins sam­kvæmt ráðn­ingar- og kjara­samn­ingum starfs­manna sam­kvæmt sér­stakri yfir­lýs­ingu. Þá hafi þeir starfs­menn sem héldu áfram störfum hjá RÚV ohf og und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ing­una stað­fest að þeir þiggi „óbreytt starf og starfs­kjör hjá hinu nýja félagi.“

Segja tölvupóst frá yfirstjórn RÚV staðfesta biðlaunaréttinn


Á meðal gagna sem BHM mun leggja fram við mál­flutn­ing­inn, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, er tölvu­póstur sem yfir­stjórn RÚV sendi til allra starfs­manna 1. febr­úar 2007. Tölvu­póst­ur­inn var sendur á starfs­menn vegna yfir­lýs­ing­ar­innar sem þeir starfs­menn sem hugð­ust vinna áfram hjá RÚV eftir ohf - væð­ing­una þurftu að und­ir­rita. BHM telur að tölvu­póst­ur­inn stað­festi skiln­ing sam­bands­ins á því að bið­launa­réttur hafi átt að fylgja störfum hjá RÚV ohf.

Þar segir: „Með því að und­ir­rita bréf þess efnis að við­kom­andi ætli að starfa hjá Rúv eftir 1. apríl nk. stað­festir starfs­maður um leið að hann afsali sér bið­launa­rétti í tengslum við þá breyt­ingu sem verður á rekstr­ar­formi Rúv. Það þýðir ekki að við­kom­andi sé búinn að afsala sér bið­launa­rétti komi til þess að starf hans verði lagt niður eftir aðila­skipti heldur aðeins að hann muni ekki nýta bið­launa­rétt sinn við rekstr­ar­forms­breyt­ing­una. Starfs­menn sem ekki eiga bið­launa­rétt og ætla ekki að þiggja starf hjá Rúv ohf. þyrftu því í raun að segja starfi sínu lausu.“

Í sam­tali við Kjarnann segir Páll Hall­dórs­son, for­maður BHM, að stjórn banda­lags­ins hafi ákveðið að höfða málið fyrir hönd Adolfs Inga, því mik­il­vægt sé að dóm­stólar skeri úr um stöðu og rétt­indi starfs­manna stofn­ana sem breytt er í opin­ber hluta­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár