Kristján Loftsson tekjuhæstur í sjávarútvegi

Kristján Loftsson stjórn­ar­for­maður HB Granda og for­stjóri Hvals er launa­hæsti ein­stak­ling­ur­inn í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði sam­kvæmt Tekju­blaði DV. Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja er með tæp­lega 3,7 millj­ónir á mán­uði.

Kristján Loftsson stjórn­ar­for­maður HB Granda og for­stjóri Hvals er launa­hæsti ein­stak­ling­ur­inn í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði sam­kvæmt Tekju­blaði DV. Nema mán­að­ar­laun Krist­jáns rúm­lega 4,7 millj­ónum.

[links]Þor­steinn Krist­jáns­son skip­stjóri er með rúm­lega 4,5 millj­ónir og Vil­hjálmur Vil­hjálms­son rétt tæpar 4,5. Ingi Jóhann Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri Gjögurs er með rétt tæpa 4,1 milljón á mán­uði og Gunnþór Ingvason for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaups­stað tæp­lega 3,7.

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja er einnig með tæp­lega 3,7 millj­ónir á mán­uði, Friðrik Már Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri Loðnu­vinnsl­unnar tæp­lega 3,4 millj­ónir og Stefán Frið­riks­son fram­kvæmda­stjóri Ísfélags Vest­manna­eyja með rúm­lega 3 millj­ónir í mán­að­ar­laun.

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi er með um 2,9 millj­ónir í mán­að­ar­laun, Kristján Vil­helms­son einn eig­enda Samherja 2,1 millj­ónir og Baldvin Þor­steins­son einn eig­enda Jarð­bor­ana og sonur Þor­steins Más í Samherja er með rúm­lega 1,8 millj­ónir.

Fyrsti ein­stak­ling­ur­inn í land­bún­aði á list­anum er Georg Ottósson fram­kvæmda­stjóri Flúða­sveppa með rúm­lega 1,2 millj­ónir á mán­uði og á eftir honum Arnar Árnason bóndi á Hrana­stöðum í Eyja­firði með tæp­lega 1,2 millj­ónir. Þá er Sveinn Sig­ur­munds­son fram­kvæmda­stjóri Bún­að­ar­sam­bands Suð­ur­lands með rúm­lega milljón á mán­uði.

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja er neð­ar­lega á list­anum yfir ein­stak­linga í land­bún­aði og sjáv­ar­út­veg með 481 þús­und í mán­að­ar­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

launakjör

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Sérstöku stétt­irnar sem mega vera með mjög há laun

Haustið 2014 hófust verk­falls­að­gerðir lækna á Íslandi. Leið­ar­stefið í þeirri bar­áttu var kunn­ug­legt. Grunn­launin voru of lág, læknar voru of fáir og of margir þeirra voru á leið á eft­ir­laun. Þeir fóru fram á tug­pró­senta launa­hækk­anir og kerf­is­breyt­ingar. Það þurfti að taka þá „fram fyrir röð­ina“ til að ekki færi illa. „Leið­rétta“ það launa­órétt­læti sem þeir hefðu verið látnir sæta...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár