Telja rafræna birtingu skattskrár auka launajafnrétti

ASÍ hvetur til þess að þings­á­lykt­un­ar­til­laga um raf­ræna birt­ingu álagn­ing­ar­skrár nái fram að ganga. Í umsögn Per­sónu­verndar segir að mik­il­vægt sé að huga að rétti ein­stak­linga til per­sónu­verndar. Slík til­laga nú lögð fram í fimmta sinn.

Í þingsályktunartillögu um rafræna birtingu álagningar- og skattskrár er lagt til að hætt verði að birta þessar upplýsingar á pappír.
Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um raf­ræna birt­ingu álagn­ingar- og skatt­skrár er lagt til að hætt verði að birta þessar upp­lýs­ingar á pappír. Mynd: EPA.

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) telur að opin­ber skatt- og álagn­ing­ar­skrá, sem almenn­ingur hefur hindr­un­ar­lausan aðgang að, auki gagn­sæi, launa­jafn­rétti og leiði til bættra skatt­skila og dragi úr und­an­skotum. Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um til­lögu til þings­á­lykt­unar um raf­ræna birt­ingu álagn­ingar- og skatt­skráar. Óskað hefur verið eftir umsögnum um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una en þetta er í fimmta skipti sem til­laga þess efnis er lögð fram.

Í umsögn ASÍ um til­lög­una er vísað í ályktun mið­stjórnar sam­bands­ins um gagn­sæi gegn mis­skipt­ingu frá ágúst 2019. Þar segir: „Það er afar brýnt að allir lands­menn greiði skatta og gjöld til sam­fé­lags­ins óháð upp­runa tekna, svo sem arð­greiðslur úr fyr­ir­tækjum eða fjár­magnstekjur. Upp­lýs­ingar um slíkt þurfa að vera aðgengi­legar og gagn­sæjar. Mið­stjórn ASÍ hvetur Alþingi jafn­framt til að sam­þykkja að birta álagn­ing­ar­skrár með raf­rænum hætti, þar sem birtir eru allir álagðir skattar, þannig að aðgengi að þessum sam­fé­lags­lega mik­il­vægu upp­lýs­ingum sé tryggt “

ASÍ tekur því undir mark­mið til­lög­unnar og sam­bandið hvetur til þess að málið nái fram að ganga.

Mikilvægt sé að huga að rétti einstaklinga til persónuverndar

Meðal þeirra sem skilað hafa inn umsögn um til­lög­una er Per­sónu­vernd. Vegna þess að til­lagan er efn­is­lega sam­bæri­leg til­lögu sem lögð var fram á síð­asta þingi ítrekar Per­sónu­vernd umsögn sína frá því í fyrra. Þar áréttar Per­sónu­vernd mik­il­vægi þess að hugað verði að rétti ein­stak­linga til per­sónu­verndar í tengslum við þær laga­breyt­ingar sem gert er ráð fyrir í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni.

Í umsögn­inni er bent á að í heim­ild til birt­ingar og útgáfu skatt­skrá felist und­an­tekn­ing frá grunn­reglu 117 greinar laga um tekju­skatt að á skatt­yf­ir­völdum hvíli þagn­ar­skylda um tekjur og efna­hag skatt­að­ila auk þess sem að í heim­ild­inni felist tak­mörkun á rétt­inum til frið­helgi einka­lífs.

Athuga­semdir Per­sónu­verndar snúa einnig að áreið­an­leika álagn­ing­ar­skrár. Þar er ekki að finna end­an­lega upp­lýs­ingar um skatta og gjöld sem lögð eru á ein­stak­linga og áreið­an­leiki upp­lýs­ing­anna því tak­mark­aður. Per­sónu­vernd bendir einnig á að heim­ild ann­arra en skatta­yf­ir­valda til birt­ingar og útgáfu upp­lýs­inga úr álagn­ing­ar­skrá nái ekki til þeirrar hátt­semi að gera upp­lýs­ing­arnar aðgengi­legar í raf­rænum gagna­grunni. Því kunna laga­breyt­ing­arnar sem gert er ráð fyrir í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni að leiða til stefnu­breyt­ingar í þessu til­liti. „Bendir Per­sónu­vernd því á að líta þarf til þeirra sjón­ar­miða sem búa að baki núgild­andi fyr­ir­komu­lagi, t.d. mögu­leika skoð­enda til að afrita upp­lýs­ing­arnar án heim­ildar, og hvort talið sé til­efni til að víkja frá þeim.“

Per­sónu­vernd segir það því mik­il­vægt að huga að rétti ein­stak­linga til per­sónu­verndar í tengslum við þær laga­breyt­ingar sem gert er ráð fyrir í til­lög­unni og að stofn­unin myndi veita nán­ari efn­is­lega umsögn um ákvæði laga­frum­varps á grund­velli þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar.

Hentugra að birta rafrænt

Líkt og áður segir hefur til­lagan verið lögð fram áður, og það fjórum sinnum, en flutn­ings­menn hennar eru í þetta sinn Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunn­ars­son, Inga Sæland og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir. Lagt er til að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hlut­ist til um raf­ræna birt­ingu árlegrar álagn­ingar og skatt­skrár sem verði aðgengi­leg allt árið uns ný skrá er birt. Þá er lagt til að ráð­herra leggi fyrir Alþingi frum­varp þessa efnis á vor­þingi 2021.

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni segir að lagt sé til að hætt verði að birta álagn­ingar- og skatt­skrár yfir­valda á pappír og í stað­inn verði raf­ræn álagn­ing­ar­skrá aðgengi­leg allt árið. meðal ann­ars. Eins og staðan er í dag segir í 98. grein laga um tekju­skatt að skatt­skrá skuli vera til sýnis „á hent­ugum stað“ í tvær vikur eftir að álagn­ingu er lokið. „Skatt­skil eru nú öll orðin raf­ræn þannig að eðli­legt hlýtur að telj­ast að birta álagn­ing­ar­skrá með þeim hætti, enda langtum hent­ugra fyrir bæði skatt­yf­ir­völd og not­endur álagn­ing­ar­skrár­innar að hafa þennan hátt á með til­liti til þeirrar tækni sem nú er almennt beitt,“ segir enn fremur í grein­ar­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

launakjör

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár