Tekjur áhrifavaldanna

Laun vin­sæl­ustu áhrifa­valda lands­ins Sólrúnar Diego, Guðrúnar Veigu, Birgittu Lífar og Manuelu Óskar eru í Tekju­blað­inu.

Áhrifa­valdar verða sífellt meira áber­andi í íslenskri dæg­ur­málaum­fjöllun en ekki síður umfjöllun um mark­aðs­mál. Áhrifa­valdar eru þau kölluð sem sinna mark­aðs­setn­ingu í gegnum sam­fé­lags­miðla en mikil umræða hefur verið um svo­kall­aðar duldar aug­lýs­ingar og vöruinn­setn­ingar hjá þessum hópi. Markaðs- og aug­lýs­inga­stofur hafa beint fjár­magni í meira mæli en áður til þess­ara ein­stak­linga sem geta náð beint til sinna fylgj­enda í gegnum miðl­ana.

[links]DV birti í Tekju­blaði sínu skráð mán­að­ar­laun nokk­urra vin­sæl­ustu áhrifa­valda lands­ins.

Sólrún Diego áhrifa­valdur og þrif­bóka­rit­höf­und er með skráðar tekjur upp á 320 þús­und á mán­uði sam­kvæmt Tekju­blaði DV. Sólrún er einn vin­sæl­asti snapp­ari lands­ins og nær til þús­unda í gegnum sam­skipta­for­ritin Snapchat og Instagram, þar sem hún er með um 26 þús­und fylgj­endur. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir til­burði sína þegar kemur að þrifum og gaf fyrir jólin út met­sölu­bók­ina Heima þar sem hún gaf góð ráð í heim­il­is­haldi.

Birgitta Líf Björns­dóttir áhrifa­valdur og fram­kvæmda­stjóri er með skráðar tekjur upp á 527 þús­und krónur á mán­uði. Birgitta er einnig snapp­ari og tísku­blogg­ari á heima­síð­unni Trendnet. Birgitta er vin­sæl á sam­fé­lags­miðlum, bæði sjálf og undir hattir RVKfit sem hún rekur með vin­konum sínum og veitir góð ráð og inn­blástur þegar kemur að hreyf­ingu og heilsu almennt.

Sunneva Eir Ein­ars­dóttir sam­fé­lags­miðla­stjóri hjá umboðs­skrif­stof­unni Eylenda er ekki síðri áhrifa­valdur en hinar tvær fyrr­nefndu. Sú er með skráðar mán­að­ar­tekjur sam­kvæmt DV upp á 305 þús­und krónur á mán­uði. Sunneva er með meira en 30 þús­und fylgj­endur á Instagram.

Ingileif Frið­riks­dóttir laga­nemi og áhrifa­valdur er með 225 þús­und krónur í mán­að­ar­laun. Ingileif var lengi blogg­ari á síð­unni Mamie, stýrði Hinseg­in­leika snapp­inu þar sem hún og unnusta hennar María Rut Krist­ins­dóttir fræddu fylgj­endur um rétt­indi LGBT fólks og fleira því tengt auk þess sem Ingileif stýrði sam­nefndum vef­þætti fyrir RÚV. Ingileif var í síð­asta mán­uði valin Fram­úr­skar­andi ungur Íslend­ingur af sam­tök­unum JCI.

Guðrún Veiga Guð­munds­dóttir snapp­ari er einnig einn vin­sæl­asti áhrifa­vald­ur­inn í dag en hún er með skráðar 247 þús­und krónur í mán­að­ar­laun. Hún kemur dag­lega fram á Snapchat þar sem hún er þekkt fyrir afar hisp­urs­lausa fram­komu, auk þess sem hún er förð­un­ar­fræð­ingur og mat­ar­bóka­höf­undur og sjón­varps­kona, en hún gerði þætt­ina Nenni ekki að elda árið 2014. Guðrún Veiga eign­að­ist annað barn sitt í maí á síð­asta ári og hefur því verið í fæð­ing­ar­or­lofi stóran hluta árs­ins.

Manuela Ósk Harð­ar­dóttir fyrr­ver­andi feg­urð­ar­drottn­ing og stjórn­andi Miss Universe Iceland var meðal fyrstu íslensku sam­fé­lags­miðla­stjarn­anna. Manuela er með 16 þús­und krónur í mán­að­ar­laun sam­kvæmt DV en stóran hluta síð­asta árs var Manuela við nám í Banda­ríkj­unum. Manuela er með meira en 50 þús­und fylgj­endur á Instagram og mjög vin­sælan Snapchataðgang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

launakjör

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár