Laun ríkisstarfsmanna hækka afturvirkt

Laun starfs­manna rík­is­ins sem eru í aðild­ar­fé­lögum Starfs­greina­sam­bands Íslands fá nú í fyrsta sinn svo­kall­aða launa­skriðs­trygg­ingu sem gefur að með­al­tali 1,8 pró­senta hækkun á laun aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2017.

Laun starfs­manna rík­is­ins sem eru í aðild­ar­fé­lögum Starfs­greina­sam­bands Íslands fá nú í fyrsta sinn svo­kall­aða launa­skriðs­trygg­ingu sem gefur að með­al­tali 1,8 pró­senta hækkun á laun aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2017. Leið­rétt­ingin kemur til útborg­unar á flestum stöðum þann 1. mars. Þetta er gert á grund­velli ramma­sam­komu­lags í tengslum við síð­ustu kjara­samn­inga til að tryggja að launa­skrið á almenna­vinnu­mark­aðnum nýt­ist líka starfs­fólki hjá hinu opin­bera.

Í til­kynn­ingu frá Starfs­greina­sam­band­inu er haft eftir Birni Snæ­björns­syni að hann fagni því að leið­rétt­ingin sé nú í hendi „og tryggir að fólk í okkar félögum fái hluta launa­skriðs­ins sem er á almenna vinnu­mark­aðnum. Það hefur oft í gegnum árin verið þannig að fólk innan hins opin­bera nýtur ekki launa­skriðs í sama mæli og á almenna mark­aðnum. Því er þetta fagn­að­ar­efni,“ segir Björn.

Trygg­ingin er mæld út frá launa­skriði árin 2013 til 2016 en annað upp­gjör verður svo gert fyrir árin 2017 og 2018 og leið­rétt ef til­efni er til.

Útfærsla trygg­ing­ar­innar er mis­jöfn eftir lands­sam­böndum en ákveðið var að SGS myndi feta sig í átt að nýrri launa­töflu líkt og flest opin­ber félög inn­leiddu í síð­ustu kjara­samn­ingum. Því eru allir starfs­menn færðir í 6. þrep launa­töfl­unnar, sem er efsta þrepið og taflan hækkuð öll um 1 pró­sent. Þetta gerir það að verkum að fólk ber aðeins mis­jafnt úr býtum eftir aldri og röðun í launa­töflu, en launa­töflur eru þá ekki háðar lífaldri lengur og því verður auð­veld­ara að breyta töfl­unni til sam­ræmis við aðra í næstu kjara­samn­ingum. Félags­menn sem starfa við ræst­ingar fá 1,8 pró­senta hækkun á tíma­mælda og flata­mælda ákvæð­is­vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

AðsentKjaramál

Jóhannes Hraunfjörð Karlsson

Fleygur í þjóð­ar­sál: Hug­leið­ingar um almanna­trygg­ingar, við­bót­ar­líf­eyri og dóm um líf­eyr­is­sjóði í árs­lok 2021

Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson segir að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafa fært almennt sið­ferði niður. Í hennar tíð hafi laun þing­manna og emb­ætt­is­manna marg­fald­ast og séu nú að auki vísi­tölu­bundin en slíkt tíðk­ist hvergi nema um lág­marks­laun.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár