Laun afar mismunandi eftir atvinnugreinum

Heild­ar­laun allra full­vinn­andi launa­manna voru að með­al­tali 721 þús­und krónur á mán­uði. Algeng­ustu heild­ar­laun Íslend­inga árið 2018 voru á bil­inu 550 til 600 þús­und krónur á mán­uði.

Mis­mun­andi er eftir atvinnu­greinum hversu há laun eru. Heild­ar­laun í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri voru í 85 pró­sent til­vika undir 600 þús­und krónum á mán­uði árið 2018. Hins vegar var um helm­ingur full­vinn­andi launa­manna í fram­leiðslu, heild- og smá­sölu­verslun og fræðslu­starf­semi með heild­ar­laun undir 600 þús­und krón­um. Þá voru 40 pró­sent launa­manna í heil­brigð­is- og félags­þjón­ustu voru með heild­ar­laun undir 600 þús­und krónum, en tæp­lega 20 pró­sent með yfir milljón krónur á mán­uði.

Heild­ar­laun allra full­vinn­andi launa­manna voru að með­al­tali 721 þús­und krónur á mán­uði, að því er kemur fram í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar um launa­rann­sókn hennar. Launa­rann­sóknin nær til 90 þús­und launa­manna.

[adspot]Miðgildi heild­ar­launa var um 90 þús­und krónum lægra en með­al­tal heild­ar­launa, eða 632 þús­und krónur. „Munur með­al­tals og mið­gildis skýrist meðal ann­ars af því að hæstu laun hækka með­al­talið en kjara­samn­ingar tryggja ákveðin lág­marks­kjör án þess að kveða á um hámarks­kjör,“ að því er segir í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar. Enn fremur var algeng­ast að mán­að­ar­leg heild­ar­laun væru á bil­inu 550 til 600 þús­und krónur og var rúm­lega tíundi hver full­vinn­andi launa­maður með heild­ar­laun á því bili.

Heildarlaun ríkisstarfsmanna 818 þúsund krónur að meðaltali

Heild­ar­laun rík­is­starfs­manna árið 2018 voru 818 þús­und krónur að með­al­tali en 593 þús­und krónur hjá starfs­mönnum sveit­ar­fé­laga. 70 pró­sent starfs­manna sveit­ar­fé­laga voru með heild­ar­laun undir 650 þús­undum króna á mán­uði en það sama átti við um 35 pró­sent rík­is­starfs­manna og tæp­lega 55 pró­sent starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

5,5 pró­sent starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði og rík­is­starfs­manna var með heild­ar­laun yfir 1.400 þús­und krónur á mán­uði.

Grunnlaun í rekstri gististaða og veitingarekstri undir 400 þúsund krónum í 60 prósent tilvika

Heild­ar­laun í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri voru 504 þús­und krónur að með­al­tali og mið­gildi heild­ar­launa var 495 þús­und krónur. Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar er bent á að dreif­ing heild­ar­launa innan atvinnu­grein­ar­innar sé veru­lega frá­brugðin dreif­ingu grunn­launa þar sem greiðslur vakta­á­lags séu algengar innan grein­ar­innar og einnig sé nokkuð um yfir­vinnu.

60 pró­sent full­vinn­andi starfs­manna í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri voru með grunn­laun undir 400 þús­und krónum á mán­uði, hins vegar er hlut­fallið 25 pró­sent sé litið til heild­ar­launa.

Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar kemur fram að tæp­lega 85 pró­sent launa­manna á gisti­stöðum og í veit­inga­rekstri voru með heild­ar­laun undir 600 þús­und krónum á mán­uði. Hins vegar hafi um helm­ingur full­vinn­andi launa­manna í fram­leiðslu, heild- og smá­sölu­verslun og fræðslu­starf­semi verið með heild­ar­laun undir 600 þús­und krónum. Í heil­brigðis- og félags­þjón­ustu voru um 40 pró­sent með heild­ar­laun undir 600 þús­und krónum en tæp­lega 20 pró­sent með yfir milljón krónur á mán­uði.

Sérfræðingar 65 prósent launamanna í fræðslustarfsemi

Launa­dreif­ingu á milli atvinnu­greina má oft­ast rekja til ólíkra starfa og til­högun vinnu­tíma, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni. Til dæmis séu fáir í störfum sér­fræð­inga í atvinnu­grein­inni rekstur gisti­staða og veit­inga­rekstur en um 6 pró­sent telj­ist til sér­fræð­inga í atvinnu­greinum fram­leiðslu og heild- og smá­sölu­versl­unar.

Jafn­framt telj­ast um 65 pró­sent launa­manna sér­fræð­ingar í fræðslu­starf­semi og 42 pró­sent í heil­brigðis- og félags­þjón­ustu þar sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar og læknar eru fjöl­menn­astir. Hlutfall verka­fólks var lægst í fræðslu­starf­semi og í heil­brigðis- og félags­þjón­ustu en er hæst í fram­leiðslu og í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekst­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár