Davíð hækkar í 5,9 milljónir - Björn Ingi með 2,6 milljónir

Davíð Oddsson rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra er launa­hæsti fjöl­miðla­maður Íslands sam­kvæmt tekju­blaði DV. Nema mán­að­ar­tekjur hans rúm­lega 5,9 millj­ónum króna og hafa þær hækkað um 2 millj­ónir frá árinu 2016.

Davíð Oddsson rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra er launa­hæsti fjöl­miðla­maður Íslands sam­kvæmt tekju­blaði DV. Nema mán­að­ar­tekjur hans rúm­lega 5,9 millj­ónum króna og hafa þær hækkað um 200 þús­und frá því í fyrra en árið 2016 námu tekjur Davíðs um 3,9 millj­ónum.

[links]Haraldur Johann­es­sen einnig rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins er sá næst launa­hæsti í brans­anum með rúm­lega 4,5 millj­ónir á mán­uði.

Björn Ingi Hrafns­son fyrr­ver­andi eig­andi Pressunnar og DV vermir þriðja sætið á lista launa­hæstu fjöl­miðla­mann­anna með 2,6 millj­ónir á mán­uði og á eftir honum kemur Óskar Magn­ús­son fyrr­ver­andi útgef­andi Árvakurs með tæp­lega 1,9 millj­ónir.

Næstir á lista eru:

Sverrir Heim­is­son aug­lýs­inga­stjóri Við­skipta­blaðs­ins - 1.864

Logi Bergmann Eiðsson fyrr­ver­andi frétta­þulur og þátta­stjórn­andi - 1.853

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri - 1.790

Kristín Þor­steins­dóttir aðal­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins - 1.787

Pétur Jóhann Sig­fús­son sjón­varps­maður - 1.451

Egill Helgason sjón­varps­maður - 1.349

Auðunn Blöndal útvarps- og sjón­varps­maður - 1.326

Gjörbreyting á landslagi fjölmiðla árið 2017

Í upp­hafi árs 2017 var skipuð nefnd sem hafði það hlut­verk að skila til­lögum um hvernig bæta mætti rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Á meðan að sú nefnd starf­aði urðu mestu breyt­ingar sem orðið hafa á íslensku fjöl­miðla­lands­lagi í ára­tugi. Jafnvel frá upp­hafi.

Á einu ári lagði það dag­blað sem hafði næst mesta útbreiðslu upp laupana, ein af stærstu fjöl­miðla­sam­steypum lands­ins lið­að­ist í sundur og hluti hennar fór í þrot, stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins var skipt upp og skilin milli fjar­skipta og fjöl­miðla urðu enn óskýr­ari. Svo fátt eitt sé nefnt.

Fréttatíminn hvarf

Fyrstu stóru svipt­ing­arnar á árinu 2017 urðu strax í febr­úar þegar greint var frá því að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing á frí­blað­inu Frétta­tím­anum stæði yfir. Til­kynn­ingin kom mörgum á óvart þar sem nýir eig­endur, undir for­ystu Gunnars Smára Egils­sonar, höfðu keypt allt hlutafé í miðl­inum í nóv­em­ber 2015 og blásið til mik­illar sóknar með ráðn­ingu á reyndu starfs­fólki og fjölgun útgáfu­daga úr einum í viku í þrjá í viku.

Í byrjun apríl var ljóst að það stefndi í óefni. Gunnar Smári til­kynnti þá að hann væri hættur afskiptum af útgáf­unni. Starfs­menn höfðu á þessum tíma ekki fengið greidd laun og erf­ið­lega gekk að fá nokkrar upp­lýs­ingar frá stjórn­endum um hvort að slíkt stæði til.

Frétta­tím­inn kom út í síð­asta sinn föstu­dag­inn 7. apríl 2017. Skömmu áður hafði verið greint frá því að blaðið hefði tapað 151 millj­ónum króna á árinu 2016. Tapið hafði tífald­ast milli ára.

Útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans var tekið til gjald­þrota­skipta í júlí og kröfur í búið námu 236 millj­ónum króna.

Sápuóperan í kringum Pressuna

Mesta drama­tíkin á fjöl­miðla­mark­aði í fyrra var í kringum Pressu­sam­stæðu Björns Inga Hrafns­sonar, sem hafði árin á undan farið mik­inn og sankað að sér allskyns fjöl­miðlum oft með skuld­settum yfir­tökum. Síðasta yfir­takan var á tíma­rita­út­gáf­unni Birtingi í lok árs 2016 og eftir hana voru tæp­lega 30 miðlar í Pressu­sam­stæð­unni. Þeirra þekkt­astir voru DV, DV.is, Eyj­an, Pressan, sjón­varps­stöðin ÍNN og tíma­ritin Vikan, Gest­gjaf­inn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Í apríl var til­kynnt um að hlutafé Pressunnar yrði aukið um 300 millj­ónir króna og að sam­hliða myndi Björn Ingi stíga til hliðar. Sá aðili sem ætl­aði að koma með mest fé inn í rekst­ur­inn var Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn, félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar og þriggja ann­arra manna. Með þeim var hópur ann­arra fjár­festa og svo virt­ist sem Pressu­sam­stæð­unni væri borgið.

Gjaldþrot og kærur vegna meintra lögbrota

Nýju fjár­fest­arnir komust þó fljót­lega að því að mun meira vant­aði til þess að rétta af rekst­ur­inn en þeir höfðu talið áður. Um miðjan maí voru þeir hættir við aukna fjár­fest­ingu en áttu þó enn meiri­hluta hluta­fjár í sam­stæð­unni. Á sama tíma var kaupum Pressunnar á Birtingi rift og Dalurinn keypti í kjöl­farið allt hlutafé þess fyr­ir­tækis. Það útgáfu­fé­lag gefur meðal ann­ars út Mannlíf í sam­starfi við Kjarnann.

Drama­tík­inni var þó hvergi nærri lokið. Í byrjun sept­em­ber var til­kynnt að Sig­­urður G. Guð­jóns­­son hæsta­rétt­­ar­lög­maður hef­ði ásamt hópi fjár­­­festa keypt

flesta lyk­ilmiðla Pressu­sam­stæð­unnar með hluta­fjár­aukn­ingu. Um var að ræða DV, DV.is, Pressuna, Eyjuna, Bleikt, ÍNN og tengda vefi. Eftir í gamla eign­ar­halds­fé­lag­inu voru skildir hér­aðs­frétta­miðlar. For­svars­menn Dalsins sögðu að þeir hefðu ekki vitað um þennan gjörn­ing fyrr en hann var afstað­inn.

Óljóst er hvort að ofan­greind við­skipti muni halda. Pressan var tekin til gjald­þrota­skipta í des­em­ber 2017 og skipta­stjóri skip­aður yfir búið. Grunur er uppi um lög­brot í starf­semi félags­ins, og hefur ný stjórn kært Björn Inga og Arnar Ægisson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna lög­brota. Þá verður skoðað hvort kröfu­höfum Pressunnar hafi verið mis­munað og hvort það eigi að rifta sölu á miðlum félags­ins.

365 og Vodafone runnu að mestu saman

Stærstu tíð­indin á fjöl­miðla­mark­aði á þessu mikla breyt­ing­ar­ári urðu þó lík­ast til um miðjan mars 2017, þegar til­kynnt var um að Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, hefði und­ir­ritað samn­ing um kaup á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að und­an­skildum eignum er varða útgáfu Frétta­blaðs­ins. Þeir miðlar sem selja átti yfir frá 365 miðlum voru Stöð 2 og tengdar sjón­­­varps­­­stöðv­­­­­ar, útvarps­­­­­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins (t.d. Bylgj­an, X-ið og FM957) og frétta­vef­­­ur­inn Vísir.is. Frétta­­­stofa 365 fylgdi með í kaup­un­um, en hún er ein stærsta frétta­­­stofa lands­ins og sú eina sem heldur úti dag­­­legum sjón­­­varps­frétta­­­tíma utan frétta­­­stofu RÚV.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa Fjar­skipta og flestra miðla 365 með skil­yrðum í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins. Keyptu eign­irnar fær­ðust yfir til Fjar­skipta 1. des­em­ber 2017.

Næst stærsta einka­rekna fjöl­miðla­sam­steypa lands­ins, Árvakur sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, gekk líka í gegnum breyt­ingar í fyrra. Fyr­ir­tækið fór á fullu í útvarps­rekstur og Eyþór Arnalds, nú fram­bjóð­andi í leið­toga­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, keypti rúm­lega fjórð­ungs­hlut í Árvakri.

Auk þess var greint frá því í októ­ber að Árvakur og Síminn myndu fram­leiða í sam­ein­ingu inn­lent sjón­varps­efni og dag­skrár­gerð á árinu 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

launakjör

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár