Tíu sveitarstjórnarmenn eru með meira en tvær milljónir króna í mánaðarlaun samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar.
[links]Tekjuhæsti sveitarstjórnarmaðurinn er Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar með um 2,6 milljónir króna á mánuði. Ármann Kr. Einarsson bæjarstjóri í Kópavogi er með um 2,5 milljónir í mánaðarlaun og Theódóra S. Þorsteinsdóttir einnig bæjarfulltrúi í Kópavogi með um 2,2 milljónir.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar er með 2,1 milljón í mánaðarlaun, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi með rétt rúmar 2 milljónir og hið sama gildir um Dag B. Eggertsson borgarstjóra Reykjavíkur.
Aðeins laun borgarstjórans í San Francisco í Bandaríkjunum, þar sem búa 900 þúsund manns, eru hærri en laun Gunnars og Ármanns samkvæmt síðu Wikipedia um laun borgarstjóra víða um heim.
Laun Dags B., sem er í 11. sæti listans eru hærri heldur en laun Bill de Blasio borgarstjóra New York borgar. Í New York búa 8,5 milljón manns. Íbúar Reykjavíkur eru 126 þúsund. Íbúar Garðabæjar eru 16 þúsund og í Kópavogi búa 36 þúsund manns. Íbúar Mosfellsbæjar eru rúmlega 10 þúsund og á Seltjarnarnesi búa tæplega 5 þúsund manns.
Laun Haraldar og Ásgerðar eru þau 13. og 14. hæstu samkvæmt síðunni, hærri heldur en mánaðarlaun til dæmis borgarstjóranna í Boston og London. Íbúafjöldin í London eru tæpar 9 milljónir.
Enginn sveitarstjórnarmaður á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar, sem sýnir mánaðarlaun 65 sveitarstjórnarmanna, er með laun sem eru lægri en 1,1 milljón á mánuði.

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2017 og þurfa ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Listi Wikipediu er augljóstlega ekki tæmandi eða 100 prósent áreiðanlegur, en gefur þó ágætan samanburð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















































Athugasemdir