Tekjur forstöðumanna trúfélaganna

Sjúkra­hús­prestur á Land­spít­ala launa­hæstur þeirra sem starfa fyrir trú­fé­lög. Hjörtur Magni Frír­kirkju­prestur næst­hæstur og Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir sú þriðja hæsta eftir umdeilda launa­hækkun í fyrra.

Bragi Skúlason sjúkra­hús­prestur á Land­spít­ala er launa­hæsti stjórn­andi trú­fé­lags lands­ins sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Hann er þar með rétt tæp­lega 1,5 milljón í mán­að­ar­tekjur.

[links]Hjörtur Magni Jóhanns­son frí­kirkju­prestur í Reykja­vík kemur þar á eftir með nokkurn veg­inn sömu laun.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup Íslands er með 1,3 millj­ónir sam­kvæmt Tekju­blað­inu.

Karl Sig­ur­björns­son fyrr­ver­andi bisk­iup Íslands er með 1,2 millj­ónir í mán­að­ar­laun og eins Sigurður Rúnar Ragn­ars­son sókn­ar­prestur í Norð­firði sem og Kristján Valur Ing­ólfs­son vígslu­biskup í Skál­holti.

Pálmi Matth­í­as­son prestur í Bústaða­presta­kalli er með 1,1 milljón á mán­uði, Þor­valdur Víðisson bisk­ups­rit­ari með sömu mán­að­ar­laun.

Í Tekju­blaði DV kemur fram að Hjálmar Jónsson fyrr­ver­andi Dóm­kirkju­prestur sé með 1,2 millj­ónir í mán­að­ar­laun, Sveinn Val­ger­is­son núver­andi Dóm­kirkju­prestur með 877 þús­und, Einar Eyj­ólfs­son frí­kirkju­prestur í Hafn­ar­firði með 941 þús­und í mán­að­ar­laun og Sigurður Árni Þórð­ar­son sókn­ar­prestur í Hall­gríms­kirkju með 869 þús­und.

Toshiki Toma prestur inn­flytj­enda er með 779 þús­und, Geir Waage sókn­ar­prestur í Reyk­holti með 775 þús­und í mán­að­ar­laun og Sindri Guð­jóns­son fyrr­ver­andi for­maður Vantrúar með 641 þús­und.

Salmann Tamimi for­maður Félags múslima á Íslandi er með 380 þús­und í tekjur á mán­uði og Gunnar Þor­steins­son kenndur við Krossinn með 270 þús­und. Hilmar Örn Hilm­ars­son alls­herj­ar­goði með 261 þús­und og Timur Zolotuskiy príor rúss­nesku rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar með skráðar tekjur upp á 171 þús­und á mán­uði.

Umdeild launahækkun biskups í fyrra

Undir lok síð­asta árs úrskurð­aði kjara­ráð um hækkun launa bisk­ups, Agn­esar Sig­urð­ar­dótt­ur, um tugi pró­senta. Í úrskurð­inum kom fram að biskup skuli hafa tæp­lega 1,2 millj­ónir í mán­að­ar­laun auk 40 fastra yfir­vinnu­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði. Hækk­unin var aft­ur­virk til 1. jan­úar 2017, sam­kvæmt úrskurð­in­um. Um ára­mótin fékk biskup því ein­greiðslu fyrir síð­asta árið en sú upp­hæð mun sam­kvæmt þessu hafa numið 3,3 millj­ónir króna.

Þjóð­kirkjan fær umtals­verða fjár­muni úr rík­is­sjóði. Þaðan er til að mynda greitt fram­lag til Bisk­ups Íslands, í Kirkju­mála­sjóð og Jöfn­un­ar­sjóð sókna. Sam­tals er áætlað að þessi upp­hæð verði 2.830 millj­ónir króna í ár. Til við­bótar fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni er. Ætla má að sú upp­hæð verði um 1.750 millj­ónir króna í ár. Sam­tals mun rekstur þjóð­kirkj­unnar því kosta tæp­lega 4,6 millj­arða króna í ár. Þá er ekki með­talið rúm­lega 1,1 millj­arðs króna fram­lag til kirkju­garða.

Frá árinu 2009 hefur með­­­­limum þjóð­­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári. Þeir voru 236.260 í byrjun árs 2017, eða 69,9 pró­­­­sent mann­­­­fjöld­ans. Það var í fyrsta sinn síðan að mæl­ingar hófust sem að fjöldi með­­­­lima hennar fer undir 70 pró­­­­sent mann­­­­fjöld­ans.

Meira en 100 þúsund utan þjóðkirkjunnar

Þeir íslensku rík­­­­­­is­­­­­­borg­­­­­­arar sem kusu að standa utan þjóð­­­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­­­­­ustu ald­­­­­­ar­­­­­­mót. Í dag eru 111.042 íbúar utan henn­ar, eða 32 pró­­­sent allra lands­­­manna. Fjöldi þeirra hefur því rúm­­­lega þre­fald­­­ast á þess­ari öld. Á síð­asta ári einu saman sögðu 3.738 manns sig úr þjóð­kirkj­unni, þar af 60 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Það er næst­­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­­anir um þöggun þjóð­­kirkj­unnar yfir meintum kyn­­ferð­is­­glæpum Ólafs Skúla­­son­­ar, fyrr­ver­andi bisk­­ups, voru settar fram. Þá fækk­­aði um 4.242 í þjóð­­kirkj­unni á einu ári.

Fjöldi þeirra íbúa á Íslandi sem skráðir eru utan trú- og lífs­­­skoð­un­­­ar­­­fé­laga hefur rúm­­­lega tvö­­­fald­­­ast frá því í byrjun árs 2010. Þá voru þeir sem voru skráðir utan slíkra félaga 10.336 tals­ins. Heild­­­ar­­­fjöldi þeirra í dag er yfir 22 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

launakjör

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Sérstöku stétt­irnar sem mega vera með mjög há laun

Haustið 2014 hófust verk­falls­að­gerðir lækna á Íslandi. Leið­ar­stefið í þeirri bar­áttu var kunn­ug­legt. Grunn­launin voru of lág, læknar voru of fáir og of margir þeirra voru á leið á eft­ir­laun. Þeir fóru fram á tug­pró­senta launa­hækk­anir og kerf­is­breyt­ingar. Það þurfti að taka þá „fram fyrir röð­ina“ til að ekki færi illa. „Leið­rétta“ það launa­órétt­læti sem þeir hefðu verið látnir sæta...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár