Styrkveitingar til framboðs Eyþórs mistök eða misskilningur

Stjórn­ar­for­maður Mjólk­ur­sam­söl­unnar segir styrk­veit­ingar eða bein fjár­fram­lög til stjórn­mála­flokka eða ein­stak­linga í stjórn­málum ekki hafa tíðkast hjá MS um langt ára­bil.

Mjólkursamsalan og Eyþór Arnalds
Mjólk­ur­sam­salan og Eyþór Arnalds Mynd: Samsett mynd.

Egill Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Mjólk­ur­sam­söl­unnar, segir í sam­tali við Kjarnann að lík­leg­ast hafi verið um mis­skiln­ing eða mis­tök að ræða þegar Mjólk­ur­sam­salan lagði fram fjár­muni í fram­boð Eyþórs Arnalds í leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Styrk­veit­ingin hafi ekki verið sam­þykkt í stjórn MS og að þau hafi ekki verið með bein fjár­fram­lög til stjórn­mála­flokka í langan tíma.

Athygli hefur vakið að Mjólk­ur­sam­salan ehf. lagði fram 200 þús­und krónur í fram­boð Eyþórs en það kemur fram í útdrætti úr upp­gjöri fram­boðs­ins sem hann skil­aði til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

„Ég átta mig ekki á hvað hefur farið úrskeiðis,“ segir Egill varð­andi styrk­veit­ingar til Eyþórs en hann bætir því að verið sé að fara yfir málið og að það verði sér­stak­lega tekið fyrir á næsta stjórn­ar­fundi þann 24. maí næst­kom­andi.

Athuga­semd gerð kl. 14:20: Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur Eyþór end­ur­greitt styrk­inn. Egill segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi fyrir hádegi haft frum­kvæði að því að greiða styrk­inn til baka. Aldrei hafi verið heim­ild fyrir þessum styrk og telj­ist mál­inu því lokið.


Framboð Eyþórs kost­aði sam­tals rúmar 4,9 millj­ónir króna en fram­lög til þess voru rúmar 3,3 millj­ónir króna, þar af ein milljón sem Eyþór lagði sjálfur til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár