Jóhannes Þór nýr framkvæmdastjóri SAF

Fyrrum aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs var val­inn úr hópi 41 umsækj­anda.

Jóhannes Þór Skúlason.
Jóhannes Þór Skúlason. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jóhannes Þór Skúlason, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef sam­tak­anna í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni var Jóhannes Þór val­inn úr hópi 41 umsækj­anda um starfið.

Jóhannes Þór tók þátt í starfi InDefence hóps­ins svo­kall­aða, sem barð­ist gegn Icesave-samn­ing­unum, frá banka­hruni og fram í febr­úar 2011. Þá tók hann við starfi aðstoð­ar­manns þáver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem þá var í stjórn­ar­and­stöðu.

Eftir að Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar 2013 varð Jóhannes Þór aðstoð­ar­maður hans í for­sæt­is­ráðu­neytið og helsti ræðu­höf­undur. Því starfi gegndi Jóhannes Þór þar til að Sig­mundur Davíð sagði af sér emb­ætti í apríl 2016 vegna Wintris-máls­ins.

Jóhannes stofn­aði svo ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Orðspor í fyrra, en tók aftur til starfa sem aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar, þá sem odd­viti Mið­flokks­ins.

Jóhannes Þór hefur störf hjá SAF 10. júní næst­kom­andi. Hann tekur við af Helgu Árna­dóttur sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna frá árinu 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár