Jóhannes Þór stofnar ráðgjafafyrirtæki

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hefur stofnað ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Orðspor ásamt fleirum.

Jóhannes Þór Skúlason var aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í forsætisráðuneytinu.
Jóhannes Þór Skúlason var aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jóhannes Þór Skúlason, sem var aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um ára­bil, hefur stofnað ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Orðspor ásamt fleira fólk. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Jóhannes Þór að fyr­ir­tækið muni veita „

ráð um ýmsa hluti, t.d. almanna­tengsl, fjöl­miðla­sam­skipti, við­burða­stjórn og fleira.“

Jóhannes Þór tók þátt í starfi InDefence hóps­ins svo­kall­aða, sem barð­ist gegn Icesave-samn­ing­unum, frá banka­hruni og fram í febr­úar 2011. Þá tók hann við starfi aðstoð­ar­manns þáver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem þá var í stjórn­ar­and­stöðu. Eftir að Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar 2013 varð Jóhannes Þór aðstoð­ar­maður hans í for­sæt­is­ráðu­neytið og helsti ræðu­höf­undur. Því starfi gegndi Jóhannes Þór þar til að Sig­mundur Davíð sagði af sér emb­ætti í apríl 2016 vegna Wintris-máls­ins.

Jóhannes Þór hefur tekið undir á skoðun Sig­mundar Davíðs að hann hafi verið leiddur í gildru af óheið­ar­legum fjöl­miðla­mönnum í því máli. Í ágúst 2016 skrif­aði hann um sam­skipti sín við Jóhannes Kr. Krist­jáns­son og sænska rík­is­út­varpið SVT á heima­síðu sína og sagði að hann hefði „aldrei, aldrei, kynnst við­líka óheið­ar­leika, virð­ing­ar­leysi og lygum af hálfu fjöl­miðla­manna gagn­vart við­mæl­endum eða starfs­fólki eins og SVT og Jóhannes Krist­jáns­son sýndu af sér í þessu til­felli. Satt að segja á ég erfitt með að finna annað eins dæmi í lífi mínu almennt um fólk sem hefur sýnt af sér hegðun sem kemst í hálf­kvisti við þetta.“

Jóhannes Þór starf­aði áfram sem aðstoð­ar­maður for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins þar til að Sig­mundur Davíð tap­aði for­manns­kosn­ingu í flokknum í byrjun októ­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár