Um hvað er kosið í Reykjavík?

Sautján listar hafa boðað fram­boð í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík. Ótrú­legur fjöldi fólks gefur kost á sér. Kosn­ing­arnar virð­ast ætla að snú­ast mest megnis um sam­göngu- og hús­næð­is­mál, auk skóla­mál­anna og síðan ein­stökum áherslum flokk­anna sjálfra.

Sautján listar hafa boðað fram­boð í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Reykja­vík sem fram fara þann 26. maí næst­kom­andi.

Átta fram­boð, Sam­fylk­ing­ar­innar, Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna, Við­reisnar, Alþýðu­fylk­ing­ar­innar, Höf­uð­borg­ar­list­ans, Sósa­lista­flokk­ur­inn og Frels­is­flokks­ins, hafa kynnt full­mann­aða lista. Sjö til við­bótar hafa kynnt fólk á efstu sætum lista sinna, en það eru Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Píratar, Mið­flokk­ur­inn, Íslenska þjóð­fylk­ingin, Flokkur fólks­ins, Borgin okkar - Reykja­vík og Kalla­list­inn. Bæði Kvenna­fram­boðið hefur boðað komu sína sem og Karla­fram­boð.

Fari svo að allir þessir flokkar eða hópar bjóði fram verður áður óséður fjöldi í fram­boði. Borg­ar­full­trúum verður fjölgað úr 15 eftir kom­andi kosn­ingar í 23 og verða þá rúm­lega 5.000 kjós­endur á bak við hvern borg­ar­full­trúa í stað rúm­lega 8.000. Alls eru að lág­marki 23 og að hámarki 46 á lista hvers fram­boðs í Reykja­vík. Sautján fram­boð gera þannig minnst 391 fram­bjóð­endur og mest 782 fram­bjóð­endur. Til sam­an­burðar má nefna að í 36 af 74 sveit­ar­fé­lögum á land­inu eru íbúar færri en 782. Í 19 sveit­ar­fé­lögum búa færri en 391.

Ekki er hörgull á val­kostum fyrir borg­ar­búa í kom­andi kosn­ingum. En um hvað snýst þessi kosn­inga­bar­átta? Hvað eru fram­bjóð­endur að bjóða upp á til að veiða til sín atkvæði og af hverju?

Samgöngumál

Umferð­ar­málin vega þungt í umræðu um skipu­lags­mál fyrir þessar kosn­ingar og þá fyrst og síð­ast afstaða flokk­anna til borg­ar­lín­unnar svoköll­uðu. Um er að ræða nýtt og afkasta­mikið kerfi almenn­ings­sam­gangna sem sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­búa í sam­ein­ingu. Borg­ar­línan mun ganga eftir sam­göngu- og þró­unar­ásum sem verið er að festa í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Flokk­arnir eru með mjög mis­mun­andi afstöðu til borg­ar­línu. Þeir flokkar sem mynda núver­andi meiri­hluta, auk Við­reisnar, eru allir fylgj­andi áfram­hald­andi þróun og lagn­ingu borg­ar­línu, á kostnað áfram­hald­andi upp­bygg­ingar vega­kerf­is­ins í þágu einka­bíls­ins. Aðrir flokkar eru annað hvort á móti borg­ar­lín­unni og fylgj­andi upp­bygg­ingu breið­ari vega og mis­lægra gatna­móta eða hafa ekki kynnt stefnu sína í sam­göngu­málum. Þó er það þannig að flestir flokkar hafa efl­ingu almenn­is­sam­gangna á stefnu­skrám sínum, sem þeir aðgreina frá borg­ar­línu.

Húsnæðismál

Hús­næð­is­skortur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur umtals­verð áhrif á umræðu í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna.

Þétting byggðar eða áfram­hald­andi upp­bygg­ing í úthverfum borg­ar­innar skipt­ist nokkurn veg­inn á svip­aðan hátt á milli flokka. Meiri­hlut­inn auk Við­reisnar vilja leggja alla áherslu á áfram­hald­andi þétt­ingu byggðar, auk þess að færa flug­völl­inn til að koma þar fyrir íbúa­byggð. Aðrir flokkar sem hyggja á fram­boð og hafa áþreif­an­lega stefnu í skipu­lags­málum vilja hægja á þétt­ing­unni og bjóða upp á nýjar lóðir og íbúðir í úthverfum líkt og í Keldum, Úlf­arsár­dal, Norð­linga­holti, Kjal­ar­nesi og í Örfirisey.

Flokk­arnir kepp­ast við að lofa hraðri upp­bygg­ingu á kom­andi kjör­tíma­bili. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur lofað 2.000 nýjum íbúðum að jafn­aði á ári, Höf­uð­borg­ar­list­inn býður betur og ætlar að byggja 10.000 íbúðir á kjör­tíma­bil­inu. Aðrir flokkar lofa einnig auknu fram­boðið á hag­kvæmu hús­næði fyrir ungt og efna­m­inna fólk.

Skóla- og daggæslumál

Biðlistar í grunn- og leik­skólum, frí­stunda­heim­ilum, auk dag­gæslu­úr­ræða til að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla hafa vin­sælt umkvört­un­ar­efni for­eldra í borg­inni á kjör­tíma­bil­inu. Síðasta haust vant­aði um 80 stöðu­gildi í grunn­skóla borg­ar­innar.

Þeir flokkar sem hafa kynnt stefnu sína sér­stak­lega í skóla­málum vilja allir brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla, annað hvort með upp­bygg­ingu dag­for­eldra­kerf­is­ins eða bjóða leik­skóla­pláss fyrir börn frá 12 mán­aða aldri.

Flokk­arnir ætla að styrkja stöðu kenn­ara og bæta kjör þeirra og starfs­að­stæður, bæði á leik- og grunn­skóla­stigi.

Lítill munur virð­ist vera á stefnu flokk­anna þegar kemur að þessum málum, lík­legt má telja að trú­verð­ug­leiki ein­stakra flokka eða fram­bjóð­enda muni ráða atkvæðum fólks í þessum mála­flokki frekar en stefnu­málin sjálf.

Önnur mál

Töluvert er um svo­kall­aða eins máls flokka í þessum kosn­ing­unum. Þó að flestir hinna nýju flokka hafi ágæt­lega breiðar stefnu­skrár er ljóst að margir þeirra verða til vegna eins ákveð­ins máls sem þeir munu leggja alla áherslu á kom­ist þeir til valda.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn er með skýrar sós­íal­ískar áherslur, rétt­indi hinna vinn­andi stétta í borg­inni verða þar fremst í flokki. Fleiri úrræði fyrir efna­m­inna fólk, launa­hækk­anir hjá starfs­mönnum borg­ar­innar, upp­bygg­ing félags­legs hús­næðis og frek­ari völd til fólks­ins. Alþýðu­fylk­ingin rær einnig á svipuð mið og vill félags­legan rekstur á öllum innviðum borg­ar­innar. Flokkur fólks­ins sem náði manni inn á Alþingi í fyrra er með afar svip­aðar áherslur og hefur einnig ein­blínt tölu­vert á rétt­indi barna í borg­inni og eldra fólks. Munurinn á Flokki fólks­ins og hinum tveimur virð­ist þó helst vera skortur á skýrri hug­mynda­fræði­legri stefnu, eins og sést bæði hjá Sós­í­alista­flokknum og Alþýðu­fylk­ing­unni.

Íslenska þjóð­fylk­ingin og Frels­is­flokk­ur­inn leggja báðir áherslu á þjóð­ern­is­hyggju, og berj­ast gegn alþjóða­væð­ingu og fjöl­menn­ing­ar­stefnu.

Kvenna­fram­boðið leggur eðli máls­ins sam­kvæmt allar sínar áherslur á femínísk gildi, án þess að hafa stefnu í mál­efnum aðskildra hópa. Gera má ráð fyrir að Karla­fram­boð muni hafa þver­öf­ugar áherslur, en flokk­ur­inn var stofn­aður út frá ósætti við mál­efni frá­skyldra feðra.

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans eiga átta flokkar mesta mögu­leika á að ná manni inn í borg­ar­stjórn eins og staðan er núna. Það eru Sam­fylk­ingin, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Vinstri græn, Píratar, Viðreisn, Mið­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, það er að segja sömu flokkar og eiga full­trúa á Alþingi. Sú staða gæti auð­vitað breyst enda enn um mán­uður í kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár