Tíu staðreyndir um Reykjavíkurborg

Framundan eru borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík. Þegar litið er fram­hjá mál­efna­skylm­ingum stjórn­mála­flokka, og áherslumun þeirra við stjórnun höf­uð­borg­ar­innar, þá standa eftir naktar stað­reyndir.

1. Höfuðborg Íslands

Reykja­vík er höf­uð­borg Íslands og mið­stöð stjórn­sýslu íslenska rík­is­ins. Þar eru helstu stofn­anir lög­gjafa-, fram­kvæmda- og dóms­valds með heim­il­is­festi. Und­an­tekn­ingin er Lands­réttur, sem er í Kópavogi. Reykja­vík er auk þess eina borg lands­ins. Hún er 277,1 fer­kíló­metrar að stærð. Borg­ar­stjóri Reykja­víkur er sem stendur Dagur B. Egg­erts­son.

2.Fjöldi Íbúa

Í­búum í Reykja­vík hefur fjölgað um 3,7 pró­sent frá byrjun árs 2014 og fram til síð­ustu ára­móta. Alls bjuggu 124.847 manns í höf­uð­borg­inni í byrjun þessa árs sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá Hagstofu Íslands. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu bjuggu tæp­lega 223 þús­und manns um síð­ustu ára­mót.

3. Fjölmennasta hverfið

Fjöl­menn­asta hverfi borg­ar­inn­ar, sam­kvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unn­ar, er Vest­ur­bær-­Syðri, þar sem búa 10.831. Næst fjöl­menn­asta hverfið er Efra-Breið­holt. Þar bjuggu 9.481 í upp­hafi árs 2018. Í þriðja sæti var Selja­hverfið með 8.502 íbúa.

4. Fjölmennasta póstnúmerið

Í tölum Hag­stofu Íslands er einnig hægt að sjá fjölda íbúa eftir póst­núm­er­um. Þar sést að flestir höf­uð­borg­ar­búa búa í póst­núm­eri 105, eða 17.229 tals­ins. Þeim hefur fjölgað um 6,2 pró­sent á yfir­stand­andi ­kjör­tíma­bili. Innan þess póst­núm­ers er meðal ann­ars að finna Hlíð­ar, hluta Laug­ar­dals, Álfta­mýri og Múla­hverf­ið. Póst­núm­erið teygir sig auk þess alla leið niður að Snorra­braut og Norð­ur­mýrin er því einnig innan þess póst­núm­ers. Næst fjöl­menn­asta póst­núm­erið er 112, eða Graf­ar­vog­ur. Þar búa 16.931.

5. Fjöldi útlendinga

Öll íbúa­fjölgun í Reykja­vík í fyrra var vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til borg­ar­inn­ar. Borg­ar­búum fjölg­aði um 2.800 á árinu 2017 og erlendum rík­is­borg­urum sem búa í höf­uð­borg­inni fjölg­aði á saman tíma um 3.140. Þeir eru nú 15.640 tals­ins. Erlendum íbúum höf­uð­borg­ar­innar hefur fjölgað um 70 pró­sent frá byrjun árs 2012.

6. Heimilslausir

Óstað­settum í Reykja­vík, þeim sem eru ekki með skráð lög­heim­ili eða búa á göt­unni, fjölg­aði um 74 pró­sent á frá byrjun árs 2014 og fram að síð­ustu ára­mót­um. Þeir eru nú 661 tals­ins og hafa aldrei verið fleiri. Í fyrra fjölg­aði þeim um 23,7 pró­sent alls.

6. Félagslegar íbúðir

Í lok árs 2016 átti Reykja­vík­­­ur­­borg 2.445 félags­­­legar íbúð­­ir. Það voru 19,7 slíkar íbúðir á hverja þús­und íbúa. Í fyrra fjölg­aði þeim um á annað hund­rað. Til sam­an­burðar má nefna að í Garðabæ eru 35 slík­­­ar íbúðir, 30 í Mos­­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­­ar­­nesi. Í lok árs 2016 átti Reykja­vík um helm­ing alls félags­legs hús­næðis í land­inu. Ef nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lögin fimm á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndu ætla að ná Reykja­vík í fram­boði á slíku þyrftu þau að fjölga félags­legu hús­næði um 1.080.

7. Batnandi afkoma

A-hluti borg­ar­inn­ar, sem er sú starf­semi hennar sem er að hluta eða öllu leyti fjár­mögnuð með skatt­tekj­um, hefur verið í járnum á und­an­förnum árum. Árin 2014 og 2015 var hún til að mynda nei­kvæð upp á 16,4 millj­arða króna. Þetta breytt­ist 2016 þegar afkoma hennar var jákvæð um 2,6 millj­arða króna. Í fyrra var rekst­ar­nið­ur­staðan svo jákvæð um tæpa fimm millj­arða króna, sem var 3,2 millj­örðum krónum betri nið­ur­staða ne reiknað hafði verið með í áætl­unum.Rekstr­ar­nið­ur­staðan áfram að vera góð árin 2019 til 2022 og vera þá lægst 5,6 millj­arðar króna árið 2019 og mest 10,8 millj­arðar króna.

8. Fasteignagjöld hækkað mikið

Inn­heimt fast­eigna­gjöld í Reykja­vík hafa auk­ist um 50 pró­sent frá árinu 2010. Vegna þess árs inn­heimti Reykja­vík­ur­borg tæp­lega 12,1 millj­arð króna í fast­eigna­gjöld. Samkvætm árs­reikn­ingi skil­uðu fast­eigna­skatt­ar­rúmum 16 millj­örðum árið 2017 og eiga, sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun, að skila 20,3 millj­örðum króna árið 2018. Þessi mikla tekju­aukn­ing er drifin áfram af því að fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og raun­verð fast­eigna hefur aldrei verið hærra en það er nú um stund­ir.

9. Húsnæðismál

Í lok árs 2017 voru 52.115 íbúðir í Reykja­vík. Á árinu 2017 var hafin smíði á 923 nýjum íbúðum og er það sami fjöldi og á sl. ári þegar smíði hófst á 922 íbúðum. Að jafn­aði frá árinu 1972 hefur verið hafin smíði á 623 íbúðum á ári. Flestar voru þær árið 1973 með 1133 íbúðir, 992 árið 1986 og 983 árið 2005. Fæstar voru þær yfir árin 2009 til 2011 þar sem hafin var smíði á 159 íbúðum árið 2009, ein­ungis 10 íbúðum árið 2010 og 113 árið 2011. Fjöldi nýrra íbúða á sl. ári var sá fjórði mesti frá 1972 og árin 2016 og 2015 með fimmta og sjötta mesta fjölda yfir 45 ára tíma­bil. Töluverð aukn­ing er því í bygg­ingu nýrra íbúða á síð­ast­liðnum árum.

10. Stærsta fyrirtækið

Borgin á nokkur fyr­ir­tæki. Mik­il­væg­ast og umsvifa­mest þeirra er Orku­veita Reykja­víkur, sem Reykja­vík­ur­borg á langstærstan hlut í. Rekstur sam­stæðu Orku­veitu Reykja­víkur skil­aði drjúgum hagn­aði á síð­asta ári, eða 16,3 millj­örðum króna. Staða fyr­ir­tæk­is­ins hefur breyst mikið á síð­ustu árum, en hún var mjög erfið þegar ráð­ist var í aðgerð­ar­á­ætl­un­ina „Planið“ árið 2011. Hún átti að skila lið­lega 50 millj­örðum króna í betri sjóð­stöðu út árið 2016 en nið­ur­staðan varð um 60 millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár