Tekið fyrir að stjórnarmenn í lífeyrissjóðum geti átt í sömu fyrirtækjum og sjóðirnir

Nýtt sam­komu­lag setur hömlur á hversu lengi sömu ein­stak­lingar geta setið í stjórnum líf­eyr­is­sjóða. Það skikkar líka stjórn­ar­menn sem eiga hluti í fyr­ir­tækjum sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á líka í til að selja þá eða koma þeim fyrir í eigna­stýr­ingu.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, skrifa undir samkomulagið í gær.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, skrifa undir sam­komu­lagið í gær. Mynd: SA

Stjórn­ar­menn í líf­eyr­is­sjóðum munu ein­ungis geta setið í átta ár, þeir mega ekki sitja í stjórn, eiga eign­ar­hlut eða stunda við­skipti fyrir eigin reikn­ing í fyr­ir­tækjum sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á hlut í og árs­fundur líf­eyr­is­sjóða mun héðan í frá hafa æðsta vald í mál­efnum þeirra.

Þetta eru lyk­il­breyt­ingar í nýju sam­komu­lagi um stjórn­kerfi líf­eyr­is­sjóða, milli Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) og VR ann­ars vegar og sam­tök vinnu­veit­enda hins vegar sem und­ir­ritað var í gær. Sam­komu­lagið felur því í sér umtals­verðar breyt­ingar á því fyr­ir­komu­lagi sem verið hefur við val á stjórn­ar­mönnum í stjórnir líf­eyr­is­sjóða. Sam­komu­lagið kemur í stað eldri samn­inga frá árunum 1995 og 1996.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, var einn þeirra sem und­ir­rit­uðu sam­komu­lagið í gær. Hann segir það vera jákvæða breyt­ingu í átt að auknu sjóð­fé­laga­lýð­ræði. „Það verður meiri fag­mennska við val og kjör á stjórn­ar­mönnum í stjórnir líf­eyr­is­sjóða.“

Samn­ing­ur­inn nær til Birtu líf­eyr­is­sjóðs, Festu líf­eyr­is­sjóðs, Gildis, Líf­eyr­is­sjóðs Rang­æ­inga, Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, Líf­eyr­is­sjóðs Vest­manna­eyja og Stapa líf­eyr­is­sjóðs.

Hægt er að lesa sam­komu­lagið í heild sinni hér.

Komið í veg fyrir hagsmunaárekstra

Líkt og áður sagði er um umtals­verðar breyt­ingar að ræða. Við­mæl­endur Kjarnans segja að um ákveð­inn milli­leik sé að ræða. Uppi hafi verið kröfur um stór­aukið sjóðs­fé­laga­lýð­ræði sem myndi losa tök ASÍ og Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Til þess að bregð­ast við þeirri stöðu hafi verið ákveðið að koma til móts við hluta þeirra krafna í þróun á stjórn­ar­háttum.

Helstu breyt­ing­arnar eru þær að nú má stjórn­ar­maður ein­ungis sitja í stjórn líf­eyr­is­sjóðs í átta ár en mátti áður sitja eins lengi og hann vildi. Þá mega stjórn­ar­menn eða starfs­menn líf­eyr­is­sjóða ekki lengur sitja í stjórnum fyr­ir­tækja sem sjóð­irnir eiga í í umboði hans og mun skýr­ari reglur eru settar til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra. Þar skiptir mestu máli að stjórn­ar­menn mega ekki sitja í stjórn, eiga eign­ar­hlut eða stunda við­skipti fyrir eigin reikn­ing í fyr­ir­tækjum sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á hlut í nema um óveru­legar fjár­hæðir sé að ræða. Í sam­komu­lag­inu segir enn fremur að „eigi stjórn­ar­maður veru­legan hlut í fyr­ir­tæki á skráðum verð­bréfa­mark­aði við upp­haf stjórn­ar­setu ber honum að selja hlut­inn, koma honum í eigna­stýr­ingu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki eða eiga ekki við­skipti með við­kom­andi hluta­bréf á meðan hann á sæti í stjórn sjóðs­ins.“

Þá mun árs­fundur líf­eyr­is­sjóða hafa æðsta vald í mál­efnum þeirra.

Sérstakt fulltrúaráð skipað

Auk þess felst í sam­komu­lag­inu að skipað verður sér­stakt full­trúa­ráð sem verður að jöfnu skipað full­trúum stétt­ar­fé­laga sem aðild eiga að við­kom­andi líf­eyr­is­sjóði og full­trúum atvinnu­rek­enda.

Í sam­komu­lag­inu segir að full­trúar „í full­trúa­ráð­inu skulu koma úr hópi sjóð­fé­laga eða stjórn­enda fyr­ir­tækja sem eru greið­endur til sjóðs­ins. Stétt­ar­fé­lög sem aðild eiga að líf­eyr­is­sjóði skulu gera með sér form­legt sam­komu­lag um val og skipt­ingu full­trúa sinna í full­trúa­ráðið. Full­trúar sam­taka atvinnu­rek­enda skulu valdir úr hópi stærstu launa­greið­enda til sjóðs­ins eða hags­muna­sam­tökum atvinnu­rek­enda. Um fjölda full­trúa í full­trúa­ráði skal að öðru leyti kveða á um í sam­þykktum við­kom­andi líf­eyr­is­sjóðs.“

Þá munu stjórn­ar­menn og fram­kvæmda­stjórar líf­eyr­is­sjóða, sem falla undir gild­is­svið samn­ings­ins auk full­trúa frá ASÍ og SA, mynda sam­ráðs­hóp um líf­eyr­is­mál. „Hópurinn hitt­ist að jafn­aði tvisvar á ári til að ræða stöðu og þróun líf­eyr­is­kerf­is­ins, mál­efni líf­eyr­is­sjóð­anna og fram­vindu á grund­velli kjara­samn­ings þessa. ASÍ og SA bera ábyrgð á und­ir­bún­ingi og boðun fund­anna til skiptis.“

Arfleið Helga Magnússonar

Að stóru leyti er um sam­bæri­legar breyt­ingar að ræða og VR réðst í gagn­vart þeim stjórn­ar­mönnum sem sátu í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna fyrir rúmum tveimur árum. Þá ályktaði VR meðal ann­ars að óásætt­an­legt væri að stjórn­ar­menn í sjóðnum ættu hlut í fyr­irt­kjum sem sjóð­ur­inn fjár­festi í. Samtök iðn­að­ar­ins höfðu áður sett starfs­reglur hjá sér að full­trúi þeirra í sjóðnum mætti ein­ungis sitja í sex ár.

Á þeim tíma hverfð­ist umræðan mikið um per­sónu Helga Magn­ús­sonar, þá vara­for­manns Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns sjóðs­ins sem á sama tíma var umsvifa­mik­ill fjár­festir í íslensku við­skipta­lífi. Skýrsla sem Talna­könnun vann fyrir Sam­tök spari­fjár­eig­enda haustið 2016 sýndi að Helgi ætti eign­ar­hluti í Marel og N1 og að mark­aðsvirði þeirra væri nokkur hund­ruð millj­ónir króna. Hann sat í stjórnum beggja fyr­ir­tækja, ­sam­hliða stjórn­ar­setu í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, sem var hlut­hafi í þeim báðum.

Helgi bauð sig ekki fram til áfram­hald­andi setu í stjórn sjóðs­ins vorið 2016, eftir að hafa setið í henni í níu ár. Margir við­mæl­enda Kjarnans nefndu Helga að fyrra bragði sem dæmi um ein­stak­ling sem gæti ekki setið í stjórn t.d. Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna eftir þær breyt­ingar sem gerðar voru í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár