Áherslur Samfylkingar: Borgarlína, Miklabraut í stokk og leikskóli fyrir árs gömul börn

Sam­fylk­ingin vill að Reykja­vík­ur­borg fjár­magni sér­stakt félag ríkis, borgar og ann­arra sveit­ar­fé­laga til að ráð­ast í gerð Borg­ar­línu og að setja Miklu­braut í stokk. Ríkið gæti svo greitt sinn hluta á lengri tíma.

Af fundinum í dag.
Af fund­inum í dag. Mynd: Samfylkingin

Sam­fylk­ingin ætlar að leggja áherslu á upp­bygg­ingu Borg­ar­línu, að setja Miklu­braut í stokk, að tryggja börnum sem eru 12 til 18 mán­aða gömul leik­skóla­pláss og tryggja ungu fólki og fyrstu kaup­endum 500 íbúðir. Þetta kom fram í máli Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra í Reykja­vík og odd­vita flokks­ins, þegar hann kynnti kosn­inga­á­herslur hans í Gamla bíó í dag.

[links]Í ræðu sinni sagði Dagur að næsta verk­efni í almenn­ings­sam­göngum væri að klára samn­inga við ríkið og hefja fram­kvæmdir við gerð Borg­ar­línu strax á næsta ári. Fjár­hags­legur styrkur borg­ar­innar gæti nýst til að hraða verk­efn­inu. Sömu sögu væri að segja af þeirri fram­kvæmd að setja Miklu­braut í stokk. Reykja­vík­ur­borg gæti tryggt fjár­magn til stokks­ins þótt að fram­lög rík­is­ins til verk­efn­is­ins kæmu inn á lengri tíma.

Í til­kynn­ingu frá Sam­fylk­ing­unni vegna kosn­inga­á­hersln­anna segir að hún vilji að Reykja­vík­ur­borg „bjóð­ist til að fjár­magna sér­stakt félag ríkis, borgar og ann­arra sveit­ar­fé­laga sem myndi ráð­ast í þessi verk­efni strax, þótt greiðslur ríkis og ann­arra kæmu til á lengri tíma. Þannig myndu jákvæð áhrif umferð, umhverfi og upp­bygg­ingu koma fram strax á næstu árum.“

Skattgreiðendur í Reykjavík gætu ekki einir borið ábyrgð á hinum verst settu

Dagur hvatti önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að taka þátt í upp­bygg­ingu fyrir þá verst settu í sam­fé­lag­inu, en mik­ill munur hefur verið á t.d. fjölda félags­legra íbúða í Reykja­vík ann­ars vegar og t.d. Garðabæ og Sel­tjarn­ar­ness hins vegar. Hann sagði að skatt­greið­endur í Reykja­vík gætu ekki einir og sér borið ábyrgð á þeim hópi sem íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og lands­ins alls eigi að bera sam­eig­in­lega.

[adspot]Dagur fór fyrir að mesta íbúa­fjölgun í 30 ár eigi sér nú stað í Reykja­vík og sagði að aldrei hafi fleiri íbúðir farið í upp­bygg­ingu á nokkru öðru kjör­tíma­bili í sögu borg­ar­innar.

Næsta verk­efni á sviði hús­næð­is­mála yrði að tryggja ungu fólki og fyrstu kaup­endum 500 íbúðir í Gufunesi, Úlf­arsár­dal, Bryggju­hverfi, Skerja­firði, á Veð­ur­stofu­hæð og á lóð Stýri­manna­skól­ans.

12 til 18 mánaða börn eiga að komast á leikskóla

Í máli Dags kom fram að sú mann­ekla sem hafi verið á leik­skólum borg­innar væri á góðri leið með að leys­ast þótt að það yrði áfram við­var­andi verk­efni að fjölga starfs­fólki.

Næsta verk­efni sem hægt yrði að ráð­ast í á næsta kjör­tíma­bili væri að klára upp­bygg­ingu leik­skól­ana og brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. í til­kynn­ing­unni segir að byggja þurfi sex nýja leik­skóla og fjölga leik­skóla­plássum um 800 á kjör­tíma­bil­inu, opna sjö nýjar ung­barna­deildir og sex nýjar leik­skóla­deildir þar sem eft­ir­spurnin er mest strax í haust. Þess vegna yrði hægt á næsta kjör­tíma­bili að bjóða 12 til 18 mán­aða börnum pláss á leik­skólum borg­ar­innar.

Mælast með 30 prósent fylgi

Kjarninn birti fyrstu kosn­inga­spá sína fyrir kom­andi kosn­ingar í morgun. Samkvæmt spánni myndi Sam­fylk­ingin fá 30 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og átta borg­ar­full­trúa. Hún yrði sam­kvæmt því stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir kosn­ing­arnar. Það er aðeins minna fylgi en flokk­ur­inn fékk 2014 þegar 31,9 pró­sent kjós­enda kusu hann. Þá fékk hann fimm borg­ar­full­trúa en sú breyt­ing verður gerð eftir kom­andi kosn­ingar að borg­ar­full­trúum verður fjölgað úr 15 í 23. Atkvæði á bak við hvern borg­ar­full­trúa sem nær kjöri verða því mun færri en þau voru fyrir fjórum árum og nú þarf tólf borg­ar­full­trúa til að mynda meiri­hluta, en áður þurfti átta til þess. [chart]

Þeir þrír flokkar sem mynda núver­andi meiri­hluta í höf­uð­borg­inni og mæl­ast með mann inni, Sam­fylk­ing, Vinstri græn og Píratar, eru með meiri­hluta atkvæða á bak við sig. Þeir gætu því haldið sam­starfi sínu áfram ef vilji væri til ef kosið yrði í dag.

Þrír nýir flokkar myndu ná manni inn í borg­ar­stjórn og staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins er mjög svipuð og hún var eftir kosn­ing­arnar 2014. Allt útlit er fyrir að minnsta kosti sjö flokkar fái borg­ar­full­trúa kjörin í kosn­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár