Segir mjög lítinn mun á Eyþóri Arnalds og Vigdísi Hauksdóttur

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík er gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans í kvöld. Þar talar hann afdrátt­ar­laust um hvaða flokka hann geti hugsað sér að vinna með eftir kosn­ingar. Og hvaða flokka hann telur ekki flöt á sam­starfi við.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, segir að það sé mjög lít­ill munur á mál­flutn­ingi Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna, og Vigdísi Hauks­dóttur, odd­vita Mið­flokks­ins, þegar kemur að helstu borg­ar­málum. Hann sér ekki fyrir sér að Sam­fylk­ingin geti unnið með þeim flokkum né öðrum sem leggj­ast gegn gild­andi skipu­lagi í Reykja­vík.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut sem frum­sýndur er klukkan 21 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins í spil­ar­anum hér að ofan.

Dagur segir að það sé óljóst eftir því hvaða fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins tali hver stefna flokks­ins sé nákvæm­lega í sam­göngu­málum, og þar með í afstöðu gagn­vart Borg­ar­línu. „En síð­ast í gær í borg­ar­stjórn þegar verið var að greiða atkvæði um breyt­ingar á svæð­is­skipu­lagi út af Borg­ar­línu þá greiddi borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins atkvæði gegn þeirri breyt­ingu. Reyndar vant­aði Halldór Hall­dórs­son og Áslaugu Frið­riks­dóttur, sem hefur verið ýtt svo­lítið til hliðar núna í aðdrag­anda kosn­inga innan flokks­ins. En þar krist­all­að­ist bein and­staða. Eins og hjá odd­vita sjálf­stæð­is­manna hingað til. Vigdís Hauks­dóttir og Eyþór Arnalds tala býsna líkt um þessi mál, eins og í fleiri málum. Það er mjög lít­ill munur á Eyþóri Arnalds og Vigdísi Hauks­dóttur, sýn­ist mér.“

Í þætt­inum verður einnig farið yfir hverjar kosn­inga­á­herslur Sam­fylk­ing­ar­innar verða, og Dagur er spurður út í gagn­rýni á frammi­stöðu meiri­hlut­ans í t.d. rekstri borg­ar­innar og dag­vist­un­ar­málum.

Í næstu viku verður Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna, gestur þátt­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár