Tekist á um meinta spillingu embættismanna - aðalmeðferð í miskabótamáli Hreiðars Más

Sér­stakur sak­sókn­ari not­aði Hér­aðs­dóm Vest­ur­lands til að fá rann­sókn­ar­heim­ildir gegn Kaup­þings­mönnum, vegna tengsla starfs­manna dóm­stóls­ins í Reykja­vík við Kaupþing. Þetta kom fram í aðal­með­ferð í máli Hreiðars Már Sig­urðs­sonar gegn íslenska rík­inu í dag

Aðal­með­ferð fer fram í máli Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, gegn íslenska rík­inu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Hreiðar Már stefndi rík­inu til greiðslu miska­bóta vegna þess sem hann telur vera spill­ing emb­ætt­is­manna.

Telur Hreiðar að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafi brotið á sér í tengslum við hler­anir á síma hans á árinu 2010. Í aðsendri grein í Frétta­blað­inu þegar málið var þing­fest í des­em­ber 2016 sagði Hreiðar: „Á árinu 2010 braut Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara lög þegar far­sími m­inn var hler­aður þrátt fyrir að ég hafi verið ný kom­inn úr yfir­heyrsl­u­m þar sem ég hafði rétt til­ að svara ekki spurn­ingum sem bein­t var til mín. Til að bíta höf­uðið af ­skömminni þá hler­uðu starfs­menn Emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara einnig ­sam­töl mín við lög­mann minn þar sem við ræddum mál þar sem ­rann­sókn beind­ist gegn mér. Það er heil­agur réttur sak­aðs manns að ­geta leitað sér ráð­gjafar lög­manns í trún­aði.“

Hreiðar heldur því fram að Ólafur Þór Hauksson sér­stakur sak­sókn­ari hafi á sínum tíma valið að leita til Hér­aðs­dóms Vest­ur­lands til að fá heim­ildir til hler­unar, sér­stak­lega vegna teng­inga hans við eina dóm­ara rétt­ar­ins, Benedikt Bogason sem nú er Hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Ólafur var sýslu­maður á Vest­ur­landi áður en hann varð sér­stakur sak­sókn­ari, þannig að gera má ráð fyrir að leiðir þeirra Bene­dikts hafi ægi oft legið saman.

Undir rekstri dóms­mála sem hafa verið höfðuð á hendur mér hef­ur komið fram í vitn­is­burði fyrrum lög­reglu­manns hjá Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara að Bene­dikt Boga­son ­dóm­ari skáld­aði upp þing­hald og fals­aði skjal þess efnis þeg­ar hann útveg­aði lög­reglu­mönn­um Emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara hler­unar­úr­skurð­inn. Ekk­ert þing­hald var hald­ið, engin gögn voru lögð fram, dóm­ar­inn lagði ekk­ert sjálf­stætt ­mat á hvort nauð­syn væri að hlera sím­töl mín og ekk­ert vitni var að þing­hald­inu eins og lög kveða á um,“ sagði Hreiðar Már í grein­inni í Frétta­blað­inu.

Sýndarþinghald

Lög­reglu­maður þessi bar vitni fyrir dóm­stólnum í dag. Jón Óttar Ólafsson er fyrr­ver­andi lög­reglu­maður við emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Jón hefur lýst því yfir í fjöl­miðlum og fyrir rétti áður að lög­reglan hafi hlerað sam­töl sak­born­inga við verj­endur sína og ítrek­aði það í fram­burði sínum í dag. Hann sagð­ist hafa hlustað á Sigurð Ein­ars­son fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann Kaup­þings ræða við verj­anda sinn en sagð­ist ekki hafa hlustað á Hreiðar sjálfan ræða við sinn verj­anda.

Jón Óttar sagði frá því þegar hann fór heim til Bene­dikts að sækja hler­unar­úr­skurð sem heim­il­aði lög­regl­unni að hlera síma Hreiðars eftir að hann losn­aði úr gæslu­varð­haldi á árinu 2010. Jón, sem er aðal vitni til stuðn­ings kröfu Hreiðars í þessu máli, vill meina að þar hafi í raun sýnd­ar­þing­hald verið haldið. Hann hafi ásamt öðrum lög­reglu­manni sótt skjalið á heim­ili dóm­ar­ans, sem hafi skrifað fyrir þá úrskurð­ar­orð á staðnum, prentað út og stimplað. Hlerunin á síma Hreiðars hófst stuttu seinna.

„Það er verið að loka gat­inu. Þetta þarf að vera til, þessi gögn. Það þarf að setja úrskurð inn í máls­gögnin,“ sagði Jón Óttar.

Starfsmenn dómstólsins tengdust Kaupþingi

Benedikt Bogason Hæsta­rétt­ar­dóm­ari kom sjálfur og bar vitni í dag. Dómarinn stendur í stór­ræðum fyrir dóm­stólum um þess­ari mundir en auk þess að vera einn af helstu per­sónum og leik­endum í þessu máli hefur hann stefnt fyrr­ver­andi kollega sínum, Jóni Steinari Gunn­laugs­syni, fyrir meið­yrði.

Benedikt sagði að Ólafur hafi haft sam­band við hann árið 2010 til að fara fram á umrædda rann­sóknar­úr­skurði. Hann sagði ástæð­una fyrir því að leitað hafi verið til hans sem dóm­ara hjá Hér­aðs­dómi Vest­ur­lands vera þá að mála­skráa­kerfi dóm­stóls­ins í Reykja­vík væri með þeim hætti að það sé opið öllum starfs­mönnum. Í þessu máli hafi verið mjög mik­il­vægt að ekk­ert spyrð­ist út um þessar rann­sókn­ar­að­gerðir. Benedikt sagði að nær­vera til­tek­inna starfs­manna við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, sem tengd­ust Kaup­þingi, hefðu orðið þess vald­andi að ákveðið hafi verið að leita til dóm­stóls­ins fyrir vestan og hann taldi þessar skýr­ingar mál­efna­legar.

Hann rifj­aði upp að hafa hitt Ólaf Þór sak­sókn­ara í óform­legu þing­haldi vegna máls­ins. Ólafur hafi ekki getað beðið eftir úrskurð­inum og því hafi lög­reglan sótt hann síðar um dag­inn. Benedikt mundi aðeins eftir öðrum lög­reglu­mann­inum á heim­ili sínu, ekki Jóni Óttari. Hann sagði þó það langt um liðið að hann gæti alls ekki úti­lokað að þeir hafi verið tveir. Heim­sóknin hafi verið örstutt, bara örfáar mín­útur.

Benedikt vís­aði að öðru leyti öllum vitn­is­burði Jóns Óttars, og þannig kröfum Hreiðars, á bug og sagði frá­sögn­ina eins og hún birt­ist í stefn­unni vera til­hæfu­lausa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár