Hreiðar Már stefnir ríkinu vegna „spillingar embættismanna“

Fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings telur íslenska ríkið hafa brotið gegn sér.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, hefur stefnt íslenska rík­inu en málið var þing­fest í síð­asta mán­uði og hefur rík­is­lög­maður frest til að skila grein­ar­gerð í mál­inu til 17. jan­úar á næsta ári. 

Þetta kemur fram í grein Hreiðars Más í Frétta­blað­inu í dag. 

Í blað­inu segir hann að emb­ætti sér­stakst sak­sókn­ara hafa brotið á sér með lög­brotum í tengslum við hler­anir á árinu 2010. „Á árinu 2010 braut Embætti sér­staks sak­sókn­ara lög þegar far­sími minn var hler­aður þrátt fyrir að ég hafi verið ný kom­inn úr yfir­heyrslum þar sem ég hafði rétt til að svara ekki spurn­ingum sem beint var til mín. Til að bíta höf­uðið af skömminni þá hler­uðu starfs­menn Embættis sér­staks sak­sókn­ara einnig sam­töl mín við lög­mann minn þar sem við ræddum mál þar sem rann­sókn beind­ist gegn mér. Það er heil­agur réttur sak­aðs manns að geta leitað sér ráð­gjafar lög­manns í trún­aði en Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur nú ákveðið að taka kæru vegna þess­ara brota til skoð­unar,“ segir Hreiðar Már í grein sinni.

Þá segir hann að Embætti sér­staks sak­sókn­ara hafi ákveðið að leita til Hér­aðs­dóms Vest­ur­lands til að fá heim­ildir til hler­unar. Þetta hafi emb­ættið gert, þrátt fyrir að Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefði aðsetur í Reykja­vík og þeir sem átti að hlera hefðu dvalið í Reykja­vík og verið með lög­heim­ili erlendis. „Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands er að einu leyti veru­lega frá­brugð­inn Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Við Hér­aðs­dóm Vest­ur­lands er ein­ungis einn dóm­ari. Árið 2010 var dóm­ar­inn þar Benedikt Bogason, núver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Með því að velja Hér­aðs­dóm Vest­ur­lands var Embætti sér­staks sak­sókn­ara ekki ein­ungis að velja sér dóm­stól heldur í raun einnig að velja sér dóm­ara. Ef Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefði leitað til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur hefðu starfs­menn emb­ætt­is­ins ekki vitað hvaða dóm­ari fengi mál­inu úthlutað. Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, hafði áður en hann tók við því emb­ætti verið Sýslu­mað­ur­inn á Vest­ur­landi. Þá var hann með aðsetur á Akranesi, sem er í umdæmi Hér­aðs­dóms Vest­ur­lands [...] Það var því ákaf­lega hent­ugt fyrir Ólaf Þór að beina hler­un­ar­beiðnum sínum til Bene­dikts Boga­sonar dóm­ara, en þeir höfðu á sama tíma til fjölda ára gegnt emb­ætt­is­störfum rétt­ar­kerf­is­ins á Vest­ur­landi. Þar áður höfðu þeir stundað nám á sama tíma í laga­deild Háskól­ans og unnið um tíma saman hjá Sýslu­mann­inum í Hafn­ar­firði. Undir rekstri dóms­mála sem hafa verið höfðuð á hendur mér hefur komið fram í vitn­is­burði fyrrum lög­reglu­manns hjá Embætti sér­staks sak­sókn­ara að Benedikt Bogason dóm­ari skáld­aði upp þing­hald og fals­aði skjal þess efnis þegar hann útveg­aði lög­reglu­mönnum Embættis sér­staks sak­sókn­ara hler­unar­úr­skurð­inn. Ekkert þing­hald var haldið, engin gögn voru lögð fram, dóm­ar­inn lagði ekk­ert sjálf­stætt mat á hvort nauð­syn væri að hlera sím­töl mín og ekk­ert vitni var að þing­hald­inu eins og lög kveða á um,“ segir Hreiðar Már.

Hreiðar Már var í Hæsta­rétti dæmd­ur í sex mán­aða refsi­auka við dóm hér­aðs­dóms í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli bank­ans sem kveð­inn var upp í fyrra, en dómur í mál­inu féll í októ­ber á þessu ári. Með því er heild­ar­refs­ing Hreiðars Más kom­in upp í sex ár, en það er há­marks­refs­ing í svo­köll­uðum hrun­mál­um.

Hann hafði áður fengið fimm ára og sex mán­aða dóm í Al-thani-mál­inu svo­kall­aða og í hér­aði í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu var Hreiðar fund­inn sek­ur en ekki gerð auk­in refs­ing. Hæstirétt­ur ákvað aft­ur á móti að þyngja refs­ingu hans um sex mán­uði og fór heild­ar­dóm­ur hans því upp í sex ár.

Fleiri mál eru til umfjöll­unar í dóms­kerf­inu sem snúa að Hreiðari Má, meðal ann­ars vegna meinstra inn­herja­svika og umboðs­svika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár