Sveitarfélögum fækkar

Sveit­ar­fé­lögum lands­ins mun fækka eftir kosn­ingar í maí og verða þá alls 72 tals­ins.

Sveit­ar­fé­lögum lands­ins mun fækka eftir kosn­ingar í maí og verða þá alls 72 tals­ins. Íbúar Breið­dals­hrepps og Fjarða­byggðar sam­þykktu sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna laug­ar­dag­inn 24. mars og 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hafði verið sam­þykkt sam­ein­ing sveit­ar­fé­lag­anna Garðs og Sand­gerðis.

Íbúa­fjöldi í sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi Garðs og Sand­gerðis verða um 3.200 en heldur fleiri íbúar eru í Sand­gerði eða um 1.700 á móti um 1.500 í Garðinum. Framundan er atkvæða­greiðsla um nýtt nafn hins sam­ein­aða sveit­ar­fé­lags en nokkrar til­lögur um nafn verða lagðar fram í næsta mán­uði. Nefnd sem und­ir­býr atkvæða­greiðsl­una kall­aði eftir til­lögum frá íbúum og bár­ust alls 392 til­lögur.

Íbúa­fjöldi Fjarða­byggðar eftir sam­ein­ing­una við Breið­dals­hrepp verður tæp­lega 5.000 en í dag búa í Fjarða­byggð kringum 4.800 íbúar og 182 í Breið­dals­hreppi. Í Breið­dals­hreppi sam­þykktu 100 manns sam­ein­ing­una eða 85% þeirra sem greiddu atkvæði en á kjör­skrá voru 155 og kjör­sókn var 64,5%. Í Fjarða­byggð var 36% kjör­sókn og sam­þykktu 87% sam­ein­ing­una.

Árið 1950 voru sveit­ar­fé­lögin 229 og hefur þeim fækkað í nokkrum skrefum.

Árin 1994 til 2006 var mikið um sam­ein­ingar og fækk­aði sveit­ar­fé­lögum þá úr 196 í 79 og síðan í 74 með síð­ustu sam­ein­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár