Hunsuðu skrifleg tilmæli frá ráðherra og hækkuðu forstjóralaun

Í bréfi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sendi stjórnum helstu rík­is­fyr­ir­tækja í fyrra voru þær beðnar um að stilla launa­hækk­unum for­stjóra í hóf og hafa í huga áhrif þeirra á stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði. Tilmælin voru í mörgum til­fellum hunsuð.

Benedikt Jóhannesson var fjármála- og efnahagsráðherra þegar tilmælin voru ítrekuð auk þess sem hann kallaði stjórnarformenn stærstu ríkisfyrirtækjanna á sinn fundi til að fara yfir málið.
Benedikt Jóhann­es­son var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þegar til­mælin voru ítrekuð auk þess sem hann kall­aði stjórn­ar­for­menn stærstu rík­is­fyr­ir­tækj­anna á sinn fundi til að fara yfir málið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í bréfi sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi stjórnum fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu og Banka­sýslu rík­is­ins í jan­úar 2017 var þeim til­mælum beint til þeirra að stilla öllum launa­hækk­unum for­stjóra í hóf eftir að ákvarð­anir um laun þeirra færð­ust undan kjara­ráði um mitt ár í fyrra. Þar stendur að ástæða hafi verið til þess að „vekja sér­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­bandi. Æskilegt er að launa­á­kvarð­anir séu var­kárar, að forð­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­þróun.“

[links]Afrit af bréf­inu var sent til allra stjórn­anna dag­inn áður en að ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­ar­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Stjórnir flesta stærstu fyr­ir­tækj­anna í rík­i­s­eigu huns­uðu til­mælin og hækk­uðu laun for­stjóra sinna langt umfram almenna launa­þróun. Kjarninn hefur fengið umrætt bréf afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Hægt er að lesa það hér.

Pólitísk ákvörðun um að breyta lögum

Lögum um kjara­ráð var breytt undir lok árs 2016 og tóku þær breyt­ingar gildi um mitt síð­asta ár. Um var að ræða frum­varp sem for­menn sex flokka á Alþingi stóðu að. For­menn­irnir sex voru Bjarni Bene­dikts­son Sjálf­stæð­is­flokki, sem einnig var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, Katrín Jak­obs­dóttir Vinstri græn­um, Logi Ein­ars­son Sam­fylk­ingu, Ótt­arr Proppé Bjartri fram­tíð, Sig­urður Ingi Jóhanns­son Fram­sókn­ar­flokki og og Bene­dikt Jóhann­es­son Við­reisn.

[adspot]Til­gangur frum­varps­ins var að fækka veru­lega þeim sem kjara­ráð ákveður laun og önnur starfs­kjör og færa ákvarð­anir um slíkt ann­að. Á meðal þeirra sem flutt­ust þá undan kjara­ráði voru fjöl­margir for­stjórar fyr­ir­tækja í opin­berri eigu.

Skýr skilaboð sem voru ítrekuð nokkrum sinnum

Þann 6. jan­úar 2017 sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið bréf til stjórna fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu og stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins. Tilefnið var ákvörðun launa og starfs­kjara fram­kvæmda­stjóra félaga í meiri­hluta­eigu rík­is­ins eftir að sú ákvörðun færð­ist undan kjara­ráði og til stjórn­anna um mitt ár 2017.

Í bréf­inu stendur að í til­efni af þeim breyt­ingum sem væru yfir­vof­andi vildi ráðu­neytið benda á þá skyldu stjórna að við ákvörðun launa og starfs­kjara fram­kvæmda­stjóra og starfs­manna félags­ins almennt yrði fylgt ákvæðum eig­enda­stefnu rík­is­ins um að félög í eigu þess skuli „setja sér hóf­lega en sam­keppn­is­hæfa launa­stefnu“. Þetta átti að fela í sér, sam­kvæmt skil­grein­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, að launa­stefna félags í meiri­hluta­eigu rík­is­ins skyldi ekki „ekki vera leið­andi, eins og áréttað er í eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki frá árinu 2009“. Þá átti að horfa til ábyrgðar og árang­urs við ákvörðun um starfs­kjör og gæta að við­ur­kenndum jafn­rétt­is­sjón­ar­miðum.

[adspot]Síðan segir í bréf­inu: „Ástæða er til að vekja sér­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­bandi. Æskilegt er að launa­á­kvarð­anir séu var­kárar, að forð­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­þróun. Æskilegt er að laun og kjör séu eins ein­föld og gagnsæ og kostur er.“

Ráðu­neytið beindi þeim til­mælum til stjórna félag­anna að bréfið yrði kynnt á stjórn­ar­fundi og haft til hlið­sjónar við launa­á­kvarð­anir. Einnig var þess óskað að bréfið yrði sent dótt­ur­fé­lögum þar sem ákvarð­anir um laun fram­kvæmda­stjóra hefðu fallið undir kjara­ráð.

Bréfið var, líkt og áður sagði, fyrst sent 6. jan­úar 2017. Afrit af bréf­inu var síðan sent þann 30. júní 2017 á nýjar stjórnir félag­anna. Þá fund­aði Benedikt Jóhann­es­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, með for­mönnum stjórna stærri félaga þann 10. ágúst 2017 og var þar farið yfir efni bréfs­ins.

Mikið launaskrið

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í síð­ustu viku að til­mæli ráð­herr­ans hafi verið full­kom­lega hunsuð af stjórnum stærstu félag­anna sem eru í eigu íslenska rík­is­ins. Þannig hækk­aði stjórn Lands­virkj­unar laun for­stjór­ans Harðar Arn­ar­sonar um 45 pró­sent á árs­grund­velli, þegar ekki er búið að leið­rétta fyrir geng­is­sveiflum. Þegar búið var að leið­rétta fyrir þeim nam hækk­unin 32 pró­sentum. Hækkun á mán­að­ar­launum hans er lík­lega yfir einni milljón króna þegar tekið er til­lit til þess að launin voru hækkuð um mitt síð­ast ár og hækk­unin tók því ein­ungis til hálfs árs, ekki heils.

Í frétta­skýr­ingum Kjarnans kom einnig fram að laun for­stjóra Íslands­pósts hefðu hækkað um 17,6 pró­sent milli ára, að banka­stjóri Lands­bank­ans hafi hækkað í launum um 21,7 pró­sent, að laun for­stjóra Lands­nets hafi hækkað um rúm tíu pró­sent og að komið hafi verið í veg fyrir að laun banka­stjóra Íslands­banka lækk­uðu umtals­vert, líkt og þau áttu að gera sam­kvæmt ákvörðun kjara­ráðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár