B-listi Eflingar vill segja upp kjarasamningum

Sólveig Anna Jóns­dóttir og B-list­inn í Eflingu vilja segja upp samn­ingum og undra sig á að Efling hafi ekki boðað til almenns félags­fundar til að ræða stöð­una.

Sólveig Anna Jóns­dóttir og B-list­inn í Eflingu vilja segja upp samn­ingum og undra sig á að Efling hafi ekki boðað til almenns félags­fundar til að ræða stöð­una.

Þetta skrif­aði Sólveig Anna á Facebook síðu fram­boðs­ins í morgun.

[links]„Þegar sú staða kemur upp í sam­fé­lagi, fyrst og fremst vegna óstjórn­legrar ásælni yfir­stétt­ar­innar í sífellt meiri efna­hags­leg gæði og þar með meiri völd, að verka­fólk og lág­launa­fólk byrjar að æsa sig, bæði vegna slakrar stöðu sinnar og yfir lúx­us­lífi þeirra sem kunna ekki að skamm­ast sín, er (nú til dags) talað um For­sendu­brest,“ skrifar Sólveig Anna.

Hún segir for­sendu­brest þýða að þau, vinnu­aflið séu orðin svo fúl og pirruð að það búi til sam­fé­lags­legt vesen og verka­lýðs­for­kólfarnir í Guð­rúnar­túni verði því að stíga fram og krefj­ast þess að gripið verði til aðgerða.

„Í orð­inu For­sendu­brestur býr því eitt­hvað agn­ar­lítið af svaka­legum krafti verka­fólks, því ómæl­an­lega afli sem svo sjaldan er notað. Síðustu ára­tugir hafa jú farið í að telja okkur trú um að best sé fyrir alla að verka­fólk beisli mátt sinn, að við hættum að nota hann og leyfum öðrum að sjá alfarið um að skipu­leggja til­veru okkar í stig­veld­inu sem sam­fé­lagið er. Máttur vinnu­aflsins hefur því verið lok­aður inní alls­konar orðum, eins og Þjóð­ar­sátt, Stöð­ug­leiki, Þjóð­ar­skúta, Launa­skrið og svo fram­vegis, og svo auð­vitað inní hreyf­ing­unni sjálfri, þar sem full­trúar okkar, fólkið sem er í vinnu (hjá okkur) við að gæta kjara okkar, hefur geng­ist undir hug­myndir nýfrjáls­hyggj­unnar um að best sé fyrir alla að verð­leggja vinnu­aflið eins lágt og hægt er, enda muni til­rauna­sér­fræð­ingar brauð­mola­vís­ind­anna í kjöl­farið búa til svo gott og skemmti­legt sam­fé­lag að eng­inn þurfi að kvarta.“

Hún segir þau nú sjá, alveg skýrt, að þau geti, með því að beita bara ögn af krafti sínum og með því að frelsa örlítið af löng­unum í rét­tæti, sann­ar­lega ruggað fjand­ans stöð­ug­leika­bátnum svo eftir því sé tekið. Allt tal um for­sendu­brest nú sé sönnun á því sem þau, vinnu­aflið, hafi. Sólveig segir þessa stund, stund for­sendu­brests­ins, eigi að hvetja þau til dáða í bar­átt­unni fyrir rétt­læti og jöfn­uði, nú ríði á að láta ekki deigan síga, nú sé sókn­ar­færi.

„Þegar við, lág­launa og verka­fólk, segj­umst ekki lengur ætla að bera ábyrgð á stöð­ug­leika í lífi hinna auð­ugu erum við með öðrum orðum að segja: Hér hefur orðið For­sendu­brestur og við viljum hann leið­rétt­ann, án und­an­bragða og án þeirra miklu mála­miðl­ana sem þau sem samið hafa fyrir okkar hönd gera alltaf, á kostnað okkar.“

Sólveig segir þau því vilja koma því á fram­færi, skýrt og án mála­leng­inga að þau sem manna B – list­ann telja aug­ljóst að segja skuli upp kjara­samn­ingum ef atvinnu­rek­endur, ríki og sveita­fé­lög fást ekki til að við­ur­kenna órétt­lætið og arðránið sem fengið hefur að grass­era á Íslandi.

„Ef kjör okkar eru ekki leið­rétt með til­liti til æðis­geng­inna hækk­ana á launum þeirra sem verma þægi­leg­ustu sæti þjóð­fé­lags­ins (nýjasta dæmið er sturl­aðar hækk­anir á launum toppa Lands­virkj­unar) hefur orðið aug­ljós og óum­deil­an­legur For­sendu­brestur.“

Hún segir til lít­ils að vera með upp­sagn­ar­á­kvæði vegna for­sendu­brests í kjara­samn­ingum ef ekki eigi að nýta þau þegar aug­ljóst er orðið, enn á ný, að þau hafi verið höfð að fíflum, að í miðju góð­ær­inu á Guð-blessi-Íslandi streymi allur auður upp og að verka­fólk eigi að láta sér nægja að hringla í klinkinu í úlpu­vas­anum, enn eina ferð­ina.

„For­sendur eru aug­ljós­lega brostnar og við ætlum ekki að sætta okkur við það. Við krefj­umst lag­fær­ingar á kjörum okkar og spyrjum: Er eftir ein­hverju að bíða?“

Sólveig Anna segir að síð­ustu að þau á B-list­anum undrist að stjórn Eflingar skuli ekki hafa boðað til opins félags­fundar með með­limum verka­lýðs­fé­lags­ins vegna stöð­unnar sem upp er komin í tengslum við kjara­samn­inga. Hún spyr hvers vegna stjórn félags­ins telji ekki bráð­nauð­syn­legt að kalla eftir afstöðu og skoð­unum alls þess mikla fjölda sem greiði sam­visku­sam­lega með­lima­gjöld sín mán­að­ar­lega og geri með því starf­semi Eflingar mögu­lega.

„Hver önnur er við sem stritum á vinnu­mark­aðnum eigum að stýra þeim ákvörð­unum sem teknar eru? Aftur sann­ast að for­ysta félags­ins hefur lít­inn sem engan áhuga á að vera í tengslum við með­limi, þrátt fyrir að sjaldan hafi verið eins mikil þörf á því að raddir verka­fólks fái að heyr­ast hátt og skýrt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár