Segir B-listann leikara í leikriti sem þau sömdu ekki handritið að

Ingvar Vigur Hall­dórs­son fram­bjóð­andi til for­manns Eflingar hefur áhyggjur af afskiptum Sós­í­alista­flokks­ins af stjórn­ar­kjöri í félag­inu. Skýtur föstum skotum á Gunnar Smára Egilsson stofn­anda flokks­ins.

Ingvar Vigur Halldórsson og Sólveig Anna Jónsdóttir leiða A og B lista í stjórnarkjöri í Eflingu.
Ingvar Vigur Hall­dórs­son og Sólveig Anna Jóns­dóttir leiða A og B lista í stjórn­ar­kjöri í Eflingu. Mynd: Samsett mynd. Skjáskot/RÚV

Ingvar Vigur Hall­dórs­son fram­bjóð­andi til for­manns Eflingar fyrir A-list­ann, sem er listi upp­still­ing­ar­nefndar félags­ins, segir í aðsendri grein á Kjarn­anum að fólkið á B-list­anum séu leik­arar í leik­riti sem þau sömdu ekki hand­ritið að.

[links]„Í kosn­ingum til stjórnar Eflingar í mars eru nú tveir listar. Það er hraust­leika­merki í stóru og sterku verka­lýðs­fé­lagi að fólk vilji gefa kost á sér til for­ystu. Ég get samt ekki neitað því, að mér finnst óþægi­legt til þess að vita að stjórn­mála­flokkur skuli standa á bak­við fram­boð B-list­ans,“ segir Ingvar Vigur.

Ingvar segir næstum 70 ár síðan tengsl milli hreyf­ing­ar­innar og ein­stakra stjórn­mála­flokka voru rofin. Hann seg­ist enga athuga­semd gera við að ein­stak­lingar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og for­ystu hennar séu virkir í stjórn­mála­starfi. Við séum örugg­lega öll rammpóli­tísk. Hins vegar hringi allar við­vör­un­ar­bjöllur þegar stjórn­mála­flokkur noti afl sitt - leynt og ljóst, til að berj­ast fyrir til­teknu fram­boði. Hann segir jafn­vel hægt að halda því fram að fram­boðið hafi komið fram af því að stjórn­mála­flokk­ur­inn lýsti eftir fram­bjóð­endum.

„Þegar við bæt­ist, að helsti for­ystu­maður við­kom­andi stjórn­mála­flokks, Sós­í­alista­flokks­ins, hefur ekki hikað við að setja fyr­ir­tæki í þrot og skilja starfs­fólkið eftir, fyr­ir­vara­laust án launa og rétt­inda og stétt­ar­fé­lögin og Ábyrgð­ar­sjóður launa eru látin sjá um rétt­indi starfs­fólks­ins eins og gerð­ist á síð­asta ári, þá er rétt að staldra við. Ekki var áhug­anum á kjörum og rétt­indum launa­fólks fyrir að fara þá.“

Ingvar segir fólkið á B-list­anum eflaust heilt í sínu, en hann sé hræddur um að þau geri sér ekki grein fyrir því að þau séu öll leik­arar í leik­riti sem þau sömdu ekki hand­ritið að. Það sé hættu­leg þróun „og ég vil með öllum mætti koma í veg fyrir það stjórn­mála­flokkur, hvort sem það er Sós­í­alista­flokkur Gunnars Smára Egils­sonar eða ein­hver annar, nái tökum á þessu félagi sem mér þykir svo vænt um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár