Samfélagslegi samningurinn hentar ekki láglaunafólki

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir að verka­lýðs­bar­áttan skili lág­launa­fólki ekki þeim lífs­kjörum sem það eigi rétt á. Mikið órétt­læti sé í því „stétt­skipta arð­ráns­sam­fé­lagi“ sem hér sé rekið. Stétta­bar­átta umfjöll­un­ar­efni Kjarnans á Hring­braut í kvöld.

„Ég hef lifað og starfað sem lág­launa­kona á íslandi frá árinu 2008. Mér líður eins og það ástand sem að við erum látin búa við sé orðið algjör­lega óþol­andi. Mér finnst, og því fólki sem mannar list­ann með mér, að sú verka­lýðs­bar­átta sem hefur verið rekin hér, að tími hennar sé ein­fald­lega liðin. Hún hefur ekki skilað okkur þeim lífs­kjörum sem við teljum okkur eiga rétt á og við teljum að það sé ein­fald­lega tíma­bært að breyta um taktík og breyta um áherslur.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, leik­skóla­starfs­maður sem sæk­ist eftir for­mennsku í Eflingu, næst stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins. Sólveig er gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans sem frum­sýndur verður á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Þar verður til umræðu stétta­bar­átta og kafað verður í hvað það er sem veldur að kafla­skil virð­ast vera í henni nú um stundir á sama tíma og efna­hags­legar aðstæður í íslensku hag­kerfi eru sagðar betri en nokkru sinni áður. Auk Sól­veigar verður Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gestur þátt­ar­ins. Hægt er að sjá brot úr þætti mán­að­ar­ins hér að ofan.

Sólveig segir að það sé ekki hægt að sætta sig lengur við að lág­launa­fólk eigi eitt að bera ábyrgð á því að stöð­ug­leiki hald­ist á Íslandi með því að sam­þykkja að lifa lífi sem sé ekki mann­sæm­andi. „Þessi sam­fé­lags­legi samn­ingur sem okkur er gert að lifa undir, hann ein­fald­lega hentar okkur ekki.“

Lág­launa­fólki sé gert að búa við mikið órétt­læti í „stétt­skiptu arð­ráns­sam­fé­lagi“ þar sem það fái laun sem það geti ekki lifað af, þurfi að vinna í fleiri en einni vinnu, geti ekki lagt nokkuð fyrir og geti ekki tryggt efna­hags­legt öryggi. Eftir hús­næð­is­mark­að­ur­inn fór á flug með til­heyr­andi verð­hækk­unum á eignum og leigu hafi staðan síðan versnað mjög mikið. „Við teljum að það sé þörf á miklum breyt­ingum til þess að við séum ekki ein­fald­lega bara vinnu­afl á útsölu. Mann­eskjur sem njóti fullra rétt­inda og eigi rétt á góðu og mann­sæm­andi lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið undanfarið ár