Spennan magnast innan verkalýðshreyfingarinnar

Sólveig Anna Jóns­dóttir nýtur stuðn­ings for­manns VR í emb­ætti for­manns Eflingar.

Mikil spenna hefur nú mynd­ast í bak­landi stétt­ar­fé­laga í land­inu, en til­kynnt var í gær um fram­boð Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur til for­manns emb­ættis Eflingar.

Það er eitt stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins með 28 þús­und félags­menn. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, styður Sólveigu Önnu til for­ystu, en hann sigr­aði með yfir­burð­uðum í for­manns­kosn­ing­unni í mars í fyrra og hlaut tæp­lega 63 pró­sent atkvæða.

Í VR eru 33 þús­und félags­menn, en það er stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins.

Sólveig Anna var gestur í Silfrinu á RÚV í gær, og sagði þar meðal ann­ars að hún ætl­aði sér að tala röddu lág­launa­fólks og fólks­ins á gólf­inu. Það væri ekki hægt að sætta við það, að stórir hópar af fólki væru á launum sem ekki dygðu til þess að lifa af við núver­andi aðstæður á hús­næð­is­mark­aði. Sjálf er hún ófag­lærður starfs­maður á leik­skóla, en vinnur aðra vinnu með til að ná endum saman.

Í Morg­un­blað­inu í dag, segir Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, að hann muni ekki eftir að for­maður VR blandi sér með jafn afger­andi hætti í kosn­ingar í öðru félagi. „Mér finnst mjög athygl­is­vert að for­maður VR sé með svona beinum hætti að hafa afskipti af kjöri í öðru félagi. Ég man ekki eftir að hafa heyrt af slíku,“ segir Gylfi í við­tali við Morg­un­blaðið.

Á sér­stökum bar­áttu- og sam­stöðu­fundi í Rúg­brauðs­gerð­inni, í gær, þar sem fjallað var um stöð­una innan stétt­ar­fé­laga og meðal ann­ars til­kynnt um hið nýja fram­boð hjá Eflingu, þá sagð­ist Ragnar Þór vona það, að áfram­hald yrði á „bylt­ing­unni“ hjá stétt­ar­fé­lög­unum. Hann sagði fulla þörf vera á end­ur­nýjun for­yst­unnar og að for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þyrfti að tala máli fólks­ins á gólf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár