ASÍ fundar með Samtökum atvinnulífsins og stjórnvöldum

Alþýðu­sam­band Íslands bíður nú við­bragða við mála­leit­unum.

Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arn­björns­son.

Full­trúar samn­inga­nefndar ASÍ hafa að und­an­förnu, og nú síð­ast í dag, fundað með SA og stjórn­völdum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna end­ur­skoð­unar kjara­samn­inga.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ASÍ rétt í þessu.

[links]Jafn­framt segir að full­trúar ASÍ í for­sendu­nefnd telja að for­sendur kjara­samn­inga sé brostnar en þegar sú staða kemur upp ber aðilum að leita við­bragða hjá gagn­að­ila og/eða stjórn­völdum til að kanna hvort vilji sé til þess að koma til móts við aðila vegna for­sendu­brests­ins. Nú er beðið við­bragða við þessum mála­leit­unum en end­an­leg afstaða til fram­halds­ins verður tekin á mið­viku­dag­inn.

Mið­stjórn ASÍ fund­aði vegna máls­ins í síð­ustu viku en sam­kvæmt ákvæði í samn­ing­unum koma þeir til end­ur­skoð­unar fyrir lok þessa mán­aðar.

Í sam­tali við Kjarnann þann 21. febr­úar síð­ast­lið­inn segir Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ að málið væri enn í skoðun. Mið­stjórn ASÍ hafi ákveðið að boða til for­manna­fundar aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins mið­viku­dag­inn 28. febr­úar þar sem fjallað verður um stöð­una og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar.

Gylfi segði að ákvarð­anir lægju í höndum for­manna aðilda­fé­laga ASÍ og að ljóst sé að fund­ar­boðið sé vegna þess að mat ASÍ sé að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnar. „Enn er verið að vinna í þessum málum en matið á stöð­unni er svona,“ segir hann.

Hann bætti því við að hægt væri að bregð­ast við þeim aðstæðum sem uppi eru komnar og að enn væri tími og rúm til við­bragða af hálfu stjórn­valda áður en end­an­leg ákvörðun verði tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár