Arion banki tekur yfir allar eignir United Silicon

Verk­smiðja United Silicon hefur vakið áhuga fjár­festa, eftir að starf­semin fór í þrot.

Sam­komu­lag hefur náðst á milli skipta­stjóra þrota­bús United Silicon og Arion banka um að bank­inn fái að ganga að sínum veðum og taka yfir allar helstu eignir félags­ins.

Nýtt félag verður stofnað um starf­semi kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Markmið Arion banka er að vinna að úrbótum á verk­smiðj­unni og selja hana eins fljótt og auðið er.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Arion banka.

Nú þegar hefur Arion banki afskrifað tæp­lega 5 millj­arða vegna verk­efn­is­ins, en heild­ar­skuld­bind­ing­ar, sem komust í upp­nám með þroti félags­ins, námu um 10 millj­örð­u­m.

Und­an­farna mán­uði, á greiðslu­stöðv­un­ar­tím­anum, tók Arion banki að mestu yfir eign­ar­haldið og sá um að greiða það sem þurfti að greiða, þar á meðal laun starfs­manna.

Áhugi á verk­smiðj­unni hefur verið þó nokkur, af því er fram hefur komið í upp­gjörstil­kynn­ingum frá bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár