Skortur á gagnsæi í söluferli Arion banka

Fram­kvæmda­stjóri LSR tjáir sig við Morg­un­blaðið um ástæður þess að sjóð­ur­inn bakk­aði út úr við­ræðum um kaup á hlut í Arion banka, fyrir útboð.

Haukur Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóri LSR, segir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag, að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi bakkað út úr við­ræðum um kaup á hlut í Arion banka, fyrir útboð og skrán­ingu, meðal ann­ars vegna skorts á gagn­sæi í sölu­ferl­inu.

Þá segir hann að fram­tíð­ar­sýn fyrir hönd bank­ans hafi mátt vera skýr­ari í við­ræð­unum, og að LSR, eins og aðrir líf­eyr­is­sjóðir, þurfi að meta sínar fjár­fest­ingar eftir áhættu og öðrum þáttum, en nú leggur sjóð­ur­inn meðal ann­ars áherslu fjár­fest­ingar erlendis.

Íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut í Arion banka, Kaupskil fara með 57 pró­sent hlut, og vog­un­ar­sjóðir og Goldman Sachs, eiga um 30 pró­sent.

Unnið er að und­ir­bún­ingi skrán­ingar bank­ans á markað, síðar á þessu ári, og hefur Kvika umsjón með ferl­inu fyrir hönd Kaup­skila. Viðræðum hefur ekki verið slitið við trygg­ing­ar­fé­lög og fjár­fest­inga­sjóði, um að kaupa hlut í bank­anum áður en til útboðs kemur.

Miðað við bók­fært eigið fé Arion bank­ans er hlutur rík­is­ins um 29 millj­arða króna virði, og bank­inn því með verð­miða upp á 223 millj­arða króna sé miðað við það verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár