127 þúsund króna munur á kostnaði við skólavist

Garðabær leggur hæstu skóla­dag­vist­un­ar­gjöldin á íbúa sína en Vest­manna­eyjar þau lægstu.

Garðabær leggur hæstu skóla­dag­vist­un­ar­gjöldin á íbúa sína sam­kvæmt mæl­ingu Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. Mikill munur er á kostn­aði við skóla­dags­vistun og skóla­mál­tíðir hjá sveit­ar­fé­lög­unum en hæst eru þau, með hádeg­is­mat og hress­ingu hjá Garðabæ eða 37.114 krónur en lægst hjá Vest­manna­eyjum eða 24.360 krónur. Munurinn nemur 12.754 krónum á mán­uði sem gera 127.540 krónur á ári miðað við 10 mán­aða vistun og er þetta 52 pró­senta verð­munur.

Sel­tjarn­ar­nes er með önnur hæstu gjöldin eða 36.297 krónur og Akureyri með þriðju hæstu gjöldin, 35.721 krónur. Næst lægstu gjöldin eru hjá Reykja­nesbæ, 24.565 krónur á mán­uði, aðeins 205 krónum hærra en hjá Vest­manna­eyjum. Reykja­vík kemur síðan á eftir með þriðju lægstu gjöldin 27.279 krónur á mán­uði.

Heild­ar­kostn­aður fyrir skóla­dag­vist og hádeg­is­mat hækkar hjá 12 sveit­ar­fé­lögum af 15 en mesta hækk­unin er í Kópavogi upp á 4,6 pró­sent, 4,5 pró­sent í Reykja­vík og 4,3 pró­sent á Akranesi. Minnsta hækk­unin er á Ísafirði eða 1,2 pró­sent og 1,3 pró­sent í Mos­fellsbæ en Vest­manna­eyja­bær, Reykja­nes­bær og Hafna­fjarð­ar­kaup­staður hækka gjöldin ekk­ert milli ára.

Hádeg­is­matur hækkar í 11 af 15 sveit­ar­fé­lögum frá síð­asta ári en mesta hækk­unin er hjá Reykja­vík­ur­borg þar sem hádeg­is­matur hækkar um 8 pró­sentum úr 441 krónum í 476 krónur. Næst­mesta hækk­unin á mat er í Mos­fellsbæ eða um 5 pró­sent. Engar verð­hækk­anir eru á hádeg­is­mat í Vest­manna­eyjum, Garðabæ og á Reykja­nesi. Eftir stendur að hádeg­is­mat­ur­inn er dýrastur á Ísafirði á 505 krónur mál­tíðin. Þar á eftir kemur Reykja­vík með 476 krónur fyrir mál­tíð­ina og Garðabær með 474 krónur fyrir mál­tíð­ina. Ódýrastur er hádeg­is­mat­ur­inn í Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg en þar kostar mál­tíðin 359 krónur og Akranes er með næst ódýrasta hádeg­is­mat­inn en þar kostar mál­tíðin 369 krónur.

Systk­ina­af­slættir er eitt af því sem getur skipt miklu máli fyrir fjöl­skyldur með fleiri en eitt barn enda getur kostn­aður heim­il­is­ins við frí­stund og mat í skóla verið ansi hár. Systk­ina­af­slættir sveit­ar­fé­lag­anna fyrir fólk með fleiri en 1 barn eru þó afar mis­jafnir. Reykja­vík er með hæstu afslætt­ina í heild­ina litið eða 75 pró­senta afslátt fyrir annað barn og 100 pró­senta afslátt fyrir þriðja barn en Fjarð­ar­byggð er með lægstu afslætt­ina eða 25 pró­sent fyrir annað barn og 50 pró­sent fyrir þriðja barn. Í Kópavogi færðu 30 pró­senta afslátt fyrir annað barn og sama gildir fyrir Ísafjörð. Flest sveit­ar­fé­lögin eða tíu af fimmtán sveit­ar­fé­lögum bjóða upp á 50 pró­senta afslátt fyrir annað barn og átta af fimmtán bjóða upp á 75 pró­senta afslátt fyrir annað barn. Reykja­vík, Akureyri, Sel­tjarn­ar­nes, Vest­manna­eyjar, Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður og Ísa­fjarð­ar­bær eru allt sveit­ar­fé­lög með 100 pró­senta afslætti af gjöldum fyrir þriðja barn.

Lesa má nánar um mæl­ingu ASÍ hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár