Börn sem missa foreldri sitja ekki við sama borð og önnur

Að missa maka er mikið áfall. Ekki er það síður erfitt þegar fólk fellur frá í blóma lífs­ins og eftir situr lífs­föru­naut­ur­inn með sorg­ina, ábyrgð­ina og skyldur gagn­vart ungum börnum.

Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir
Bergþóra Heiða Guð­munds­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Bergþóra Heiða Guð­munds­dóttir gekk í gegnum missi en eig­in­maður hennar féll frá þegar hún var 39 ára gömul. Þau áttu þrjú börn saman á umönn­un­ar­aldri og komst hún fljót­lega að því að börn hennar stæðu ekki jafn­fætis öðrum eftir áfallið.

Barnalífeyrir í staðinn fyrir meðlag

Þegar maki fellur frá hefur ekkja eða ekk­ill innan 67 ára ald­urs rétt á greiðslum frá Trygg­inga­stofnun. Stofn­unin hefur heim­ild til að greiða dán­ar­bætur í 6 mán­uði og heim­ilt er að fram­lengja greiðslur ef hlut­að­eig­andi er með barn yngra en 18 ára á fram­færi í að minnsta kosti 12 mán­uði til við­bótar, en þó aldrei lengur en í 48 mán­uði. Einungis er fram­lengt í 12 mán­uði í senn og síðan þarf að sækja um aftur.

Jafn­framt hefur for­eldrið rétt á greiðslu barna­líf­eyris vegna and­láts for­eldris sem kemur í stað með­lags frá hinu for­eldr­inu. Og ef for­eldri er með fleiri en tvö börn á fram­færi er hægt að sækja um mæðra- eða feðra­laun. Ef eft­ir­lif­andi for­eldri er líf­eyr­is­þegi getur það átt rétt á heim­il­is­upp­bót.

Ójafnræði gagnvart börnunum

Bergþóra Heiða, eða Heiða eins og hún er gjarnan kölluð, er lög­fræð­ingur að mennt. Hún gagn­rýnir að ekki sé nægi­lega vel tekið til­lit til aðstæðna fólks sem missir maka sína. Hún segir að lögin séu ekki sann­gjörn hvað þetta varðar og bendir á að þau valdi ójafn­ræði milli barna sem eiga báða for­eldra á lífi og þeirra sem misst hafa sína.

[quote font="0" align="right“]Fólk í minni stöðu er aftur á móti ekki með bar­áttu­and­ann.[/quote]

Hún segir fólki bregði þegar það heyri sögu hennar og þegar hún útskýri hvernig kerfið virkar. Hún veit til þess að erindi hafi verið send til alþing­is­manna og að reynt hafi verið að vekja athygli á þessum málum.

„Fólk í minni stöðu er aftur á móti ekki með bar­áttu­and­ann,“ segir Heiða. Ekki sé auð­velt að berj­ast fyrir rétt­indum þegar aðstæður eru svo erf­iðar og sorgin mikil.

Verra en að vera einstætt foreldri

Samkvæmt lög­unum er ekki hægt að fá auka með­lag frá rík­inu ef þungt er í ári og eng­inn greiðir á móti ein­stæðu for­eldri fyrir allt sem til fellur. Heiða tekur sér­stak­lega fram að hún sé að hugsa um börn for­eldra sem eru látin sér­stak­lega. Það séu þau sem þetta kemur lang­verst niður á.

Þegar Heiða missti mann­inn sinn voru þau að koma yfir sig þaki og byggja sig upp fjár­hags­lega en þau dvöldu erlendis á þessum tíma. Þau áttu, eins og fram hefur komið, þrjú börn á umönn­un­ar­aldri sem gerði róð­ur­inn erf­iðan fyrir Heiðu. Hún segir að þrátt fyrir að hennar saga sé að sumu leyti frá­brugðin þar sem hún bjó ekki á Íslandi þegar hún varð ekkja þá hafi hún samt sem áður byrjað að leita réttar síns fljótt eftir áfallið.

Hún komst að því að ríkið verður með­lags­greið­andi við frá­fall maka en slíkar greiðslur kall­ast barna­líf­eyrir. Ekki sé aftur á móti hægt að fá tvö­faldan barna­líf­eyri í til­felli ekkna eða ekkla og enn fremur komi ríkið ekki til móts við fólk í sér­stökum til­fellum þar sem fjár­út­láta er þörf.

Engin sérstök framlög

Heiða segir að erfitt geti reynst að fjár­magna ein­sömul tann­rétt­ingar, ferm­ingar, bíl­próf og þess háttar útgjöld en ólíkt ein­stæðum for­eldrum þá getur hún ekki sótt um sér­stök fram­lög þegar það á við. Henni finnst að með þessu sé verið að mis­muna börnum og að Trygg­inga­stofnun túlki lögin þannig að þau eigi ekki rétt á frek­ari fram­lögum. Henni finnst mikið jafn­rétt­is­mál að allir skulu vera jafnir fyrir lögum en þegar börn ekkna eða ekkja eiga í hlut þá sé það ekki raunin.

Þannig sé verið að mis­muna börn­unum og hegna þeim fyrir aðstæður þeirra. Foreldri í þessum aðstæðum geri iðu­lega sitt besta en fái mjög tak­mark­aða hjálp frá rík­inu. Aðeins þeir heppnu með gott bak­land og há laun geti staðið undir þessum mikla kostn­aði sem fylgir því að sjá fyrir börnum.

Heiða veit um dæmi þess að fólk, sem misst hefur maka sína, hafi orðið veikt og þurft að treysta á örorku í fram­hald­inu og að pen­inga­á­hyggjur hafi reynst erf­iðar eftir sorg og missi.

Ekki komið nægilega á móts við fólk

Af þessum ástæðum seg­ist Heiða vilja segja sína sögu; að ekki sé komið nægi­lega á móts við fólk í þessum aðstæðum og að mis­ræmi sé milli rétt­inda barna. „Þetta gengur ekki, sum börn líða skort út af þessu laga­lega mis­ræmi,“ segir hún.

[quote font="0" align="right“]Þetta gengur ekki, sum börn líða skort út af þessu laga­lega mis­ræmi.[/quote]

Hún bendir á að í annarri grein Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna segir að öll börn skuli njóta rétt­inda án til­lits til kyn­þáttar, lit­ar­háttar, kyn­ferðis, tungu, trúar, stjórn­mála­skoð­ana, ætt­ernis, fötl­unar, félags­legrar stöðu eða ann­arra aðstæðna þeirra eða stöðu eða athafna for­eldra þeirra.

„Það vantar vit­und­ar­vakn­ingu. Er ekki nóg að þessi börn hafi misst svo óskap­lega mikið og þurfi síðan í ofaná­lag að takast á við þennan ójöfnuð?“ spyr Heiða. Áhrif for­eldramissis eru aug­ljós­lega gríð­ar­lega mikil og telur hún að sam­fé­lag­inu beri að hjálpa þeim sem lenda í slæmum aðstæðum, að rík­inu beri að styðja við fólk sem á við sárt að binda og ekki síst börn þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár