Árni Sigfússon hættir í stjórnmálum

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar og borg­ar­stjóri Reykja­víkur hefur til­kynnt að hann sé hættur í stjórn­málum. Hann seg­ist hafa verið drif­inn áfram af löngun til að skapa betra sam­fé­lag.

Árni Sigfússon.
Árni Sig­fús­son. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Árni Sig­fús­son, sem var bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ í tólf ár og borg­ar­stjóri í Reykja­vík í nokkra mán­uði árið 1994, ætlar að hætta í stjórn­málum og verður ekki í fram­boði sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor. Árni hefur verið óbreyttur bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ síð­ast­lið­inn fjögur ár eftir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti meiri­hluta sinn í sveit­ar­fé­lag­inu í kosn­ing­unum 2014.

[links]Árni greinir frá þess­ari ákvörðun í aðsendri grein í Vík­ur­fréttum í dag. Þar fer hann yfir feril sinn í stjórn­málum, sem hófst í borg­ar­stjórn Reykja­víkur 1986, og þau verk sem hann er stolt­astur af úr bæj­ar­málapóli­tík­inni á Suð­ur­nesjum og segir meðal ann­ars að sam­fé­lagið þar hafi „menntað sig út úr krepp­unni.“

Árni segir að í ein­lægni sagt þá hafi hann lengstum verið drif­inn áfram í gegnum þykkt og þunnt í póli­tík af löngun til að skapa betra sam­fé­lag. Nú sé hins vegar kom­inn tími til að kveðja eftir 30 ára þátt­tök og það sé ann­arra að taka keflið.

Miklar sviptingar í bæjarstjóratíð Árna

Reykja­nes­bær varð fyrir miklum búsifjum á þeim tíma sem Árni var bæj­ar­stjóri þar, en hann var odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu og bæj­ar­stjóri frá árinu 2002-2014. Árið 2006 hvarf Banda­ríkja­her frá land­inu. Herinn var gríð­ar­lega stór atvinnu­veit­andi og sveit­ar­fé­lögin á Suð­ur­nesjum höfðu af honum marg­hátt­aðar tekjur.

[adspot]Til að bregð­ast við þeirri stöðu hófu stjórn­mála­menn, meðal ann­ars í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar, að beita sér fyrir upp­bygg­ingu iðn­að­ar­svæðis í Helguvík. Sam­hliða gekkst Reykja­nes­bær í ábyrg fyrir millj­arða króna ­upp­bygg­ingu hafnar á svæð­inu. Hug­myndin var sú að höfnin myndi síðar skila sveit­ar­fé­lag­inu miklum tekjum þegar stór­iðju­fyr­ir­tæki hæfu starf­semi sína þar.

Sú áætlun fór ekki alveg eins og upp var lagt. Þess í stað end­aði Reykja­nes­bær sem eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins og rekstur þess und­an­farin ár hefur ver­ið af­leit­ur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014 var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Vegna þessa þurfti sveit­ar­fé­lagið meðal ann­ars að leggja auknar skatt­byrðar á íbúa sína.

Þessi staða varð meðal ann­ars til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti hreinan meiri­hluta sinn í kosn­ing­unum 2014 og Árni sat því í minni­hluta síð­ustu fjögur ár sín sem bæj­ar­full­trúi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár