United Silicon verður sett í þrot í dag

56 starfs­menn United Silicon munu mögu­lega missa starf sitt. Framtíð þeirra er nú í höndum skipta­stjóra. Mögulegt að nýtt félag verði myndað um rekstur kís­il­málm­verk­smiðj­unnar í Helguvík en þrjá millj­arða kostar að gera hana starf­hæfa.

United Silicon verður sett í þrot í dag sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Beiðni þess efnis verður skilað inn fyrir klukkan 16. Alls eru 56 starfs­menn enn að störfum hjá fyr­ir­tæk­inu og það verður skipta­stjóra að ákveða hvað verður um störf þeirra. Hann mun einnig þurfa að taka ákvörðun um hvort að nýtt félag verði stofnað um rekstur kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík. Það yrði þá að gera með sam­þykki helstu kröfu­hafa félags­ins, en Arion banki er þeirra langstærstur. Nokkrir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru einnig í þeim hópi.

[links]Starf­semi verk­smiðj­unnar var stöðvuð 1. sept­em­ber 2017 eftir að Umhverf­is­stofnun tók ákvörðun þess efnis. Óheimilt var að end­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­ur­bótum og ítar­legu mati á þeim.

Arion banki og líf­eyr­is­sjóð­irnir sem tóku yfir United Silicon að mestu í fyrra­haust höfðu von­ast til þess að hægt yrði að hefja starf­semi að nýju með því að gera úrbætur sem myndu kosta fimm millj­ónir evra, um 630 millj­ónir króna. Vonast var til að hægt yrði að selja verk­smiðj­una ef svo væri.

[adspot]Í bréfi sem Umhverf­is­stofnun sendi til for­svars­manna United Silicon seint síð­ast­lið­inn föstu­dag kemur hins vegar fram að þær úrbætur muni ekki duga. Samkvæmt þeim úrskurði þarf að ráð­ast í úrbætur sem kosta um þrjá millj­arða króna áður en að verk­smiðjan fær að fara í gang að nýju. Þar með þykir úti­lokað að hægt verði að selja verk­efnið að óbreyttu. Kostn­aður nýrra eig­enda við að koma verk­smiðj­unni aftur í gang yrði ein­fald­lega of mik­ill.

Heim­ildir Kjarnans herma að til greina komi að kæra úrskurð Umhverf­is­stofn­unar frá því á föstu­dag. Það verður þó skipta­stjóra að ákveða slíkt eftir að United Silicon verður sett í þrot.

Sorgarsaga

United Silicon er fyrsta kís­il­málm­verk­smiðjan sem hefur verið gang­sett á Íslandi. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þáver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, setti ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar af stað 13. nóv­em­ber 2016. Fljót­lega fór að bera á mik­illi óánægju hjá íbúum í Reykja­nesbæ með mengun frá verk­smiðj­unni. Margir fundu fyrir tölu­verðum lík­am­legum ein­kennum vegna þessa. Í apríl til­kynnti Umhverf­is­stofnun for­svars­mönnum United Silicon að ekki yrði hjá því kom­ist að loka verk­smiðj­unni vegna meng­unar sem frá henni streymdi. Í kjöl­farið voru veittir frestir en starf­semin var end­an­lega stöðvuð 1. sept­em­ber 2017 og fram­leiðsla hefur legið niðri síðan.

Áður höfðu helstu lán­veit­endur United Silicon, Arion banki og nokkrir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, tekið yfir United Silicon. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun í ágúst 2017 og bar fyrir sig erf­ið­leika í rekstri sem rekja mætti til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem valdið höfðu félag­inu miklu tjóni. Þá féll gerð­ar­dómur í deilu United Silicon við ÍAV hf., sem hafði tekið þátt í að reisa verk­smiðj­una, í fyrra­sumar. Samkvæmt honum átti United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna, sem félagið átti ekki til.

Hluthafar og kröfuhafar tapað stórum fjárhæðum

Hlut­hafar og kröfu­hafar félags­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­hæðir vegna United Silicon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé en úti­stand­andi skuld­bind­ingar nema ennþá 5,4 millj­­örð­um, sam­­kvæmt síð­­asta birta upp­­­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­­ur­inn á greiðslu­­stöðv­­un­­ar­­tím­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­stöðv­­un­­ar­­tím­inn hófst í ágúst.

Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn, sem fjár­­­festi 1.178 millj­­ónum króna í United Silicon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­­sent. Um var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­launa­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­ur­­færslan einnig 90 pró­­sent­­um. Líf­eyr­is­­sjóð starfs­­manna Bún­­að­­ar­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­un­­ar­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­stöðvum hans í Borg­­ar­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Festa 875 millj­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­kvæmt var­úð­ar­nið­ur­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Úttekt tilbúin i lok mars

Í sept­em­ber 2017 lagði Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, fram beiðni á Alþingi um úttekt á aðkomu rík­is­ins að aðdrag­anda og eft­ir­málum þess. Fór hún fram á að Rík­is­end­ur­skoðun myndi vinna úttekt­ina. Beiðnin var lögð fram á ný í des­em­ber.

RÚV greindi frá því fyrr í dag að Rík­is­end­ur­skoðun vinni nú að úttekt­inni. Í frétt á vef RÚV segir að búist sé við því að úttektin verði til­búin í lok mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár