Fjögur sækjast eftir þriðja sæti Samfylkingarinnar

Sabine Leskopf vara­borg­ar­full­trúi hefur lýst yfir fram­boði í 3. til 4. sæti í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi vill það þriðja líka sem og Skúli Helgason og Aron Leví Beck.

Fjórir sækj­ast eftir þriðja sæt­inu á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Flokksval fer fram þann 10. febr­úar.

Sabine Leskopf vara­borg­ar­full­trúi sendi út yfir­lýs­ingu í gær þar sem hún býður sig fram í 3.-4. sæti í próf­kjör­inu. Hún hefur verið vara­borg­ar­full­trúi frá árinu 2014, setið fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar í skóla- og frí­stunda­ráði og mann­réttinda­ráði, verið for­maður heil­brigð­is­nefndar og vara­maður í inn­kaupa­ráði.

Sabine er upp­haf­lega frá Þýska­landi en hefur búið á Íslandi frá árinu 2000. Hún er menntuð í við­skipta­fræði, erlendum tungu­málum og kennslu­fræði. Sabine leggur áherslu á inn­flytj­enda­mál og hefur meðal ann­ars gegnt emb­ætti for­manns Samtaka kvenna af erlendum upp­runa.

Í dag sendi síðan Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sæk­ist eftir 3. sæt­inu. Hann hefur verið kjör­inn borg­ar­full­trúi frá árinu 2014 og seg­ist sem for­maður umhverfis- og skipu­lags­ráðs hafa beitt sér í þágu þétts og mann­væns borg­ar­um­hverfis. Hjálmar vill efla val­kosti á hús­næð­is­mark­aði og í sam­göngum. Berjast fyrir því að borg­ar­línan verði til, fái pláss og fjár­magn, byggður verði flug­völlur í Hvassa­hrauni til að hægt verði að byggja upp í Vatns­mýr­inni.

Áður höfðu þeir Aron Leví Beck for­maður ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík og borg­ar­full­trú­inn Skúli Helgason lýst yfir fram­boði í 3. sætið í for­vali Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár